Frón - 01.03.1945, Side 36

Frón - 01.03.1945, Side 36
34 Guðrún Jónsdóttir frá Prestsbakka Blómhnapparnir líktust líka blóðdropum. Peir drúptu svo sorg- bitnir í björtu sólskininu. Steingrímur kom heim úr mýrinni og settist á rúrniÖ á móti telpunni. Hann var ataSur í rauSamýri upp aS hnjám, og þaS komu blettir á hvítt gólfiS. Hann tugSi tóbak og spýtti öSru hvoru í hrákadall sem stóS viS rúmstokkinn. Hann var lítill maSur vexti meS rautt hár og þungar yglibrýn. Telpan hafSi veriS hrædd viS hann þegar hún var lítil, en nú var hún ekki hrædd viS hann lengur, því aS hún vissi aS hann var almennileg- heita maSur þótt hann væri þurrlegur í viSmóti. Lummuilmurinn barst inn í baSstofuna í gegn um opnar dyrnar, og eftir nokkra stund kom Ásdís meS kaffiÖ á bakka meS hvítum ísaumuöum dúk. Hún setti bakkann á borSiÖ og hellti í bollana, rétti telpunni sykur og rjóma og baS hana aÖ gera svo vel, og settist síSan sjálf á rúmiS hjá henni og drakk kaffi. Steingrímur tók tóbakstöluna út úr sér og lagSi hana á syllu fyrir ofan rúmiS sitt. Svo spýtti hann ennþá einu sinni í dallinn og fór síSan aS drekka kaffiÖ. Ásdís sagSi honum frá erindi telpunnar; hún hafSi ekki komiS sér aS því aS segja frá því. Steingrímur sagSi eftir nokkra um- hugsun aS hann skyldi koma aS afliönu nóni. Svo drukku þau kaffiS og borSuÖu lummurnar. Steingrímur drakk af undirskálinni og blés á kaffiS, því aS þaö var heitt, telpan drakk ósköp hægt til þess aS brenna sig ekki, en Ásdís drakk kaífiS rétt eins og þaS væri alls ekkert heitt. AS lokinni kaffidrykkjunni þakkaÖi telpan fyrir sig meS handabandi, kvaddi og fór heim. Hún átti aS flýta sér, því aS milliferSirnar biSu hennar. í síSasta sinn sem hún sá Ásdísi var þegar yngsti sonur hús- bændanna var skírSur veturinn eftir. Pá kom hún í sömu svörtu kápunni meS loSkraganum og meS sömu litlu, svörtu húfuna, en nú var hún meS ullarvettlinga á höndunum. Hún var jafnföl og áÖur, en magrari en hún hafSi veriS um sumariS, og hún hóstaSi öSru hvoru ákaft og stóS næstum á öndinni. Hún var samt glaSleg, en þó aS hún brosti voru augu hennar alvarleg, og augnahárin titruSu meira en áSur þegar hún Ieit niSur fyrir sig. Hún snerti ekki á barninu, leit aSeins snöggvast niSur í vögguna. Hún talaSi heldur ekki um hæliÖ, og þegar hitt fólkiö spurSi hana einhvers þaSan, svaraSi hún fálega og fór aö tala um eitthvaS annaS. Hún heiIsaSi telpunni vingjarnlega og brosti til hennar.

x

Frón

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.