Félagsbréf - 01.06.1963, Blaðsíða 14

Félagsbréf - 01.06.1963, Blaðsíða 14
en skrautsmíð áhalda. Hverfi í list- sögulegum skilningi eru á ýmsa vegu. Segja má, að um slíkt sé að ræða þarna að vissu leyti, vegna þess hve skammt er á milli myndþila og híbýla manna af sömu öld. Hellir, skúti og bergrim eru talsverð undur, einkum eru hellar það. Hellir bæði hrindir frá og dreg- ur að manninn. I hellum og skútum þessa svæðis er bergið mjög víða slétt, og sums staðar eru rjómahvítir fletir, annars staðar svo grárra yfirborð. Eins og nú er, er raki ekki ýkja mikill, og er líklegra, að svo hafi verið, þegar málað var. Þó sést, að vatn myndar kalkhúð, og það all víða. Þarna er rúm og skjól og næði. Hellismunnar munu og víðast liggja all berir út að dala- hlíðunum, og því finnast þeir. Og inn- gangsleiðir eru yfirleitt ekki óþægi- legar. Hins vegar er ekki alls staðar jafn greiðfært inni. Gólfslétt og mjög breið hvolfabil eru ekki geysilega mörg og samkomur manna til helgiat- hafna af því tagi, sem að var vikið, hafa ekki getað víða átt sér stað mjög fjölmennar. Menn hafa málað og rist á löngum veggbilum, þar sem hellir er í mjóum göngum og bugðóttum eða ekki mjög hátt til lofts fyrir þann, sem er að vinnu. Salir eða hvelfingasam- stæður, eins og fremst í Lascaux og Altamira, þar sem er myndskrúð á veggjum og lofti, hrífa mjög, þar er sviðið glaðast, en þarna er einungis hluti af öllu því, sem var málað og rist á berg. Verður að skoða seiðsam- komuatriðið í ljósi þessa. Almennt ágæti franko-kantabriskra verka, og sú umönnun og þroski, sem þau bera vitni og brotið frá Geniére 10 FÉLAGSBRÉF og hellurnar frá Parpallo eru sagðar greina frá, og staðavalið, andmælir fremur en styður, að þeir, sem að unnu, hafi verið lítt kunnugir og ein- komugestir. Voru ekki myndþilin, þar sem þétt var búið við þau, jafnvel í eigu eða umsjá ætta, er þannig prýddu heimkynnin? Ætt eða samfélagshópur einhvers konar hefði getað haft þann hátt á að glæða bergflöt og bólstöðva- grennd, þar sem lengstum var hafzt við. En nú koma búferli, árstíðabund- in, til sögunnar. Raymond Lantier segir í bók sinni um forsögulifnaðar- háttu, er um var getið, að fornleifar í hellum í Dordogne og Pyreneafjöll- um sýni, að fornsteinaldarlýður á þess- um slóðum hafi flutzt árlega úr hell- um og skútum og farið niður að ströndum Atlantshafs og Miðjarðar- hafsins og snúið svo þaðan aftur. Tóku þeir sig upp, er sumraði. Lítið er um- merkja um sumarbólstaðina. Kunna umræddir fornsteinaldarlýðir að hafa búið undir grunnum hellisskútum eða komið sér upp trjágreinahreysum, þar sem dvalizt var við strandhéruðin að sumri. Er helzt að ætla, að farið hafi saman dýraveiðar og fæðusöfnun á yfirborði jarðar og með ströndum og þá hirt sjóskel. Á vetrum höfðust menn við í skjóli hella og skúta á áð- urnefndum svæðum. Þangað bera þeir skeljar úr sjó. Þessir menn voru hreinaveiðar og höguðu ferðum eftir háttum hreinsins. Hreinninn, segir Henri Breuil í bók sinni um hella- myndirnar*, kom á suðurslóðir sínar * Abbé Henri Breuil, Four llundred Centuries of Cave Art, 1952, bls 41.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.