Frón - 01.03.1945, Blaðsíða 7

Frón - 01.03.1945, Blaðsíða 7
SigurSur Sigtryggsson rektor 5 finna gott úrval úr nútíðarbókmenntum Dana og góða kafla um náttúru landsins og sögu og menningu þjóðarinnar. Sigurður lét sér annt um að gera ísland, menningu þess og bókmenntir, kunnugt þegar hann gat því við komið. Ásamt Thoru Konstantin Hansen samdi hann endursagnir á Njálu og Grettlu, sem komu út 1911 og 1912, og hafa þær bækur gert sitt til aS vekja áhuga alþýSumanna hér í landi á íslendingasögum. Eins og áður var um getið var saga ein af námsgreinum hans við háskólann. Hann hafSi sérstaklega stundað menningarsögu, og þá einkum snúiS sér að menningu Islands. Eftir aS viS höfðum kynnzt, varS hann þess var aS ég hafði líka áhuga á þessu sviði, og áriS 1928 fór hann þess á leit við mig aS viS semdum í sameiningu bók um þetta, aSallega byggða á myndasafni, sem hann hafSi dregið saman. Varð úr þessu bók okkar »Myndir úr menningarsögu lslands« (1929), sem áriS eftir kom líka út á dönsku (»Gammel islandsk Kultur i Billeder«) og þýzku (»Alt- Island im Bilde«). Enskar skýringar voru látnar fylgja íslenzku útgáfunni í sérstöku hefti. Bókin hefur mælzt vel fyrir. SigurSur hafSi ætlað sér að halda áfram rannsóknum sínum á þessu sviSi. Þá ber að nefna hina fróðlegu ritgerS hans »Á IslendingaslóSum í Kaupmannahöfn« í Fróni 1944. SigurSur var aS eðlisfari listfengur maður og smekkvís. Um eitt skeið var hann mikið aS kynna sér íslenzkar listir á miS- öldum, og er áSurnefnd bók okkar meðfram sprottin af því. Hann hafSi sérstaklega kynnt sér myndir í gömlum íslenzkum handritum, og hafSi jafnvel í hyggju aS semja bók um þaS, en hætti viS þaS er próf. Halldór Hermannsson gaf út rit sitt »Icelandic Illuminated Manuscripts« í hinu mikla safni Dr. Munksgaards. En hann hlakkaði til þess tíma, aS hann gæti, aS loknu skólastarfinu, fariS til Islands í elli sinni og dvaliS langvist- um á ÞjóSminjasafninu í Reykjavík, til þess aS kynnast betur fjársjóSum þess, og hefð'i þaS áreiðanlega leitt til góðra og skemmtilegra rita um ýms atriði í menningar- og listasögu okkar. Sigurður var félagslyndur maður og gleSimaSur í sinn hóp. Pegar hann var fluttur alfarinn frá Sönderborg til Hafnar kom hann oft á fundi landa, og þó sjaldnar en hann vildi, vegna annríkis. Hann talaSi stundum í íslendingafélagi, og var kos- inn meðlimur FræSafélagsins. I »Kólfi«, félagi eldri íslenzkra menntamanna búsettra hér, var hann hérumbil á hverjum fundi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frón

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.