Morgunblaðið - 30.10.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.10.2015, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Góða skapið sem hrúturinn var í í gær, virðist utan seilingar. Líttu málin raun- sönnum augum og þá sést að flest er í lagi þrátt fyrir allt. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhver öfund gæti komið upp í mann- legum samskiptum svo þú mátt gæta þess að bregðast ekki of harkalega við. Fara yfir samtöl fram og aftur og einu sinni enn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú færð mikið út úr samræðum og hvers konar þrautum í dag. Breytt umhverfi mun auka við þekkingu þína á heiminum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt rétt sé að gefa sér tíma til að kanna málavöxtu kemur alltaf að því að það verður að taka ákvörðun. Fólk lítur til þín með aðdáun og virðingu og þú átt það skilið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er svo margt að vita um heiminn. Mundu að einu sinni stóðst þú í þeirra spor- um og varst þá þakklátur þeim, sem réttu þér hjálparhönd. Aukin ábyrgð færir þér heppni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fordómar krabbans hafa verið ómeð- vitaðir, þar til í dag. Leyfðu öllu að hafa sinn gang. Sýndu umburðarlyndi í umgengni við aðra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhver sem stærir sig af mætti sínum efast um hann innst inni. Ein leið til þess er að neita einhverjum sem í hreinskilni er mjög erfitt að neita. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefðir gott af því að fara í stutt ferðalag í dag, þó að ekki væri nema til að tæma hugann. Ef þú lendir í deilum munu þær sennilega taka óvenjumikið á þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú leitar leiðsagnar. Enginn kann skil á öllum hlutum svo þú skalt ekki byrgja öll þín mál með sjálfum þér, slíkt leiðir til glötunar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er mál að safna í sarpinn. Reiknaðu út hvað þú skuldar mikið og hve miklar tekjurnar eru. Einhver hlutur eða manneskja sem hann þráir bíður líka eftir vatnsberanum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er mikil hætta á valdabaráttu í vinnunni hjá þér í dag og því er þetta alls ekki rétti dagurinn til að deila við yfirmann þinn. Allir þurfa ást og allir eru færir um að gefa hana. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ættir að einbeita þér að heimilinu og fjölskyldunni í dag. Samstarf þitt við aðra byggist á því að þú getir breytt til. Páll Imsland heilsar leirliði áblotnandi degi: Hann Stórólfur tröllið á Storði – stundum hann hefur á orði: Ég hef áhuga nóg og alls engan þó á béskoti blóðugu morði. Ég hef verið að lesa limrur eftir hina og þessa – og byrjaði auðvitað á Kristjáni Karlssyni: „Ég fer,“ sagði faldabrík, „klukkan fimm suðrí Grindavík.“ Hvílík endemisreisa og heimska og hneisa. En það hélt henni engin flík. Jóhann S. Hannesson: Ég er hreinlega farinn að hata það hvernig hver einasta gata er á sínum stað. Því mér ofbýður það ef alþýðan lærir að rata. Þorsteinn Valdimarsson – Tvíhelgi: Hugklofinn Holt og Bolt er heiðarleg sál og stolt. Sannist tvöfeldni á Bolt er hann heill – það er Holt sem er hálfur, en alls ekki Bolt! Eysteinn Gíslason frá Skáleyjum – Kvennaguðfræði: Faðir vor ku vera kvenmaður og kona var sonurinn blessaður. Efum samt ei að María mey var mikill og harðsnúinn karlmaður. Gísli Jónsson menntaskólakennari: Henni Góu sem guðfræði las þótti gjálífi syndsamlegt bras, en ef hún var þétt henni þótti það rétt svo allflestir gáfu ’enni í glas. Guðmundur Arnfinnsson – Hugs- uður: Á ferð sinni Fáfnir og Bera fóru um Afríku þvera og sáu fíl hjá fljótinu Níl sem var að fílósófera. Dr. Sturla Friðriksson – Hjarta- flutningur: Menn skipta í skyndi á hjörtum og skeyta í líkamann pörtum. En skratti er skítt þegar skinnið er hvítt að fá hjörtun og sviðin úr svörtum. Þorsteinn Gylfason: Doktor Gíslína prestur í Geitdal var geðprúð og dálítið feit og með umdeildan smekk. Hún tók sæng sína og gekk fram af öllum í sinni sveit. Karlinn á Laugaveginum: Því illkynja vandkvæði ollu að ég uppgafst á líferni hollu. – elska blaður og raup. fæ mér brennivínsstaup og bjórinn minn sýp ég úr kollu! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Limrur héðan og þaðan Í klípu HANN VAR MEÐ ÁGÆTIS MEÐMÆLI – VERST AÐ ÞAÐ VORU MEÐMÆLI ÚR KVIÐDÓMI. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger KOMDU INN, ÞJÁLFI. ÉG VIL RÆÐA ÆVIRÁÐNINGUNA ÞÍNA. Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að dreyma um vetrarsiglingu saman. AF HVERJU ERU KETTIR EINS OG ÞEIR ERU? VIÐ VITUM ÞAÐ EKKI ÞEIR VILJA EKKI SEGJA OKKUR ÞAÐ HÆTTU ÞÁ AÐ SPYRJA! MÁ ÉG FÁ SNARL? ÉG GET EKKI LÆRT Á FASTANDI MAGA HVAÐ MEÐ SNARL FYRIR MIG LÍKA?! FAÐIR ÞINN GETUR EKKI GERT NEITT Á FASTANDI MAGA! MANNAUÐS- STJÓRNUN Víkverji á það til að gleyma sér viðað skoða möguleika á ferðum til útlanda. Fyrir nokkrum árum var þetta ekkert mál, því framboðið þvældist ekki fyrir, en nú er öldin önnur og ekki fyrir alla að komast í gegnum fargjaldafrumskóginn. x x x Víkverji er af gamla skólanum ogvill fá að vita hvað flugið kostar. Þetta er ekkert mál þegar miðar eru keyptir hjá Icelandair vegna þess að þar er ein taska innifalin í verðinu, handtaska og sæti. Og að sjálfsögðu allir skattar og gjöld. x x x Málið vandast þegar flogið er meðsvokölluðum lágfargjalda- félögum. Þá er uppgefið verð gjarnan aðeins fyrir flugið. Síðan kostar svo og svo mikið fyrir innritaðan far- angur, ákveðið gjald er fyrir handfar- angur, annað fyrir ákveðið sæti og við bætast skattar og önnur gjöld. End- anlegt verð er því í flestum tilfellum langt frá því sem fyrst er gefið upp. x x x Áður en tölvan tók völdin fóruvæntanlegir ferðalangar á ferða- skrifstofu, þar sem kunnáttufólk gekk frá ferðunum. Í minningunni gengu viðskiptin vel fyrir sig, aldrei vandamál og allir ánægðir. Þó enn sé hægt að fá þjónustu á svona skrif- stofum er hún ekki eins og áður, auk þess sem kostnaðurinn er meiri. Á móti kemur að minni líkur eru á því að vitleysur séu gerðar með tilheyr- andi óþægindum. x x x Víkverji reynir að sýna fyrirhyggjuog ákveða flug með löngum fyrir- vara. Það er þó ekki hlaupið að því. Sjái hann hagstætt fargjald getur hann ekki tryggt sér það fyrr en hann hefur fengið frí úr vinnu á tilteknum tíma. Þegar það er fengið er ekki víst að góða verðið sé enn í boði og í raun mun líklegra að það hafi hækkað. En Víkverji hefur komið sér upp ákveðnu kerfi og nú er svo komið að hann verður að bíða við tölvuna því yfirleitt er ekki hægt að panta flug á netinu nema með innan við árs fyrir- vara. Það er því of snemmt að gera áætlanir í sambandi við flug í nóv- ember 2016 og síðar. víkverji@mbl.is Víkverji Kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleik- urinn fellur aldrei úr gildi. I. Kor 13:7.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.