Frón - 01.03.1945, Blaðsíða 18
16
Jón Helgason
öldum, vilji menn ekki láta það óorð á sér sitja að þeir geymi
hans eins og hverjir aðrir sljóir og sinnulausir drussar. Sú þjóð
er sannauðug sem á í fórum sínum gnægð gagna til að sýna að
hún hefur einlægt borið sig eftir föngum að halda við arineldi
menningarinnar, og henni má þykja sæmd að leggja fram fé til
að leiða þau í ljós. Margar Jjjóðir í álfunni mundu telja sig sælar
að mega verja tunnum gulls til að eignast íslenzkar fornbók-
menntir. Og ekki mun heldur skortur þeirra I)jóða sem fegnar
þægju að eignast bókmenntir okkar frá síðari öldum, þó að minna
sé Jmr af að láta.
Ég hirði ekki að fjölyrða hér um fleiri bókmenntaleg verkefni,
|)ótt á margt væri ástæða að minnast, en mér finnst J>að sem nú
hefur verið vikið að, flestu öðru brýnna. l3egar fengnir væru
meðfærilegir textar væri tími til kominn að halda áfram rann-
sóknum verkanna á annan hátt. Pá mætti semja ritgerðir um
einstaka höfunda, rekja samband bókmennta vorra við útlenda
menningarstrauma o. s. frv. Og síðast gæti farið svo, að við
eignuðumst J)á bókmenntasögu sem við höfum svo lengi Jjráð
Og þó, — ég efast ekki um að bókmenntasagan verður að koma
fyrr, við getum ekki beðið svo Iengi eftir henni; en hún hlýtur
að verða gölluð og ófullkomin meðan svo mikið brestur á undir-
búningsrannsóknir sem ennl)á er.
4. »Frýr nú skuturinn skriðar«. Pað væri gleðilegt að geta
byrjað kaflann um málfræðina á J)ví að benda á einhvern blett
hennar sem væri í annarri eins rækt við Háskóla Islands og
rannsóknir fornbókmenntanna eru. En Jdví er ekki að heilsa og
litlar líkur til að verði fyrsta kastið. Þetta er ein dapurlegasta
eyðan i íslenzku menningarlífi. Mergð óunninna verkefna er svo
stórkostleg að ekki veitti af heilum hóp velvirkra manna ef ætti
að ráða bót á mestu vandræðunum. Auðvitað væri ofætlun að
heimta af háskólanum að hann réði einn fram úr Jjeim öllum. En
hvar væri réttmætt að vænta forustu og fyrirmyndar ef ekki Jiar?
íslenzka þjóðin heldur með ærnum tilkostnaði uppi fjölda
skóla, og tunga landsmanna er að sjálfsögðu ein höfuðgreinin í
þeim öllum. Mér verður stundum hugsað til Jæirra vesalings
kennara víðs vegar um landið sem eiga að vera að segja til í
íslenzku. Oft eru I^etta illa undirbúnir menn, gott ef ekki guð-
fræðingar. Og jafnvel þótt undirbúningurinn sé í lagi, I)á hrekkur
hann oft skammt er á hólminn kemur. Hvert eiga Jjessir menn