Félagsbréf - 01.06.1963, Blaðsíða 27

Félagsbréf - 01.06.1963, Blaðsíða 27
Thorarensen er skáld. Jónas Hallgríms- son er ekki skáld“. Þetta hefur senni- lega verið veturinn 1843—1844, en þann vetur var Grímur heima á Bessastöðum og hafði mikil samskipti við skólasvein- ana. Grímur var einn skaípasti og lærð- asti bókmenntafræðingur meðal Islend- inga þessa tíma, en rétt er að slá þann varnagla, að lítil vinátta var með þeim Grími og Jónasi. M. a. skopstældi Jónas kvæði Gríms, og Grímur hefur áreiðan- lega tékið slíkt óstinnt upp. En fleira kann að hafa ráðið þessum dómi Grím’s. Hann var menntaður í hinum róman- tíska skóla. Rómantík Bjarna var mikln hreinræktaðri en Jónasar, og ekki er að efa, að Grímur liafi mælt kveðskapinn og vegið' á vogarskálum rómantísk,U stéfriunnar. Síðar mun Grímur hafa skipt um skoðun, eins og fram kemur í eftirmælum hans um Jónas, sem komu í' Nýjum félagsritum 1846. Líf Jónasar og kynni þjóðarinnar af honum voru ekki heldur þannig, að lík- legt megi heita, að það hafi aflað hon- um vinsælda. Páll Melsteð, sem var skólabróðir hans og vinur, segir í bréfi til Jóns Sigurðssonar dags. 1. ágúst 1841 frá Jónasi og högum hans á þessa leið: • .hann er so latur, og so veikur optast af óreglulegum lifnaði, að hann er hrokkinn uppaf þegar minnst varir. Hann er nú einhverstaðar í Skapta- fellssýslu á ferðalagi, og fer rík- mannlega, eins og hann væri barón, éyð- ir so öllu, sem hann fekk, í óþarfa og ráðleysu. Þetta líkar mér so illa við Jónas, hann skapar sér vesöld sína sjálf- ur. En falleg eru kvæðin lians. Nú hef- ur hann nýort drápu um Magnús kon-: ferentsráð fallega að gagni. — ... Jónas ætti úr Vík að komast; honum er hvergi verra að vera.“ í öðru bréfi til Jóns dags. 2. marz 1843 segir Páll: ,,Það liggur mér við að halda, að suma hérná liafi gilt einu þó Jónas Hallgrímsson hefði dáið í haust. Eg vildi óska að hamingjan gæfi honum heilsu til að lifa nokkur ár, og gleðja okkur með kvæðurn sínum, og íslenzku geografí- unni; jeg hripa honum nú línu og sendi penínga til hans fyrir stjörnufraiðinaj Já falleg eru þar sum orðin, sem hanri hefir smíðað. Mér þykir hann samt ekki: skrifa betur málið en þú bróðir!“ Páll Melsteð vissi, að Jóni Sigurðssyríi lét margt betur í éyrum en lof um Fjölnis- menn. Þess vegna velur hann Jónasi helzt aldrei svo lofsyrði, að Jón fái' ekki betur útilátið lof fyrir sömu atriði, hvort heldur um er að ræða nýýrði eðá ritun íslenzkrar tungu. Árás Jónasar á rímurnar, var held- ur ekki til þess fallin að afla honum og ljóðum hans vinsælda. Þejrií mun merkari verða ummæli Níelsar skálda um hagmælsku Jónasar, ef þau eru rétt hermd: „Hann er meira, hann er skáld, mannskrattinn, og það er meira að segja^ að ef hann hefði haft aðra eins lesn- ingu og ég, þá hefði hann slagað upp eftir mér.“ Það var einkum yngri kynslóðin, sem mat kvæði Jónasar á sama hátt og síðar varð almennt hjá þjóðinni. Benedikt Gröndal talar sjálfsagt fvrir margra munn, þegar hann segir í Dægradvöl: „Kvæði Jónasar urðií mér og ógleymanleg, jeg lærði strax flest þeirra, án þess jeg vissi af — Gunnarshólma kann jeg allan enn... sum kvæði Jónasar komu á lausum FÉLAGSBRÉF 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.