Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Side 9

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Side 9
vel að taka skrif sín alvarlega: Þegar hann fékk Púshkínverðlaun aka- demíunnar rússnesku árið 1888 sagði hann skemmstum orðum: „Ætli það sé ekki fyrir það hvað ég var iðinn við að veiða krabba." Að loknu læknanámi 1884 gefur Tsjekhov út sína fyrstu bók og starfar sem læknir um skeið skammt frá Moskvu. Arið 1886 hefst sam- starf hans við Súvorín, útgefanda dagblaðsins Novoje vrémja, sem verður einn nánasti vinur hans og síðar útgefandi verka hans. Frægð hans vex hröðum skrefum, bókurn fjölgar, leikritið ívanov er frumflutt 1887. Arið 1890 gerir Tsjekhov sér ferð þvert yfir Síbiríu og til eyjarinnar Sakhalín þar sem hann kynnir sér kjör refsifanga og skrifar síðar bók um þessa „djöflaeyju" Rússlands. 1892 tekur hann virkan þátt í að berjast við hungursneyð og kólerufaraldur í landinu og kaupir sér hús í Melekhovo, skammt frá Moskvu - skrifar þar, tekur á móti gestum af mikilli rausn og læknar bændur sem til hans leita. 1892: Tsjekhov gerir sér ferð til Þýskalands, Frakklands og Ítalíu með Súvorín. 1894: Heilsa Tsjekhovs fer versnandi; hann gengur með berkla. 1896: Leikritið Máfurinn er frumflutt og kolfellur. 1898: Tsjekhov reisir sér hús á Jalta á Krímskaga og dvelur þar löngum síðar - m.a. vegna versnandi heilsu. Samstarf hans hefst við nýstofnað Listaleikhús Staníslavskís í Moskvu. 1901: Frumflutningur á Þremur systrum. Tsjekhov kvænist leikkon- unni Olgu Knipper sem fer með mikilvæg hlutverk í verkum hans. Oftar en ekki er vík milli vina - hann í Jalta, hún í Moskvu. 1902: Tsjekhov segir sig úr Rússnesku akademíunni til að mótmæla því að Maxím Gorkí hefur verið vikið úr henni. 1904: Leikritið Kirsuberjagarðurinn frumflutt (í janúar). Um sumarið - ferð til Þýskalands með Olgu Knipper. 2 júlí lést Tsjekhov í Badenwiler í Svartaskógi aðeins 44 ára að aldri. III. Það fer töluvert fyrir því í bréfum Tsjekhovs, að hann segir mönnum til syndanna. Hann er að reyna að ala þá upp. Reyndar er uppeldi eitt lykilorð í því erindi sem hann á við aðra menn. Hann kann því illa ef Tímarit um bókmenntir og leiklist 7

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.