Frón


Frón - 01.03.1945, Qupperneq 45

Frón - 01.03.1945, Qupperneq 45
Nokkur orð um íslenzk bókasöfn 43 er nauðsynlegt að samvinna sé á milli bókasafnanna, og að auð- velt sé að afla sér vitneskju um hvar liægt sé að finna bækur um hvaða efni sem er. Að jjessu hefur verið unnið á ýmsan hátt i flestum löndum, bæði með útgáfu ýmiss konar bókfræðirita og ekki sízt með Jdví að koma á fót einhvers konar bókfræðilegum upplýsingaskrifstofum. Ef slíkar stofnanir væru jjað sem flesta bókasafnsmenn dreymir um — en á j>að skortir viða mikið —, [>á ættu j>ær að geta sagt til um hvar hverja bók er að finna og útvegað hana, og helzt gefið leiðbeiningar um bókmenntir um ákveðið efni. Slikar upplýsingaskrifstofur eru ekki síður nauðsynlegar alj>ýðubókasöfnum en fræðilegum bókasöfnum og geta j>ví verið tengiliður milli þessara tveggja tegunda bókasafna. Hér i landi hefur t. d. slikri skrifstofu verið komið upp af alþýðubókasöfnunum. Hún tekur við öllum þeim bókapöntunum sem söfnin sjálf geta ekki leyst úr. Síðan leitar skrifstofan til þeirra sérsafna eða vísindasafna sem um getur verið að ræða, og úrlausnin er færð í spjaldskrá. Skrifstofan fær þannig smátt og smátt meiri og meiri vitneskju um bókakost safnanna, og henni verður að sama skapi hægara um vik að svara nýjum fyrirspurnum. Auk þess er þar vitanlega að finna prentaðar bókaskrár, ritaukaskrár og önnur bókfræðileg hjálpargögn. Með þessu móti getur jafnvel hvaða sveitabókasafn sem er útvegað hverja þá bók sem á annað borð er léð út á stærstu söfnum landsins. Og fyrir stríðið útvegaði skrifstofan einnig fjölda bóka frá öðrum löndum, þegar þeirra var ekki kostur hér í landi. Hvernig er nú þessum málum komið á íslandi? Eins og gefur að skilja vitum við ekki frekar á þessu sviði en öðru glögg deili á þvi sem kann að hafa gerzt á stríðsárunum. En engar fregnir hafa borizt hingað um nein meiri háttar umskipti í þessum efnum, svo að ætla má að allt standi enn við sama í öllum meginatriðum. Lítum fyrst á vísindalegu bókasöfnin. Til þeirra mun varla hægt að telja önnur en Landsbókasafnið og Háskólabókasafnið. Um hið síðarnefnda er fátt eitt kunnugt hér, því að það er i rauninni ekki orðið til fyrr en á stríðsárunum, eftir að það fékk sín eigin húsakynni í nýju háskólabyggingunni. í íslenzkum fræðum mun það þó eiga allgóðan bókakost, þar sem það hefur fengið að gjöf fyrst safn Finns prófessors Jónssonar og síðar safn Benedikts Þórarinssonar. Hvernig bókakosti hinna háskóla- deildanna er komið, er mér aftur á móti ókunnugt um, en ætla má að honum sé miklu frekar ábótavant, ekki sizt i læknadeild
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frón

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.