Morgunblaðið - 30.10.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 30.10.2015, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015 Mannlíf við Hverfisgötu Vinna fólks er margvísleg, sumir bogra vel klæddir úti við með grímu fyrir vitum við að laga steinsteypu í veggjum á meðan aðrir sitja inni á hlýjum skrifstofum. Árni Sæberg Tveir stjórn- málaflokkar efndu til landsfunda um síðustu helgi: Sjálfstæð- isflokkurinn og Vinstri græn (VG). Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, minnt- ist ekki á utanríkismál í setningarræðu sinni. Það gerði Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæð- isflokksins, hins vegar og vék að hin- um miklu sviptingum sem orðið hafa varðandi stöðu Íslands undanfarin 10 ár frá því að bandaríska varn- arliðið hvarf úr landi í september 2006. Vissulega eru þessar sviptingar með nokkrum ólíkindum sé litið til áranna frá 1944 þegar íslenska lýð- veldið kom til sögunnar. Í kalda stríðinu var oft tekist hart á um utanríkismál, ekki síst öryggis- og varnarmál. Til átaka kom við ná- grannaþjóðir vegna útfærslu land- helgi, fiskveiði- og efnahagslögsögu. Þetta gerðist þó allt innan ákveðins ramma sem mótaður var af spennu milli austurs og vesturs, milli lýð- ræðisþjóða og einræðisríkja. Þessi rammi hvarf með hruni Sov- étríkjanna. Við tók nýtt tímabil sem einkennst hefur af vaxandi óvissu. Við vitum ekki enn um allar afleið- ingar breytinganna eins og vand- ræðin vegna fólksstraumsins til Evrópu og ófriðar meðal múslima sýna. Meginbreytingar Í Evrópu urðu nokk- ur þáttaskil með aðild hlutlausra EFTA-ríkja að Evrópusambandinu í upphafi tíunda áratug- arins. Íslendingar ákváðu hvorki að slást í för með þeim ríkjum né Norðmönnum þegar þeir sömdu um ESB- aðild. Norðmenn felldu síðan ESB-samning sinn í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Eftir stóð samningur þriggja EFTA- þjóða, Norðmanna, Íslendinga og Liechtensteina, við ESB undir merkjum EES. Aðildin að EES olli harðvítugum deilum á alþingi í upp- hafi tíunda áratugarins. Ágreiningur um hana er nú úr sögunni. Íslensk stjórnvöld vöruðu Banda- ríkjastjórn við að hverfa með allan liðsafla sinn á brott úr Keflavík- urstöðinni. Ráðamenn í Washington höfðu viðvörunarorðin að engu. Skammsýni Íraksstríðsáranna réð þar för. Varnarsamningurinn frá 1951 hélt þó gildi sínu og viðbót- arsamkomulag var gert í október 2006. Á árinu 2007 ákvað NATO að skipuleggja hér loftrýmisgæslu og senda reglulega flugsveitir til að sinna því. Snemma árs 2014 tengd- ust Svíar og Finnar þeirri gæslu þótt þeir standi enn utan NATO. Mjög reyndi á stöðu Íslands á al- þjóðavettvangi við hrun bankanna haustið 2008. Ofbeldisrík afstaða ríkisstjórnar breska Verkamanna- flokksins verður lengi í minnum höfð en einnig hve viðbrögð Pólverja og Færeyinga voru vinsamleg. Icesave- deilan við Breta og Hollendinga var að lokum útkljáð fyrir EFTA- dómstólnum. Sannaðist þar rétt- mæti þeirrar skoðunar að besta skjól fullvalda smáríkja sé að lokum í alþjóðalögum. Innan ESB er mark- visst þrengt að þessum fullveld- isrétti, einkum gagnvart smáríkjum. Misheppnuð ESB-umsókn Umsóknin um aðild að ESB sem alþingi samþykkti í ágreiningi sum- arið 2009 rann út í sandinn. Hún var reist á grundvallarmisskilningi. Rík- isstjórnin taldi að enn nytu Íslend- ingar sömu réttastöðu gagnvart ESB og EFTA-þjóðirnar í upphafi tíunda áratugarins. Eftir að í ljós kom að ekki yrði samið um neitt við ESB nema á forsendum þess, meðal annars um ráð yfir 200 mílunum, sigldu viðræðurnar í strand. Þeim var hætt í janúar 2013, þremur mán- uðum fyrir þingkosningar. ESB- stjórnarflokkarnir guldu afhroð í kosningunum. Hatrammar deilur urðu á alþingi um afturköllun hinnar misheppnuðu umsóknar. Reyndist þingið í raun óstarfhæft um tíma vegna uppnáms- ins sem varð þegar afturköllun um- sóknarinnar var lögð fyrir það. Ut- anríkisráðherra greip til þess ráðs að rita ESB afturköllunarbréf. Síðan fóru utanríkisráðherrann og for- sætisráðherrann til fundar við ráða- menn ESB í Brussel og áréttuðu aft- urköllunina. Er rangt að telja Ísland bundið við umsóknina að þjóðarétti. Þeir sem hafa verið þátttakendur í umræðum um ESB-aðildarmálið á landsfundum Sjálfstæðisflokksins frá því snemma árs 2009 vita að þar hefur verið leitað málamiðlana undir því fororði að aðild að ESB félli ekki að hagsmunum Íslendinga og hvorki bæri að sækja um aðild að ESB né ræða hana án samþykkis þjóð- arinnar í atkvæðagreiðslu. Í ályktun landsfundar nú segir: „Sjálfstæðisflokkurinn áréttar að hagsmunir Íslands séu best tryggðir með því að standa utan Evrópusam- bandsins og því að aðildarviðræðum við ESB hafi verið hætt. Mikilvægt er að tryggt verði að aðild- arviðræður verði ekki teknar upp að nýju án þess að þjóðin verði spurð hvort hún óski eftir aðild að Evrópu- sambandinu.“ Þetta orðalag fellur að samþykkt landsfundar árið 2013 og sýnir að stefnan sem þá var mörkuð hefur náð fram að ganga. Á landsfundinum var þessi ályktun samþykkt með yf- irgnæfandi stuðningi fundarmanna. ESB-málið er dautt sem pólitískt viðfangsefni auk þess sem allir flokkar hafa mótað þá stefnu að ræða ekki við ESB án umboðs frá þjóðinni. Verði aðild að ESB sett á dagskrá að nýju þegar fram líða stundir verður það að annars konar ESB en við þekkjum á líðandi stundu. Aðildarforsendur verða aðr- ar enda glímir ESB nú við innri erf- iðleika sem eru hinir verstu í sögu þess Er óvíst að út úr þeim verði siglt án klofnings sambandsins. Öryggis- og varnarmál Íslensk utanríkisstefna hlýtur að taka mið af ytri breytingum. Hafi þær hnigið að því fyrir aldarfjórð- ungi að Ísland einangraðist vegna legu sinnar stefnir nú til allt ann- arrar áttar. Stafar það bæði af aukn- um áhuga annarra þjóða á þróun mála á norðurslóðum og augljósri nauðsyn þess að varnir- og öryggi þjóðarinnar taki mið af nýju ástandi á því sviði. Í ályktun landsfundar sjálfstæðismanna segir: „Sjálfstæðisflokkurinn telur mik- ilvægt að varnarsamstarfi við Bandaríkin sé hagað þannig að varn- ir landsins séu ávallt í samræmi við þarfir Íslands, meðal annars fyrir loftrýmisgæslu og björgunarmál, og að reglulegar æfingar tryggi að sveitir, sem ætlað er að koma land- inu til varnar, þekki staðhætti vel. Jafnframt ætti að auka varnarsam- starf við önnur nágrannaríki okkar, einkum Norðurlöndin, til þess að tryggja að eðlilegum varnarstörfum sé sinnt frá degi til dags.“ Landsfundur sjálfstæðismanna árið 2015 staðfesti forystuhlutverk Sjálfstæðisflokksins í utanrík- ismálum þegar litið er til stærstu viðfangsefna í samskiptum við aðrar þjóðir og öryggis- og varnarmála. Eftir Björn Bjarnason »Nýlegar sviptingar í utanríkismálum eru með nokkrum ólíkindum sé litið til áranna frá 1944 þegar íslenska lýð- veldið kom til sög- unnar. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Sviptingar í utanríkismálum – forystuhlutverk sjálfstæðismanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.