Frón - 01.03.1945, Blaðsíða 65

Frón - 01.03.1945, Blaðsíða 65
Orðabelgur 63 á aÖ þetta er þveröfugt: Haukur hefur leikið þessa sögu eins og hina, stytt og breytt og samið um. Þetta hafði Sigurð Nordal áður grunað, en nú er það sannað. Haukur er ekki sá meinlausi varðveizlumaður sem menn hafa haldið, heldur viðsjálsgripur í meðferð sinni á annarra manna ritum. Rannsókn sú er Jansson hefur gert miðar öll að því að kveða niður þá gömlu firru að sléttfjölluðustu og hefluðustu og ‘beztu’ textarnir séu jafnframt elztir og upphaflegastir. Röksemdirnar fyrir því hafa, eins og nærri má geta, oftast verið harla linar. í Fóstbræðra sögu er sagt frá því að höggvið var í höfuð Hækils- Snorra og klofinn allur hausinn. Par lætur Hauksbók staðar numið, en önnur handrit bæta við: »Fær Snorri þegar bana«. Menn hafa skopazt að þessari setningu og þótt hún einfeldnisleg, en Jansson sýnir fram á að hún á heima í sögunni frá fyrsta fari. Mér dettur annar höfundur í hug sem aldrei mun hafa verið sakaður um einfeldni. 1 Snorra Eddu er sagt frá því er Sörli og Hamdir ruddust inn þar sem Jörmunrekkur konungur svaf og hjuggu af honum hendur og fætur. sÞá vaknaði hann« ... Jansson hefur verið sænskur lektor í Reykjavík og hefur kynnzt þeim sagnarannsóknum sem þar eru stundaðar, enda tileinkar hann bók sína norrænudeild Háskóla íslands. Hann er traustur, öruggur, rökfastur, og bók hans er glöggt dæmi þess hverju heilbrigð dómgreind og sjálfstæð eftirtekt fá áorkað, jafnvel á sviði þar sem margir hafa áður veriö að snudda. Nákvæmni allrar er gætt út í yztu æsar. Ég fæ sjaldan of mikið af sliku, en þó liggur við að mér sé nóg boðið þegar Björn Pórólfsson er jafnan látinn vera Porolfsson, af því að fyrir handvömm prentara brotnuðu einu sinni broddarnir ofan af ó-unum í nafni hans á titilblaði bókar. Jansson ætlar að halda áfram rannsóknum sínum með saman- burði á Eiríks sögu rauða og Grænlendinga þætti Flateyjarbókar. Hann hefur farið svo myndarlega af stað að framhaldsins mun beðið með eftirvæntingu. J. H. Frá Félagi íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn. Aðalfundur félagsins var haldinn 16. febr. síðastl., og var ný stjórn kosin, þó svo að formaður, Guðmundur Arnlaugsson, og ritari, Guðni Guðjónsson, voru endurkosnir. A árinu voru haldnir 5 fundir og 10 kvöldvökur eða almennar samkomur, auk þess að félagið átti þátt í hátíðinni 17. júní og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frón

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.