Morgunblaðið - 30.10.2015, Síða 6

Morgunblaðið - 30.10.2015, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015 Útför Þórs Vilhjálmssonar, fyrrverandi hæsta- réttardómara, fór fram frá Langholtskirkju í gær. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir jarðsöng, en hún er systir Þórs. Fjölmenni var við athöfn- ina. Líkmenn voru Þorsteinn Pálsson, Markús Sigurbjörnsson, Ragnhildur Helgadóttir, Hjör- dís Hákonardóttir, Davíð Þór Björgvinsson, Stef- án Már Stefánsson, Ágústa Guðmundsdóttir og Guðrún Erlendsdóttir. Útför Þórs Vilhjálmssonar Morgunblaðið/Árni Sæberg Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra segir lækkun tryggingagjalds, sem mótvægisaðgerð vegna mikilla launahækkana, vera möguleika, en fyrst þurfi að kanna ýmis áhrif kjarasamninganna á ríkissjóð. Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, hefur sagt í tengslum við Salek- samninginn, að SA vilji ræða við ríkið um lækkun tryggingagjalds um 2-2,5%. „Ég hyggst vinna þetta í áföng- um. Fyrsta skrefið er að átta sig á því hvaða áhrif þessar breyting- ar sem eru að verða á kjara- samningum munu hafa á fjár- lög næsta árs, bæði á tekju- og gjaldahliðinni,“ sagði Bjarni í samtali við Morg- unblaðið í gær. Fjármálaráðherra segir að næsta skrefið verði að skoða til hvers kon- ar efnahagslegra mótvægisaðgerða þarf að grípa. „Við erum þegar byrjuð að skoða hvað gæti komið til greina í þeim efnum. Það liggur í hlutarins eðli að það þarf að vera einhver samstaða og sátt um það hvernig farið verður í þá hluti. Það er í raun ekki fyrr en við erum búin að þessu, sem hægt verður að taka ákvarðanir,“ sagði Bjarni. Gæti leitt til breytinga Bjarni bendir á að kjarasamning- arnir gætu mögulega leitt til breyt- inga á bótafjárhæðum. „Það sem helst gæti gert ríkinu erfitt fyrir, með lækkun tryggingagjaldsins, þó það eigi vissulega að vera næst á dagskrá til lækkunar, er ef kemur til þess að bætur almannatrygginga hækka verulega á sama tíma, því þá þarf ríkið sjálft án tryggingagjalds að fjármagna stærri hlut bótanna og verða af tekjum vegna trygginga- gjaldsins,“ sagði fjármálaráðherra. Bjarni kveðst telja að alla tíð hafi skort sameiginlegan skilning á því undir hversu stórum hluta almanna- tryggingakerfisins almenni hluti tryggingagjaldsins eigi að standa. „Af hálfu ríkisins hefur alltaf verið litið þannig á að tryggingagjaldinu sé ætlað að standa undir slysa- og lífeyrisbótum almannatrygginga- kerfisins, að minnsta kosti að veru- legu leyti,“ sagði Bjarni. Lækkun gjalds möguleiki  Lækkun tryggingagjalds þarf að skoðast í samhengi við mögulegar hækkanir á almannabótum, segir fjármálaráðherra  Málið verður skoðað í áföngum Bjarni Benediktsson Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þetta var tímamótaþing því áhug- inn fyrir norrænu samstarfi hefur aldrei verið meiri og við fundum það á samtali okar við forsætisráð- herrana að ríkur vilji er til aukins samstarfs,“ segir Höskuldur Þór- hallsson, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, um niðurstöðu Norðurlanda- ráðsþingsins sem haldið var í Reykjavík dag- ana 27.-29. októ- ber og lauk því í gær. Meginsýn þingsins að þessu sinni var norræn framtíðarsýn og alþjóðastjórnmál og hvernig væri hægt að stuðla að nánara samstarfi á Norðurlöndunum. Að ráðinu standa fimm sjálfstæðar þjóðir ásamt þremur sjálfstjórnarríkjum. Róttækar breytingatillögur voru samþykktar sem litu að því að gera starfið dýnamískara og skilvirkara. „Við viljum að það séu betri tengsl milli Norðurlandaráðs og þjóðþing- anna.“ Togstreita vegna flóttamanna „Það er skýr vilji að Norðurlöndin vinni saman að lausn á flótta- mannavandanum,“ segir Höskuldur en fundurinn hafi fyrst og fremst verið hugsaður til að byrja um- ræðuna á milli þingmanna og Norð- urlandanna, fá upplýsingar og setj- ast niður með forsætisráðherrunum. „Það var mjög skýrt og sam- hljómur um að þessi vandi gæti leitt til togstreitu á milli landanna ef hvert land bregst við á sinn hátt. Við vöruðum við því að þessi tog- streita gæti aukist og það væri þvert á það sem við vildum.“ Lagt var til að regluverk yrði samræmt varðandi það hvernig tekið væri á móti flóttamönnum og hverjir fengju hæli. „Forsætisráðherrarnir tóku vel í þá hugmynd að halda samstarfinu áfram en við munum líka taka þetta upp innan þjóðþing- anna og láta vita að það sé sam- hugur á milli landanna um aukna samvinnu,“ segir hann. Þá voru samskipti Norður- landanna við Rússland einnig rædd ásamt deilunni í Úkraínu. „Við feng- um gesti og sérfræðinga bæði frá OECD og Evrópusambandinu til að fara yfir þetta og ræddum þetta í þaula.“ Tillaga um Ísrael og Palestínu Samþykkt var einnig tillaga á þinginu er varðaði samskipti Ísrael og Palestínu, en Höskuldur stóð að henni ásamt fleirum. „Við eigum að hvetja ríkisstjórnir okkar að beita sér fyrir friði á milli þessara landa og að við viðurkennum þessa tveggja ríkja lausn,“ segir hann en reynt hafi verið með þessu að koma til móts við sem flesta innan Norð- urlandaráðs. Velferðarmál bar einnig á góma þar sem nefndartillögur voru meðal annars lagðar fram um geðheilsu barna og ungmenna á Norður- löndum og að auka þyrfti þekkingu á fíkniefnavandanum. Margar nýjar tillögur þingmanna litu einnig dags- ins ljós. Mikill áhugi á norrænu samstarfi Morgunblaðið/Árni Sæberg Samstarf Norðurlandaráðsþing var haldið í Reykjavík 27.-29. okt. í 67 sinn. Um tímamótaþing var að ræða og ríkur samstarfsvilji myndaðist.  Ríkur vilji til aukins samstarfs kom í ljós á Norðurlandaráðsþingi  Flóttamannavandinn talinn geta valdið togstreitu milli landa  Tveggja ríkja lausn samþykkt um stöðu Ísraels og Palestínu Höskuldur Þórhallsson Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og sýknaði Gunnar Smára Egilsson af kröfu tveggja framkvæmda- stjóra sem komu að útgáfu fríblaðs í Danmörku um að viðurkennt væri að hann bæri ábyrgð á fjártjóni þeirra. Svenn Aage Hylleröd Dam og Morten Nissen Nielsen höfðuðu mál gegn Gunnari Smára þar sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir fjár- tjóni vegna hlutahafasamnings sem hann skrifaði undir án umboðs. Hér- aðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í desember að þeir ættu skaðabóta- kröfu á hendur Gunnari Smára. Hæstiréttur tók hins vegar annan pól í hæðina. Í dómi hans segir að ekki sé sýnt fram á að orsakatengsl hafi verið á milli ætlaðrar saknæmr- ar háttsemi Gunnars Smára og þess tjóns sem tvímenningarnir hefðu orðið fyrir. Með vísan til þess að bú 365 Media Scandinavia hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta árið 2008 og skipt- unum lokið sem eignalausu ári síðar, hefði mönnunum tveimur ekki verið kleift að efna hluthafasamkomulagið af sinni hálfu. Ómöguleiki þeirra til réttra efnda yrði samkvæmt þessu ekki rakinn til ætlaðs umboðsskorts Gunnars Smára við gerð sam- komulagsins heldur gjaldþrots 365 Media Scandinavia. Gunnar Smári sýknaður Gunnar Smári Egilsson  Hæstiréttur sneri við dómi Héraðsdóms Tvær flugvélar, Boeing 757-þota Icelandair og Fokker-vél Flugfélags Íslands, þurftu að hætta við lend- ingu á Egilsstaðaflugvelli í gær vegna mikillar ókyrrðar. Þota Icelandair var á leið til Egils- staða frá Keflavíkurflugvelli í þeim tilgangi að sækja þar farþega og fljúga þeim beint til Dublin á Írlandi. Sinfóníuhljómsveit Íslands ætlaði til Egilsstaða í gær til að halda þar tón- leika, en þeim var frestað. Veður haml- aði lendingu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.