Morgunblaðið - 10.03.2016, Síða 13
Morgunblaðið/Golli
Vinabær Bingóið er haldið á hverju miðvikudags- og sunnudagskvöldi í Vinabæ í Skipholti, gamla Tónabíói.
bingóstimpla. Hrefna syngur töl-
urnar þegar þær eru dregnar út.
Ég er heillaður af þessari aðferð,
en það dugir ekki til. „Þú hefur
marga hæfileika, en bingó er ekki
einn þeirra,“ segir konan mín hlæj-
andi við mig, eftir að fyrstu tíu töl-
urnar sem lesnar eru upp dreifast
fram og til baka um allt spjaldið.
„Bingó“ heyrist á hverju einasta
borði í kringum okkur, en ég er
alltaf einni röð á eftir.
Önnur umferð gengur svipað
„vel“. Ég er farinn að hugsa um
það sem amma mín sagði mér um
heppni í spilum og ástum. Ég get
einfaldlega ekki verið svona hepp-
inn í hvoru tveggja. Hvers vegna
konan mín vinnur ekki neitt er
hins vegar ofar mínum skilningi.
Svikinn af eigin tölu
Í þriðju umferð æsast leikar.
Nú er spilað upp á tíu línur, eða
tvo heila ramma, og spjaldið kostar
200 krónur. „Vinningur í þriðju
umferð fyrir tíu línur er 50.000
krónur,“ gellur í hljómkerfinu. Það
er ekkert annað. Ég verð að við-
urkenna að ég verð ögn spenntur
yfir tilhugsuninni að vinna þann
sjóð.
Vonin dvínar hins vegar þegar
fyrstu tölurnar eru lesnar. Enn og
aftur drögumst við hjónin aftur úr,
þar sem tölurnar lenda bara ekki á
réttum reitum á bingóspjaldinu.
Ég er rétt kominn með fjórar tölur
í röð þegar einhver hrópar bingó,
ein lína farin. Tvær línur og þrjár
fylgja fljótt í kjölfarið, og áður en
ég veit af er einhver búinn að fylla
heilan reit.
Sagan er þó ekki öll. Allt í
einu fara tölurnar „mínar“ að
koma, og fyrr en varir er ég mjög
ólíklega kominn í „bullandi séns“ á
Bingó!
Ég á tvær tölur eftir þegar
Hrefna les upp aðra þeirra.
„Nikulás fjörutíu og tveir!
Nikulás fjörutíu og tveir!“ syngur
hún.
„Jess!“ Nú skal það takast.
„Bingó!“ gellur í einu horninu.
„Æ, nei,“ hugsa ég. Svikinn af
minni eigin tölu. Ég átti aldrei
séns.
Í ljós kemur að nú eru þrír
saman með bingó, og deila þeir
vinningnum stóra á milli sín.
Stórfengleg sjón í salnum
Eftir þriðju umferðina er
snöggt salernishlé, en á meðan er
spilað svokallað „hraðbingó“. Ég
hef engan miða í það, þannig að ég
nýti tækifærið til þess að rétta úr
fótunum. Þegar ég sný aftur í sal-
inn blasir við mér stórfengleg sjón:
Upp undir 200 sálir af öllum stærð-
um og gerðum, tengdar saman um
eitt áhugamál: Bingó. Andrúms-
loftið er töfrum líkast.
Í bíómyndunum er hinn dæmi-
gerði bingóspilari miðaldra kona
með rúllur í hárinu. Og vissulega
er silfurliturinn áberandi í salnum.
Því fer hins vegar algjörlega fjarri
að steríótýpan sé rétt. Í salnum
eru ungir sem aldnir, vinahópar,
fjölskyldur, pör og einstæðingar.
Við eitt borðið eru þrjár kynslóðir
saman að spila bingó. Samveru-
stund fjölskyldunnar getur vart
orðið betri en þetta.
Eftirminnileg kvöldstund
Við hjónin spilum þrjár um-
ferðir í viðbót, en á venjulegu
bingókvöldi eru umferðirnar allt að
því tólf. Ekkert gengur frekar en
fyrri daginn, en það skiptir ekki
lengur máli. Kvöldið sem slíkt er
þegar orðið að eftirminnilegri
stund með konunni minni, sem ég
væri meira en til í að endurtaka.
Áður en blaðamaður fer vind-
ur hann sér að einum fastagest-
inum, Sigríði, og kemst að því að
hún hefur mætt í bingóið í hvert
einasta skipti sem það hafi verið
haldið síðan það hófst í Vinabæ,
eða í 26 ár. Sigríður þekkir starfs-
fólkið allt með nafni og segir mér
að hún eigi fullt af vinafólki í saln-
um, sem hún hafi kynnst í gegnum
bingóið. Ég spyr hana hvert að-
dráttarafl bingósins sé. Sigríður
svarar án þess að depla auga. „Það
er félagsskapurinn.“ Jafnvel þó að
ég þekki ekki neinn þarna inni skil
ég nákvæmlega hvað hún meinar.
Vinabær stendur nefnilega fyllilega
undir nafni.
Bingókvöld eru í Vinabæ á
miðvikudags- og sunnudags-
kvöldum og hefjast kl. 19.15.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
Bingó á rætur að rekja til ítalskra
lottóspila á 16. öld. Upphaf nútíma-
bingós má hins vegar rekja til ársins
1929 í Bandaríkjunum, þegar leik-
fangasölumaðurinn Edwin Lowe sá
sirkusfólk spila útgáfu af lottói sem
kallaðist „Beano“. Lowe þróaði sína
eigin útgáfu, en nafnið „Bingo!“
festist við spilið þegar kona ein mis-
mælti sig af spenningi þegar hún
ætlaði að hrópa „Beano!“
Nýlegt spil með fornar rætur
BINGÓ!
Bingó Spilið á rætur að rekja til Ítalíu.
ÁBYRGÐAR- OG ÞJÓNUSTUAÐILAR:
Optical Studio Smáralind
Optical Studio Keflavík
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði.
Allt að 50% ódýrari en
sambærileg vara á meginlandi
Evrópu.*
E R T U Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A ?
KAUPAUKI
Með öllum margskiptum glerjum**
fylgir annað par FRÍTTmeð í sama
styrkleika. Tilvalið sem sólgleraugu
eða varagleraugu.
* Chrome Hearts umgjörð m/ Hoya Progressive glerjum, 1.6 Index.
** Margskipt gler á við Varilux, Multifocal, Progressive og tvískipt gler.
Módel: Kristjana Dögg Jónsdóttir
Gleraugu: Chrome Hearts