Morgunblaðið - 10.11.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.11.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hæfni þín til að leita frumlegra lausna á vandamálum kemur fólki á óvart í dag. Vertu þó viðbúinn því að brugðið geti til beggja vona. 20. apríl - 20. maí  Naut Sýndu nú hvað í þér býr og taktu til hendinni við húsverkin. Nýstárlegar hug- myndir virka sem vítamínsprauta, en bara ef þú ert nógu opinn fyrir þeim. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heil- anum í dag. Forherðing hugans er hreint böl. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Leggðu þig fram um að ná jafnvægi í lífi þínu. Með því að sýna þínar bestu hliðar færðu góðan vin til að deila með þér ánægju- stundunum. Ótilgreint hópverkefni verður að algerri flækju. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér vegnar vel ef þú vinnur undirbún- ingsvinnnuna þína. Varastu að eyða of mikl- um peningum í blessuð börnin eða elskuna þína. Hversdagsleg sambönd fá á sig nýja mynd. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú leitar eftir öðruvísi skemmtun í dag. Ef þú leynir einhverju áttu það á hættu að ná ekki takmarkinu og verða þar með fyrir vonbrigðum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér finnst ábyrgð þín svo yfirþyrmandi að það dregur úr sjálfstrausti þínu og fram- kvæmdagleði. Ef þú veist ekki hvað þú vilt gera ættirðu að bíða átekta. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Samtöl við yfirboðara munu koma þér á óvart í dag. Leitaðu hjálpar því þér er nauðsynlegt að fá þetta mál á hreint. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt erfitt með að fyrirgefa það sem gert var á þinn hlut. Spyrðu sjálfa/n þig að því hvort rifrildið snúist ekki í raun og veru um eitthvað allt annað. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu þér ekki bregða þótt bankað sé upp á og tíðindi sögð frá fortíðinni. Fjár- hagslegur sem og annar hagnýtur stuðningur er kannski ekki það sem hann virðist vera. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þig langar til að finna einhvern sem þú getur deilt hugmyndum þínum með. Einbeittu þér að eigin starfi. Hallaðu þér aftur og leyfðu fólki að stjana við þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér er óhætt að setja markið hátt því þú munt ná því. Varastu tæknimál. Auður og örlæti annarra munu á einhvern hátt koma þér til góða. Páll Imsland heilsaði leirliði áenn einum rökum deginum. – „Þessar tvær limrur um búskapar- og húsháttu í Odda eru innbyrðis ótengdar enda ortar sín í hvorri andvökunni. Þetta gætu þess vegna verið tveir Oddar eða tvennir tímar:“ Þorlákur þrællinn í Odda þrálegur hafði á kodda, en risi’ hann í sæti það reyndust slík læti, að í honum greindu menn grodda. Í Odda bjó forkurinn Anna sem ástleitni vildi hreint banna: „Það er útúr kú að eiga sér bú, en ánetjast rúmsiðum manna.“ Ármann Þorgrímsson skrifar í Leirinn á laugardag að samkvæmt óbirtri og óstaðfestri könnun á al- þjóðavettvangi séu Íslendingar með flestar erlendar eiginkonur miðað við fólksfjölda. Íslands hróður alls staðar eykst um slóðir veraldar okkur bjóðast innfluttar allra þjóða kerlingar. Gústi Mar bætir við: Á útlendar mér allvel líst ýmsu má nú fórna. Þýðlyndar og þykja víst þægilegri að stjórna. Hallmundur Kristinsson yrkir á Boðnarmiði: Á laugardagskvöldum er friður á fési. Fáir virðast á netinu. Nú er rólegt á Reykjanesi; réttast að kúra í fletinu. Næsta dag bætir hann við: Rignir enn á lög og láð. Í laumi klukkan gengur. Kannski væri kostaráð að kúra aðeins lengur! Benedikt Jóhannsson dregur lær- dóm af sögunni: Helga menn getur hent þeir tapi hófstillingu á sínu skapi og með vel völdum orðum þeir velti um borðum víxlaranna, það gerðist forðum. Ármann Þorgrímsson veltir sög- unni einnig fyrir sér: „Skjaldmærin sagði á málþingi á Bifröst að öll lof- orðin stæðu eins og stafur á bók. Oft hún þetta endurtók – ekki gat þó heimildar – „Standa eins og stafur á bók stærstu loforð sögunnar“. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Odda, eiginkonum og sögunni Í klípu „HANN MISSTI MJÚKA STARFIÐ SITT. HANN FÉKK HÁLFS ÁRS LAUN – OG UPPÁHALDSPÚÐANN SINN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VIL OPNA SAMEIGINLEGAN REIKNING MEÐ EINHVERJUM SEM Á SAND AF SEÐLUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vakna og heyra í honum við hlið þér. HVERNIG GENGUR? AAA, TÚNFISKS- ANDREMMA ORUSTUÞREYTA ER ÁHÆTTA Í MÍNU STARFI… EN ÞÍNU? AÐSKILNAÐAR- KVÍÐI Víkverji brá sér sem snöggvast íKolaportið um helgina, til að kaupa þar bók sem hann hafði lengi leitað. Bóksalinn hafði hringt hróð- ugur og tilkynnt að bókin væri loks- ins komin í leitirnar. x x x Þegar bókin góða var komin í pokavar Víkverji á útleið er hann ákvað að leggja smá lykkju á leið sína og grípa með einn kleinupoka með sunnudagskaffinu. x x x Við kaupin á kleinunum spurði sölu-maðurinn, kátur í bragði: „Hvernig gengur í golfinu?“ „Ha, golfinu?“ hváði Víkverji og fór hálfpartinn í kleinu, í orðsins fyllstu merkingu. Horfði í kringum sig flóttalegur í leit að falinni myndavél, átti ekki beint von á þessari spurn- ingu. „Já, ertu ekki í golfi?“ spurði klein- umaðurinn, sem Víkverji kannaðist ekkert við, sama hvað hann reyndi að ráða í hvaða maður þetta væri, sem Víkverji sá ekki betur en að væri með hárkollu. „Jú, maður er eitthvað að brölta í þessu,“ svaraði Víkverji loks. „Og tókst þér að lækka forgjöf- ina?“ hélt maðurinn áfram. „Uhhh jú, reyndar, um heila þrjá,“ viðurkenndi Víkverji, lúmskt stoltur á svip og dálítið upp með sér með þessa óvæntu athygli kleinumannsins. „Góður,“ sagði hann og rétti klein- urnar yfir borðið. x x x Víkverji var farinn að ímynda sérað maðurinn væri miðill í þokka- bót, dálítið þesslegur, þegar skýr- ingin kom: „Ég sá á annarri erminni að þú hlytir að vera í golfi fyrst þú klæðist Galvin Green,“ sagði kleinumaðurinn með bros á vör og bætti við: „Eigðu góðan dag.“ x x x Víkverji gekk burtu með kleinurnarog bókina, einnig með bros á vör yfir þessu óvenjulega spjalli. Líklega betra að hafa lækkað forgjöfina meira, næst þegar kleinur verða keyptar í Kolaportinu! víkverji@mbl.is Víkverji Lát engan líta smáum augum á æsku þína en ver fyrirmynd trúaðra í orði og hegðun, í kærleika, trú og hreinlífi. (1.Tím. 4.12) Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN Snjallara heyrnartæki Beltone First™ Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu og prófaðu, það er engu líkt! Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.