Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Page 28

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1994, Page 28
VIII. Tsjekhov hafði ást á efanum, bar virðingu fyrir honum, talaði jafnvel um það, að efi og óánægja með sjálfan sig væri aðal hvers hæfileika- manns. En efasemdir hans lutu og að listinni sjálfri, að bókmenntunum sem voru hvergi sem í Rússlandi settar á stall og dýrkaðar og reynt að gera úr þeim nýja kirkju og skáldin þá að prestum og spámönnum. Stundum er sem skáldið vilji hrista af þeim alla helgislepju með grófu miskunnarleysi: „IÞeir hafa] troðið sér inn í bókmenntirnar aðeins vegna þess að bókmenntirnar eru í sjálfu sér víður vettvangur fyrir smjaður, auðveldar aukatekjur og leti" (XI, 218). Meira fer þó fyrir því að Tsjekhov efist um að listir og bókmenntir eigi þau svör við spurningum manna sem margir Rússar vildu til þeirra sækja. Hann segir í bréfi til Súvoríns 1888: Mér finnst að ekki sé það verk rithöfundar að leysa úr spurningum eins og hvað guð sé eða bölsýnin o.s.frv. Það eitt kemur í hlut hans að lýsa því hver, hvernig og við hvaða aðstæður talaði eða hugsaði um guð eða bölsýnina. Listamaður á ekki að vera dómari yfir persónum sínum og því sem þær segja, heldur hlutlaust vitni einungis. Ég hefi hlerað ruglingslegt og niðurstöðulaust samtal tveggja Rússa um bölsýni og ég hlýt að koma því til skila rétt eins og ég heyrði það, en kviðdómarar munu svo fella sinn dóm yfir þeim, það er að segja lesendur. Mitt mál er það eitt að vera nógu gáfaður til að greina á milli þess sem skiptir máli og markleysishjals, kunna að varpa Ijósi á persónur og tala þeirra tungu. Shjeglov-Leontév leggur mér til lasts að ég hafi lokið sögu með setningunni: „Ekkert fær maður skilið í heimi hér." Hann telur að rithöfundurinn sem sálkönnuður verði að komast til botns í öllu. En ég er ekki sammála honum. Þeim sem skrifa, einkum skáldum, er mál að viðurkenna að maður kemst ekki til botns í neinu í heimi hér, rétt eins og þeir viðurkenndu fyrir margt löngu Sókrates og Voltaire. Fjöldinn heldur að hann skilji allt og viti, og því heimskari sem hann er því víðari sýnist sjóndeildarhringur hans. En ef höfundur, sem fjöldinn trúir, þorir að lýsa því yfir að hann skilji ekkert af því sem hann sér, þá er það út af fyrir sig mikil þekking og stórt skref framávið á sviði hugsunarinnar (XI, 232). Þessi fúslega viðurkenning á því að möguleikum rithöfunda eru tak- B I A R T U R O G F R Ú E M I L í A 26

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.