Morgunblaðið - 10.03.2016, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru
margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi,
umhverfisvernd og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og
alhliða prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki,
stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt
að gera kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
BLI A3 MFP Line of the Year:
2011, 2012, 2013, 2014
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
BLI Pro Award:
2013, 2014
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Við betri helmingurinngengum inn í Vinabæ ogfundum um leið að viðværum komin í djúpu
bingólaugina. Sem betur fer kom í
ljós að starfsfólk Vinabæjar er al-
vant því að fá svona nýgræðinga,
og var boðið og búið að aðstoða
okkur við að kaupa miða og einn
penna, þegar í ljós kom að við
höfðum gleymt okkar heima.
Við gengum inn í salinn, sem
áður hýsti Tónabíó og fundum okk-
ur sæti í honum miðjum. Eftir á að
hyggja hefði líklega verið betra að
sitja uppi við vegginn, svona til
þess að fá betri yfirsýn yfir bingó-
ið, en það kom ekki að sök.
Við ákveðum að spyrja
Hrefnu, eina afgreiðslukonuna,
hvernig venjuleg umferð fari fram
og hún sýnir okkur það með glæsi-
brag. Á hverju bingóspjaldi eru
þrír rammar og í hverjum þeirra
raðast upp tölurnar frá Bjarna 1
og upp í Odd 75.
Í fyrstu lotu hverrar umferðar
er spilað þannig að fylla þarf eina
lárétta línu eða fjórar tölur sem
mynda lítið eða stórt horn í ramm-
anum. Í næstu lotu eru hornatöl-
urnar ekki hafðar með heldur fæst
bingó einfaldlega með því að fylla
út tvær láréttar línur í sama
ramma.
Í þriðju lotu er beðið um þrjár
útfylltar láréttar línur og þannig
koll af kolli þangað til einn ramm-
inn af þeim þremur sem eru á
spjaldinu er fylltur, og næsta um-
ferð hefst.
Happatölur og límstifti
Hrefna tekur sér sæti við tölv-
una sem sér um útdráttinn. Hún er
bingóstjórinn í fyrstu umferð.
„Happatalan er Bjarni 10!“ Við vit-
um ekki einu sinni hvað það þýðir.
Fyrsta umferðin hefst rólega. Við
hjónin höfum sitthvort bingóspjald-
ið, en ljóst er að margir kaupa
mörg spjöld fyrir hverja umferð.
Þar sem eitt spjald kostar að jafn-
aði 100 krónur er ekki hægt að
segja að þetta séu mikil fjárútlát á
spjald, en safnast þegar saman
kemur. Límstifti eru rétt fram og
til baka um salinn og margir kjósa
að líma spjöldin sín saman, þannig
að auðveldara sé að fylgjast með
hverri umferð fyrir sig. Sumir eru
meira að segja með sérstaka
Fætinum dýft í
djúpu bingólaugina
„Bingó í Vinabæ, bingó í Vinabæ,“ hljómaði gjarnan í skjáauglýsingum Sjón-
varpsins á fyrri tíð. En hvernig er stemningin á dæmigerðu bingókvöldi? Stefán
Gunnar Sveinsson freistaði gæfunnar í Vinabæ og komst að því að það er margt
sem hann á ólært um bingólistina.
Regnbogi Bingóspjöldin eru í öllum regnbogans litum.
Klassík Tromlan er til vara ef tölv-
an bilar, sem hefur ekki gerst enn.
Sleðahundaklúbbur Íslands heldur Ís-
landsmót sitt á sleða & skijöring á
Mývatni dagana um helgina, 12.-13.
mars. Keppt er í Neslandavík, bíla-
stæði, og mæting er við fuglasafnið.
Báða daga hefst keppni á sleðum
klukkan ellefu og skijöring er svo eft-
ir hádegishlé en keppni ætti að vera
lokið um fjögurleytið báða daga.
Sextíu þátttakendur hafa verið
skráðir til leiks og eru keppendur á
aldrinum 8-65 ára og hundarnir vel
yfir eitt hundrað.
Það má því búast við miklu stuði
og góðri skemmtun og enginn ætti að
vera svikinn af því að kíkja á þetta
áhugaverða mót.
Sleðahundaklúbbur Íslands var
stofnaður árið 2010. Markmiðið er að
efla iðkun sleðahundasports á Íslandi
og vera vettvangur fræðslu. Allir
hundar eru velkomnir í allt starf
klúbbsins, af hvaða kyni, stærð eða
uppruna sem þeir eru. Til að ganga í
klúbbinn er þó ekki nauðsynlegt að
eiga hund, segir á vefsíðu Sleða-
hundaklúbbs Íslands.
Vefsíðan www.sledahundar.is
Sleðahundar Yfir eitt hundrað hundar mæta til leiks á Íslandsmótið.
Sleðahundakeppni á Mývatni
Námskeiðin Börn og umhverfi eru 12
tíma námskeið sem haldin eru víða
um landið á vegum deilda Rauða
krossins á næstunni. Á námskeið-
unum, sem ætluð eru 12 ára og eldri,
er farið í ýmsa þætti sem varða um-
gengni og framkomu við börn. Rætt
er um árangursrík samskipti, aga,
umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og
leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun
um slysavarnir og algengar slysa-
hættur í umhverfinu ásamt ítarlegri
kennslu í skyndihjálp. Að auki fá
þátttakendur innsýn í sögu og starf
Rauða krossins.
Nánari upplýsingar: www.raudi-
krossinn.is
Námskeið Rauða krossins fyrir 12 ára og eldri víða um land
Börn og umhverfi
Morgunblaðið/Kristinn
Námskeið Á námskeiðinu er lögð
áhersla á slysavarnir og slysahættur.
Fyrir áhugasama bókasafnsgesti get-
ur verið úr vöndu að ráða um fimm-
og sexleytið í dag. Annars vegar geta
þeir farið í Borgarbókasafnið í Árbæ
til að bæta færni sína í förðun. Hins
vegar tekið þátt í kringlukasti með
því að skella sér í bókmenntagöngu í
Kringlunni og skoðað hvaða bók-
menntir þar leynast.
Kl. 17.15 fjallar Frigg Thorlacius
förðunarfræðingur um ýmsar teg-
undir förðunar, tækni, áhöld og
snyrtivörur í erindi sínu í Borgar-
bókasafninu í Árbæ. Hún sýnir
myndir, lýsir hvernig best sé að bera
sig að við förðunina og gefur góð
ráð. Gestir eru hvattir til að spyrja
og spjalla.
Skömmu síðar, eða kl. 18.30, býð-
ur Borgarbókasafnið í Kringlunni
upp á bókmenntagöngu í versl-
unarmiðstöðinni undir leiðsögn
Guttorms Þorsteinssonar.
Það vill svo skemmtilega til að
sögusvið margra bóka er í Kringlunni
eins og Guttormur mun greina frá.
Förðun eða bókmenntaganga? Hvort
tveggja ókeypis og allir velkomnir.
Fjölbreytt fimmtudagsdagskrá í borgarbókasöfnum
Bókmenntaganga í Kringlunni
og förðunarráð í Árbænum
Bókaganga Guttormur Þorsteinsson fjallar um bókmenntir í Kringlunni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.