Morgunblaðið - 10.03.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
Síminn er hættur að senda út RÚV
plús en sjónvarpsstöðin sendi út dag-
skrá RÚV með klukkutíma seinkun
á þeirri rás. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um að
hætta með RÚV
plús hjá Voda-
fone. Plús-stöðin
er ekki í rekstri
hjá RÚV og kem-
ur stofnuninni
þannig lagað ekk-
ert við.
„Ófærð sannaði
svo um munaði að
línuleg dagskrá
hefur ekki runnið
sitt skeið á enda,“ segir Gunnhildur
Arna Gunnarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans. „Plús-rásirnar ollu
kostnaði án þess að bæta miklu við
þjónustuna við viðskiptavini. Not-
endur velja orðið aðrar leiðir til að
fylgjast með uppáhaldsefninu sínu
og verður Síminn að taka mið af því.
Þeir kjósa til að mynda netið, Tíma-
flakk eða Frelsi. RÚV+-rásin var
því sú síðasta sem kvaddi og það nú
um mánaðamótin,“ segir Gunnhild-
ur. RÚV plús var eina plús-sjón-
varpsstöðin sem eftir var hjá Síman-
um en áður höfðu Norðurlanda-
stöðvarnar hætt sýningum. Gunn-
hildur bendir á að sjónvarpsáhorf sé
að breytast mjög hratt eins og áhugi
landsmanna á Netflix sýni. Fólk
kjósi að horfa þegar því henti. Ef
uppáhaldsþátturinn er kominn út í
Bandaríkjunum vilja áhorfendur
horfa hér heima.
„Hver dagur sem líður eftir að efni
er sýnt úti og ekki hér eykur lík-
urnar á ólöglegu niðurhali. Við
kynntum því forsýningar til leiks og
bjóðum viðskiptavinum að horfa á
forsýningar í fullum gæðum og með
texta við fyrsta tækifæri í Sjónvarpi
Símans og það áður en þættirnir
komast á dagskrá í sjónvarpi. Áhorf
á forsýningar á SkjáEinum hjá Sím-
anum jókst nú um 25% milli mán-
aða.“ benedikt@mbl.is
Engin plúsrás
lengur í boði
hjá Símanum
Sjónvarpsáhorf breytist mjög hratt
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Ófærð Mikið áhorf er talið til merk-
is um að línuleg dagskrá lifi.
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég átta mig ekki alveg á hinu fé-
lagslega réttlæti. Þetta eru lands-
samtök og verða að taka tillit til þess.
Það er mín fyrsta hugsun. Mér finnst
afar dapurt að þarna er verið að setja
þrjú landsmót í röð á Suðurland,“
segir Hólmgeir Valdemarsson, for-
maður Hestamannafélagsins Léttis á
Akureyri. Hann var spurður um við-
brögð við þeirri ákvörðun stjórnar
Landssambands hestamannafélaga
að velja landsmótinu 2020 stað á
Hellu og ráðstafa mótinu 2022 til
Spretts í Kópavogi og Garðabæ.
Landsmót verður á Hólum í
Hjaltadal í sumar en síðan verða þrjú
næstu mót á Suðurlandi. Hólmgeir
segir að sér finnist ákvörðunin ófag-
leg og eðlilegt félagslegt réttlæti fái
ekki að njóta sín. Bendir hann í því
sambandi á að öll hestamannafélögin
í landshlutanum hafi stutt umsókn
Hestamannafélagsins Léttis og Ak-
ureyrarbæjar auk Hestamanna-
félagsins Freyfaxa á Fljótsdalshér-
aði.
Óskað eftir rökstuðningi
Hólmgeir segir að Léttismenn hafi
verið að funda um niðurstöðu málsins
enda sé mikil undrun á svæðinu
vegna þess. Ákveðið hafi verið að
óska eftir forsendum þess að umsókn
félagsins um að halda mót 2020 eða
2022 var hafnað.
„Við töldum okkur vera með mjög
sterka umsókn með Akureyrarbæ á
bak við okkur og fjárhagslega sterkt
hestamannafélag. Aðrir þættir virð-
ast hafa ráðið meiru við þessa
ákvörðun,“ segir Hólmgeir.
Landsmót var haldið á Melgerðis-
melum í Eyjafirði á árinu 1998 og síð-
an hafa Eyfirðingar ekki komist inn í
röðina. „Það virðist vera sama hvað
við Eyfirðingar og Akureyringar
bjóðum, við komumst aldrei að.“
Nýtt mótssvæði á Akureyri
Við umsóknina nú buðu Akureyr-
ingar fram nýtt mótssvæði sem
byggt hefur verið upp í útjaðri bæj-
arins. Þar er risin ein stærsta reið-
höll landsins og góður völlur. Stutt er
í svæði Akstursíþróttafélags Ak-
ureyrar og geta hestamenn fengið af-
not af því á meðan á landsmóti stend-
ur.
Hólmgeir segir að svæðið bjóði
upp á mikla möguleika og lítið þurfi
að framkvæma til viðbótar til að taka
við landsmóti. Þó þurfi að setja upp
áhorfendabekki og útbúa annan
keppnis- og sýningarvöll.
Ekki réttlæti að halda
þrjú mót á Suðurlandi
Morgunblaðið/Eva Björk
Hestamennska Landsmót eru mikil hátíð hestamanna og þau draga að sér
þúsundir gesta sem fylla brekkuna á hápunktum mótanna.
Forystumenn Léttis furða sig á ákvörðun stjórnar LH
boxer buxur kr. 1990,- áður 2490,- 20% lækkun
skyrtur kr. 6990,- áður 7990,- 12,5% lækkun
Gallabuxur kr. 9990,- áður 11990,- 16,7% lækkun
DRESSMANN
LÆKKAR VERÐ
Frá 1. mars 2016 höfum við stórlækkað verð á flestum okkar vörum
vegna afnáms tolla og gengisþróunnar
SMÁRALIND 5659730 / KRINGLAN 5680800 / AKUREYRI 4627800 / SMÁRALIND XL 5650304