Morgunblaðið - 10.03.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Illugi Gunnarsson, menningar- og
menntamálaráðherra, segir að brátt
ljúki vinnu við lokafrágang á þjón-
ustusamningi við Ríkisútvarpið í
ráðuneyti hans.
„Það liggur í hlutarins eðli, að
það verða gerðar ákveðnar breyt-
ingar á samningnum, því það verða
minni fjármunir úr að spila,“ sagði
Illugi í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Hann segir alveg ljóst að samn-
ingurinn verði innan þeirra marka
sem Alþingi Íslendinga hafi sett,
með ákvörðun um fjárframlög til
RÚV og ákvæðum fjárlaga um
þjónustugjöldin, enda sé ráðuneyt-
inu ekki stætt á neinu öðru.
Efnislega vildi menntamálaráð-
herra ekki úttala sig um helstu
breytingar á
samningnum.
Sagði að það biði
þess að vinnu við
samninginn væri
lokið.
„Í umræðum
um þjónustu-
samninginn við
RÚV á Alþingi
fyrir jól sagði ég,
að þegar hann
væri tilbúinn myndi ég vilja flytja
þinginu skýrslu um samninginn, svo
þingmenn fengju tækifæri til þess
að tjá sig um hann. Þetta hefur ekki
verið gert áður, en ég tel þetta vera
eðlilegan framgangsmáta,“ sagði Ill-
ugi. Hann segir að þessi áform hans
hafi í engu breyst, og hann muni
óska eftir því við forseta Alþingis að
hann búi til rými í dagskrá þingsins
til þess að ræða samninginn.
Styttist í þjón-
ustusamninginn
Ráðherra flytur þinginu skýrslu
Illugi
Gunnarsson
Fyrir fermingarnar
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
www.facebook.com/spennandi
BeChristensen & Industrial Jewellery
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Hverfisgötu 105
www.storarstelpur.is
Munið bílastæði
á bak við hús
Nýjar
vörur
Við erum á facebook
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Glæsilegur
sund-
fatnaður
Vertu upplýstur!
blattafram.is
SUMUM LEYNDARMÁLUM
Á EKKI Að ÞAGA YFIR.
GEYMIR ÞÚ MÖRG SLÍK?
HVAÐ MEÐ
KYNFERÐISOFBELDI?
Félög sjálfstæðismanna í Breiðholti boða til málfundar á
laugardaginn kemur, 12. mars.
Fundurinn fer fram í Félagsheimili sjálfstæðismanna í
Breiðholti við Álfabakka 14a (Mjódd) og hefst klukkan
12:00. Húsið opnar kl. 11:30.
Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi mun
fjalla um borgarmálin ásamt því að fara yfir
skipulags- og samgöngumál í Breiðholti.
Spjallfundur um
borgar- og skipulagsmál
Boðið verður upp á súpu auk þess sem heitt verður á könnunni.
Allir velkomnir.
Félög sjálfstæðismanna í Breiðholti.
Í tilefni af Hönnunarmars verða
hlutar Laugavegar og Skólavörðu-
stígs tímabundið gerðir að göngu-
götum og er það gert til að mæta
þörf vegna fjölmargra viðburða
sem verða í miðborginni.
Hönnunarmars er haldinn 10.-
13. mars og verða göngugötur
opnar eftir kl. 15.00 á fimmtudag
og föstudag, en allan daginn á
laugardag og sunnudag. Göngu-
götur vegna Hönnunarmars verða
annars vegar Laugavegurinn frá
Vatnsstíg að gatnamótum Banka-
strætis og Þingholtstrætis og hins
vegar Skólavörðustígur frá gatna-
mótum Bergstaðastrætis að
Bankastræti. Auk þessa verður
hluti Bergstaðastrætis frá Skóla-
vörðustíg eingöngu fyrir gangandi
vegfarendur, en Smiðjustígur, sem
kemur í beinu framhaldi af Berg-
staðastræti, er lokaður vegna
framkvæmda.
Hönnunarmars á göngugötum
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, hitti ásamt
leikmönnum og forráðamönnum Evrópumeistara Þýskalands Angelu
Merkel, kanslara Þýskalands, í Berlín í gær. Merkel bauð þeim til fund-
ar við sig eftir að þeir urðu meistarar í lok janúar en fyrst nú varð af
fundi þeirra. Merkel fylgdist grannt með gangi þýska liðsins á Evr-
ópumótinu og hafði m.a. í tvígang samband við Dag landsliðsþjálfara til
þess að árna honum og liðinu heilla. Leikmenn færðu Merkel áritaða
keppnistreyju og tóku „selfie“ með kanslaranum. Dagur er í efstu röð,
annar frá vinstri.
AFP
Gleði á fundi Merkel og
drengjanna hans Dags
mbl.is
alltaf - allstaðar
Gunnar Bragi Sveinsson, utanrík-
isráðherra Íslands, opnaði rakara-
stofuráðstefnu í höfuðstöðvum
Sameinuðu þjóðanna í Genf í gær
en ráðstefnan er haldin í tengslum
við Mannréttindaráð Sameinuðu
þjóðanna.
Hugmyndin að baki ráðstefn-
unni er að virkja karla í barátt-
unni fyrir jafnrétti kynjanna en
fyrsta ráðstefnan af þessu tagi var
haldin fyrir ári hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York. Fyrr í vik-
unni var efnt til rakarastof-
uráðstefnu hjá Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) en
markmiðið er að halda slíkar ráð-
stefnur í öllum helstu alþjóða-
stofnunum sem Ísland á aðild að.
Rakarastofuráðstefnu í
höfuðstöðvum SÞ í Genf
Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið
Jafnrétti Ráðstefnan var fjölsótt í
húsakynnum SÞ í Genf í gær.