Morgunblaðið - 10.03.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við leggjum upp í þessa keppni af
bjartsýni. Það er viðurkenning að fá
að vera með pitsuna okkar á þessari
stærstu ráðstefnu í faginu sem hald-
in er í heimi. Að fá að taka þátt er í
sjálfu sér heilmikill sigur,“ segir Sig-
mar Vilhjálmsson veitingamaður.
Hann er nú staddur í Las Vegas í
Bandaríkjunum þar sem nú er hald-
in stærsta pitsuráðstefna í heimi,
PizzaExpo.
Keppnin Non Traditional Pizza of
the Year er stór hluti af þessari sýn-
ingu. Um 450 fyrirtæki í pitsuiðn-
aðinum taka þátt í þessari sýningu,
sem hefur verið haldin í 32 ár.
Með Sigmari vestra er Vilhelm
Einarsson. Hann er pitsugerðar-
stjóri á Shake&Pizza, nýjum veit-
ingastað í Keiluhöllinni í Egilshöll
sem var opnaður í september síðast-
liðnum. Sigmar og Jóhannes Ás-
björnsson, best þekktir sem Simmi
og Jói, eru eigendur staðarins,
ásamt Jóhannesi Stefánssyni í Múla-
kaffi.
Sextíu lið tóku þátt
Hugmyndafræðin á bak við
Shake&Pizza er að bjóða upp á
gæðapitsur með öðruvísi samsetn-
ingu í bland við hefðbundnar. Flagg-
skipið á matseðlinum er beikon-
sultupitsa og það er einmitt hún sem
er tillegg þeirra í keppninni í Las
Vegas, það er í flokki flatbaka af
óvenjulegri gerðinni. Um sextíu lið
tóku þátt í þessari keppni í Las Ve-
gas í gær. Úrslitin lágu ekki fyrir
þegar Morgunblaðið fór í prentun í
gærkvöldi.
Beikonsultupitsan er í alla staði
óvenjuleg. Í stað hefðbundinnar
pitsusósu er hún með beikonsultu
sem gefur bökunni einstakt bragð.
Annað álegg er jalapenjó, íslenskt
pepperoni, fajitas-kjúklingur og sér-
löguð ostablanda frá Mjólkursam-
sölunni. Ofan á hana eftir bakstur
eru síðan settar handgerðar nachos-
flögur og hvítlaukssósa.
Vel heppnað bragð
„Bragðsamsetningin er mjög vel
heppnuð, að okkar mati. Við fáum til
dæmis sætu úr beikonsultunni,
styrkinn úr jalapenjóinu, seltu úr
pepperoníinu og römmum þetta inn
með kjúklingnum og stökku nachos-
inu. Við höfðum reyndar talsvert
fyrir að kynna þetta hér í Bandaríkj-
unum. Komum til dæmis með ís-
lenskt beikon og ostablöndu að
heiman og náðum því í gegnum toll-
inn,“ segir Vilhelm Einarsson sem
er reynslubolti á sínu sviði. Er til
dæmis stofnandi Wilson pitsa og því
gamalreyndur í faginu – og veit svo
sannarlega hvað klukkan slær.
Íslenska pitsan nú í alþjóðlegri keppni
Beikonsulta var framlag Sigmars og Vilhelms í Las Vegas
Með ostablöndu að heiman Eins konar heimssýning
Pitsumenn Sigmar Vilhjálmsson, til vinstri, og Vilhelm Einarsson. Þeir eru
nú vestur í Bandaríkjunum og kynna þar og keppa um óvenjulega pitsu.
Héraðssaksóknari hefur gefið út
ákæru í markaðsmisnotkunarmáli
Glitnis, en þar er ákært fyrir meinta
markaðsmisnotkun fyrir hrun bank-
ans. Málið verður þingfest 15. apríl
næstkomandi, en málið er komið á
dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur.
Samkvæmt heimildum mbl.is er
bæði ákært fyrir markaðsmisnotk-
un og umboðssvik.
Ákærðir í málinu samkvæmt vef
héraðsdóms eru Lárus Welding,
fyrrverandi bankastjóri Glitnis, Jó-
hannes Baldursson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta, auk þeirra Jónasar Guð-
mundssonar, Valgarðs Más Val-
garðssonar og Péturs Jónassonar.
Saksóknari í málinu er Björn Þor-
valdsson og dómstjóri er Arngrímur
Ísberg. Hafa þeir Lárus og Jóhann-
es áður fengið dóma fyrir önnur
hrunmál.
Héraðssaksóknari hefur haft mál-
ið til rannsóknar undanfarin ár, en
henni lauk seint á síðasta ári. Hefur
málið síðan þá verið í ákæruferli.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi Lárus í fimm ára fangelsi í
Stímmálinu svokallaða fyrir um-
boðssvik. Jóhannes sem var fram-
kvæmdastjóri markaðsviðskipta
Glitnis var dæmdur í 2 ára fangelsi.
Lárus hafði áður verið sýknaður í
tveimur málum, Vafningsmálinu og
Aurummálinu. Lárus hafði verið
dæmdur í héraði í 9 mánaða fangelsi
í Vafningsmálinu, en Hæstiréttur
sýknaði hann svo. Í Aurummálinu
var hann sýknaður ásamt öðrum
ákærðu, en Hæstiréttur ógilti nið-
urstöðu héraðsdóms í því máli og
verður málið aftur tekið fyrir á
þessu ári.
Jóhannes hlaut áður dóm í BK-44
málinu svokallaða, en í héraði var
hann dæmdur í fimm ára fangelsi,
en Hæstiréttur mildaði dóminn í
þriggja ára fangelsi.
thorsteinn@mbl.is
Ákært í markaðs-
misnotkunarmáli
Glitnis banka
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og Danmerkur 2016
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!
Bókaðu
snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir
í sumar.
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2