Morgunblaðið - 10.03.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Tekin verður ákvörðun um það á
næstu dögum hverjar arðgreiðslur
hjá tryggingafélaginu Verði verða
vegna síðasta árs að sögn Guðmund-
ar Jónssonar, forstjóra félagsins, en
aðalfundur félagsins verður haldinn
18. mars. Færeyski bankinn Bank-
Nordik, sem á allt hlutafé í Verði,
hefur ekki gefið upp fyrirætlanir sín-
ar að sögn Guðmundar en hann seg-
ist eiga von á að það liggi fyrir í allra
síðasta lagi í næstu viku.
Mikil umræða hefur verið að und-
anförnu um arðgreiðslur trygginga-
félaga en þau þrjú tryggingafélög
sem skráð eru á markað, það er
Sjóvá, VÍS og TM hafa lagt fram til-
lögur að arðgreiðslum upp á samtals
9,6 milljarða
króna. VÍS
hyggst greiða
hæsta arðinn eða
um 5 milljarða
króna en hjá
Sjóvá er talan 3,1
milljarður.
Guðmundur
segir að Vörður
hafi greitt arð
upp á 300 milljón-
ir vegna ársins 2014 og 209 milljónir
vegna 2013 en það hafi verið í einu
skiptin á undanförnum níu árum sem
greiddur hafi verið arður út úr félag-
inu. Það samsvari um 10% vöxtum á
eigin fé Varðar bæði árin.
„Við erum í sjálfu sér á allt öðrum
stað með þetta fyrirtæki. Við höfum
unnið að uppbyggingu þess á síðustu
níu árum,“ segir Guðmundur. Félag-
ið liggi þannig ekki á neinum göml-
um sjóðum eins og samkeppnisaðil-
arnir. Markmiðið hjá Verði hafi verið
að styrkja rekstur félagsins sem hafi
gengið bærilega vel.
Greiðslurnar vonandi hóflegar
Spurður hvort búast megi við því
að arðgreiðslur úr Verði verið þá í
hóflegri kantinum miðað við þær töl-
ur sem rætt hafi verið um annars
staðar segist Guðmundur binda við
það vonir.
Skrifað var undir samning um sölu
Varðar síðasta haust. Kaupandinn er
Arion banki en salan er enn til skoð-
unar hjá þar til bærum opinberum
aðilum. Þar til salan gengur endan-
lega í gegn fer BankNordik fyrir vik-
ið með forræði þess.
Óvíst með greiðslurnar
Ákvörðun tekin um arðgreiðslur Varðar á næstu dögum
Guðmundur
Jónsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sala á veitingum og varningi á Kefla-
víkurflugvelli í byrjun árs er mun
meiri en sömu mánuði í fyrra.
Samkvæmt vefsíðu Isavia fjölgaði
farþegum um 25,8% milli ára í jan-
úar og um 40,8% í febrúar.
Gestur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri Elko, segir söluna á fyrstu
mánuðum ársins vera umfram spár
fyrirtækisins í fyrra. Salan sé bæði
að aukast til erlendra og innlendra
ferðamanna. Veltuaukningin sé þó
ekki jafn mikil og fjölgun farþega.
Meðal fyrirtækja sem starfa á
Keflavíkurflugvelli er Lagardére
Travel Retail (LTR). Undir rekstur
LTR heyrir m.a. rekstur Pure Food
Hall, Nord, Segafredo, Mathúss,
Mathúss suður og Loksins bars.
Á vefsíðu félagsins er m.a. auglýst
eftir kokkum, aðstoðarkokkum, bar-
og kaffibarþjónum, fólki í eldhús,
starfsfólki í framleiðslu og fólki í
þjónustu- og afgreiðslustörf.
Margrét Mekkin, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs LTR, segir um
50 störf í boði. Um 200 manns muni
starfa hjá félaginu í sumar.
Hún segir Suðurnesjamenn hafa
sýnt störfunum áhuga. Hins vegar
hafi borist fáar umsóknir frá höfuð-
borgarsvæðinu. Umsóknarfrestur er
til og með 31. mars.
Spurð hvort leitað verði að starfs-
fólki í útlöndum segir Margrét það
ekki til skoðunar að sinni.
Nærri sjö milljónir farþega
Samkvæmt uppfærðri spá Isavia,
sem birt var um mánaðamótin, munu
6,66 milljónir farþega fara um Kefla-
víkurflugvöll árið 2016, sem yrði 37%
aukning milli ára.
Margrét segir LTR finna vel fyrir
þessari aukningu. Umsvifin haldist í
hendur við tugprósenta fjölgun far-
þega í janúar og febrúar.
Spurð hvort veitingaþjónustan á
Keflavíkurflugvelli muni anna
væntanlegri fjölgun ferðamanna
segir Margrét ljóst að stækka þurfi
flugstöðina. Hún harmar neikvæða
umræðu um flugvöllinn.
„Allir eru að reyna sitt besta. Mér
finnst þessi neikvæða umræða oft á
tíðum óverðskulduð. Það er verið að
vinna að því að stækka, laga og bæta
til að taka á móti öllum þessum
fjölda ferðamanna. Margir eru að
ferðast á sama tíma á morgnana.
Álagið á flugstöðinni er misjafnt yfir
daginn. Gagnrýnin á Isavia er að
mínu mati óverðskulduð,“ segir hún.
Daníel Kári Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Joe & the Juice á Ís-
landi, segir að í febrúar hafi verið ár
liðið frá opnun veitingastaðar keðj-
unnar á neðri hæð flugstöðvarinnar.
Veltuaukningin á þeim stað í febrúar
sé veruleg og nálgist 40% fjölgun
farþega í mánuðinum. Aukningin í
sölu á efri hæðinni komi ekki í ljós
fyrr en í apríl, þegar ár verður liðið
frá opnun veitingastaðar Joe & the
Juice á hæðinni. Daníel Kári áætlar
að um 60 manns muni starfa hjá Joe
& the Juice á flugvellinum í sumar.
Það sé hámarksfjöldi sem núverandi
fyrirkomulag bjóði upp á. Komið sé
að þolmörkum í því efni.
Mikil söluaukning á flugvellinum
Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs LTR segir veitingasölu hafa aukist um tugi prósenta í upphafi árs
Verða með 200 manns í vinnu í sumar Salan hjá Elko er meiri en fyrirtækið áætlaði á síðasta ári
Morgunblaðið/Þórður
Á Keflavíkurflugvelli Farþegum á vellinum fjölgar ár frá ári.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Íbúar við Kennaraháskólareitinn
við Stakkahlíð lýstu óánægju sinni
með nýtt skipulag svæðisins á
kynningarfundi á vegum umhverfis-
og skipulagssviðs Reykjavíkur-
borgar, sem haldinn var í húsa-
kynnum borgarinnar í Borgartúni í
gær.
Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri
Háteigsskóla, var á fundinum og
segir fólk fyrst og fremst hafa
áhyggjur af byggingarmagni sem
fyrirhugað er á svæðinu.
„Þetta var nokkuð fjölmennur
fundur en ég mætti á hann fyrst og
fremst sem skólastjóri Háteigsskóla
enda snertir uppbygging á svæðinu
skólalóðina okkar og einnig okkar
nánasta umhverfi. Byggingar-
magnið er töluvert og fólk hafði
áhyggjur af því og við í Háteigs-
skóla deilum þeim áhyggjum.“
Aukin umferð og fá bílastæði
Með nýrri byggð á svæðinu eykst
enn umferð á því en fyrir eru stórir
vinnustaðir á borð við Háskóla Ís-
lands, sem rekur þær byggingar
sem áður voru hluti af Kennarahá-
skólanum, Tækniskólinn, Ísaks-
skóli, 365 miðlar og að sjálfsögðu
Háteigsskóli. „Umferðartopparnir
við upphaf og lok dags valda íbúum
áhyggjum og við teljum t.d. háska
við Ísaksskóla og á horninu við 365
þegar umferð er sem mest á svæð-
inu. Íbúar eru því eðlilega áhyggju-
fullir yfir því að bæta eigi við jafn
mörgum íbúum og raun ber vitni,“
segir Ásgeir en samkvæmt tillögu
A2F arkitekta felur uppbygging á
svæðinu í sér allt að 60 íbúðir fyrir
eldri borgara og 100 íbúðir fyrir
námsmenn.
„Gert er ráð fyrir því að það
verði eitt bílastæði fyrir hverjar
fimm stúdentaíbúðir á svæðinu en
eitthvað fleiri fyrir íbúðir eldri
borgara. Þá eiga stúdentar að geta
samnýtt bílastæði með háskólan-
um.“
Ásgeir segir að einhverjir íbúar
hafi gengið um svæðið fyrir fundinn
og talið fjölda bíla og bílastæða.
Það hafi verið ályktun þeirra að
nýtt skipulag gerði ráð fyrir of
fáum bílastæðum.
Háteigsskóli þarf að stækka
Spurður hvort stækka þurfi Há-
teigsskóla vegna fyrirhugaðrar
þéttingar á svæðinu segir Ásgeir
svo ekki vera.
„Við þurfum að stækka skólann
en ekki vegna þessara fram-
kvæmda. Stúdentaíbúum fylgja allt-
af einhver börn, en ekki svo mikill
fjöldi að skólinn ráði ekki við það.
Heldur myndi ég halda að byggð í
Þverholti kalli á frekari stækkun.
Skólinn nýtir nú þegar hvern fer-
metra mjög vel enda fermetrar á
hvern nemenda þeir næstfæstu í
borginni.“
Áætlað er að nemendafjöldinn
fari vaxandi á næstu árum og vonar
Ásgeir að áætlanir um stækkun
skólans gangi eftir.
„Miðað við það skipulag sem okk-
ur var kynnt á ekki að ganga á
skólalóðina og það er gott að vita af
því að skólinn getur stækkað til
vesturs en það hefur legið fyrir að
stækka skólann og hönnunarferlið
ætti að hefjast aftur árið 2017 um
fyrirhugaða stækkun skólans.“
Ekki endanlegt skipulag
Fundurinn í gær var kynningar-
fundur fyrir íbúa svæðisins og segir
Ásgeir góðu fréttirnar þær að
skipulagið sé ekki endanlegt sem
verið var að kynna.
„Næsta skref er að setja þetta
skipulag í auglýsingu og þá gefst
fólki færi á að senda inn athuga-
semdir. Það geta því enn orðið
breytingar á þessu skipulagi. Við
höfum t.d. gert okkur vonir um að
miðsvæðið vestan við skólalóðina
okkar yrði stærra sameiginlegt opið
svæði,“ segir Ásgeir.
Íbúar óánægðir með byggingarmagn
Fjölsóttur kynningarfundur um deiliskipulagstillögu við Kennaraháskólareitinn við Stakkahlíð
Íbúar lýstu óánægju sinni á fundinum Óttast bílastæðavanda og stóraukna umferð í hverfinu
Tölvumynd/A2f arkitektar
Byggð 160 nýjar íbúðir verða reistar við gamla Kennaraháskólann. Hér er
tillaga að þéttingu byggðar, eins og sýnd var í bréfi til íbúa hverfisins.
Morgunblaðið/Golli
Kynning Fjöldi íbúa mætti til kynn-
ingarfundarins í Borgartúni í gær.
Ómissandi á pizzuna,
í ofn- og pastaréttina,
á tortillurnar og salatið.
Er nú á tilboði
Heimilis
RIFINN OSTUR
ÍSLENSKUR OSTUR
100%
370 g