Félagsbréf - 01.06.1963, Side 32
Afríka: Amos Tutuola
Afrískar bókmenntir munu íslenzkum
lesendum lítt eða ekki kunnar; þau
verk sem hingað hafa borizt eru helzt
verk hvítra manna, sumra barnfæddra
í Afríku, annarra aðkominna, nema þá
nokkur ljóð Afríkuskálda í hýsna mis-
jöfnum þýðingum. í ströngum skiln-
ingi eru innfæddar afrískar bókmennt-
ir varla til; þær eru að fæðast þessa
dagana og árin. Skáldskapur Afríku-
manna hefur fram á okkar daga verið
munnlegur, borinn uppi af alþýðlegum
sögu- og kvæðamönnum; ritlist hefst í
Afríku fyrst með Evrópumönnum. Og
hinir innfæddu höfundar skrifa allir
eða flestallir á Evrópumálum, frönsku
og ensku, og meira eða minna með
evrópska lesendur í huga; eitt megin-
vandamál Afríkuhöfunda í dag er
hversu þröngan innlendan lesendahóp
þeir eiga tiltækan, en hljóta að beina
verkum sínum til erlendra lesenda með
önnur viðhorf og annan skilning. —
Margir hinna eldri Afríkuhöfunda hafa
líka búið langtímum í útlegð, París
hefur verið skiptistöð hinna frönsku-
mælandi skálda við umheiminn, og
enn í dag birtast flest verk innfæddra
suðurafrískra höfunda í London og
þar búa þeir margir landflótta.
Með sjálfstæðistöku æ fleiri Afríku-
ríkja verða kaflaskil í þessari sögu:
bókmenntirnar flytjast heim, og þess
er að vænta að viðmiðun höfundanna
verði afrísk í æ ríkari mæli, hvort sem
þeir skrifa Afríkumál, Evrópumál eða
eigin Afríkuútgáfu Evrópumáls, eins
og Amos Tutuola gerir. Þótt sízt sé
vert að minnka fyrir sér verk hvítra
Afríkuhöfunda (eins og Alans Patons
sem þýdd hafa verið á íslenzku) virðast
hinar nýju Afríkuhókmenntir forvitni-
legastar um þessar mundir: þar birtist
fyrst mynd hinnar eiginlegu Afríku í
bókmenntunum, ekki meira eða minna
evrópsk útgáfa hennar. En þessar nýju
bókmenntir eru varla enn komnar til
sögunnar svo umtalsvert sé: þær eru
framtíðarinnar.
Amos Tutuola er kannski sá Afríku-
höfundur sem mesta athygli hefur
vakið síðustu árin. Hann er fæddur í
Nígeríu 1920, fékk lítilsháttar skóla-
menntun í trúboðsskólum en vann
jöfnum höndum fyrir sér á búi föður
síns og hefur síðan stundað marg-
breytileg störf. Hann hefur skrifað
nokkrar bækur, en miklu kunnust er
skáldsagan The Palm-Wine Drinkard
and his dead Palm-Wine Tapster in
28 FÉLAGSBRÉF