Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.02.2016, Síða 12
FORSETAVAKTIN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.2. 2016
S
tundum er sagt að vika
geti verið langur tími í
pólitík. Þá segir það sig
sjálft að sautján slíkar
eru langur tími, sem bið
eftir kosningum eða baráttu, eða í
kosningabaráttu.
Nýr forseti lýðveldisins verður
kjörinn 25. júní, eftir sautján vikur,
og því getur margt gerst – og
margt á eftir að gerast. Það er
næsta víst.
Engin er kosningabaráttan hafin
í raun þótt nokkrir hafi þegar til-
kynnt að þeir ætli að bjóða sig fram
og sumir séu jafnvel þó nokkuð
áberandi á netinu.
Í vikunni var nöfnum þriggja
kvenna bætt í hugmyndapottinn.
Engin þeirra hefur lýst yfir
framboði en allar liggja undir feldi
vegna áskorana.
Allar þrjár hafa lengi verið áber-
andi í samfélaginu um árabil:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
fyrrverandi alþingismaður, mennta-
málaráðherra og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofnunar
Íslands, og Sigrún Stefánsdóttir,
útvarps- og sjónvarpskona til
margra ára og nú forseti hug- og
félagsvísindasviðs Háskólans á Ak-
ureyri.
Nafn Þorgerðar var fyrst nefnt,
á þriðjudaginn, og staðfesti hún þá
dvölina undir feldinum. Annað mál
átti þó hug hennar í vikunni. Hún
skrifaði á Facebook-síðu sína degi
síðar: „Pabbi minn er níræður í
dag. Þessi listamaður, hestamaður,
höfðingi, skáti og töffari, sem er þó
fyrst og síðast pabbi, hefur verið
mér ómetanlegur styrkur í gegnum
tíðina. Mamma og pabbi hafa hvatt
okkur systur áfram til að vera sjálf-
stæðar og hugrakkar samhliða því
að veita okkur hlýju og öruggt
heimili. Það er ekki alltaf sjálf-
gefið.“
Faðir Þorgerðar er Gunnar
Eyjólfsson, einn þekktasti leikari
þjóðarinnar til áratuga.
Á fimmtudaginn bárust svo nöfn
hinna tveggja til þjóðarinnar.
Hópur stuðningsmanna Salvarar
sendi frá sér áskorun þar sem hún
er eindregið hvött til að gefa kost á
sér og Sigrún upplýsti í samtali við
vikublaðið Akureyri að margir
hefðu hvatt hana til að bjóða sig
fram.
Í yfirlýsingu stuðningsmanna
Salvarar segir meðal annars:
„Reynsla hennar og menntun hent-
ar vel til að sinna af þekkingu og
alúð þeim vandasömu verkefnum
sem fylgja starfi forseta Íslands.“
Þar segir enn fremur að sem for-
stöðumaður Siðfræðistofnunar Há-
skóla Íslands þekki hún vel til allra
helstu álitamála „þar sem mik-
ilvægt er að taka yfirvegaðar
ákvarðanir. Hennar helst styrkur
liggur meðal annars í því að hún
ígrundar vel afstöðu sína til allra
mála sem á hennar borð rata“.
Nafn Salvarar bar einnig á góma
fyrir síðustu forsetakosningar,
2012, en þá ákvað hún að bjóða sig
ekki fram.
Dr. Sigrún Stefánsdóttir verður
sjötug á næsta ári og verður þá að
hætta í föstu starfi hjá ríkinu. Hún
mun þó halda áfram stundakennslu.
„Ég held að samfélagið hafi ekki
ráð á því að senda reynslumikið
fólk með fulla starfsorku heim í eld-
húskrókinn. Ef heilsan og hausinn
klikkar ekki ætti fólk að fá að halda
áfram. Og ég held að það sé hvort
tveggja í lagi hjá mér,“ segir hún í
Akureyri vikublaði. „Burtséð frá
því finnst mér þessar reglur úrelt-
ar. Í Bandaríkjunum er sjötíu ekki
lengur viðmiðið – þú hættir þegar
þú vilt hætta. Það er athyglisvert
að sjá hversu gamlir forseta-
frambjóðendur eru þar í landi. Það
segir sitt og kannski ætti ég bara
að feta í þeirra fótspor!“ segir hún í
blaðinu og játar því í framhaldinu
að margir hafi ýtt á og hvatt hana
til að bjóða sig fram í embætti for-
seta Íslands. „En lengra er það
ekki komið. Ég hef bara legið undir
feldi og metið stöðuna,“ segir Sig-
rún Stefánsdóttir.
Liggja allir vegir til Bessastaða?
Hugsanlegir kven-
frambjóðendur áttu
sviðið á forsetavaktinni
í nýliðinni viku. Enginn
þeirra hefur að vísu lýst
yfir framboði en skorað
hefur verið á allar þrjár
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Margir hafa komið við að Bessastöðum og stundum komið í röð. Margir íhuga nú að bjóða sig þar fram til búsetu næstu fjögur ár og sumir ákveðnir í því.
Morgunblaðið/Eggert
Nokkrir hafa lýst því yfir að
þeir verði í framboði í forseta-
kosningunum í sumar og án
efa á sá listi eftir að lengjast
töluvert ef svo fer sem horfir.
Ástþór Magnússon athafna-
maður, Hildur Þórðardóttir,
heilari og þjóðfræðingur, El-
ísabet Kristín Jökulsdóttir rit-
höfundur og Sturla Jónsson bíl-
stjóri eru öll ákveðin eftir því
sem næst verður komist og
eru að safna meðmælendum á
lista.
Auk kvennanna þriggja, sem
nefndar eru hér að ofan, hefur
formlega verið skorað á Vigfús
Bjarna Albertsson, prest á
Landspítalanum, og hann er að
hugsa sinn gang.
Í könnun Félagsvísindastofn-
unar fyrir Sunnudagsblað
Morgunblaðsins í janúar naut
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, mests fylgis og rithöfund-
urinn Ólafur Jóhann Ólafsson
kom næstur. Hvorugt hyggst
gefa kost á sér.
Þorgrímur Þráinsson rithöf-
undur gaf í skyn að hann hygði
á framboð en hefur ekki
endanlega gert upp hug sinn.
Ólafur Ragnar Grímsson á kjördag 2012. Hann hefur verið forseti í 20 ár.
Morgunblaðið/Eggert
LÝÐURINN BÍÐUR SPENNTUR
Hve margir fara fram?
17
VIKUR TIL KOSNINGA
Cuxhavengata 1 • Hafnarfirði • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is
Við horfum til hafs
Sérhæfum okkur í sölu á:
Grunnur að góðum viðskiptum
• Sjávarútvegsfyrirtækjum
• Aflaheimildum
• Skipum & bátum