Morgunblaðið - 10.03.2016, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
✝ Oddrún Krist-ófersdóttir
fæddist í Reykjavík
28. janúar 1945.
Hún lést á líknar-
deild LSH 26. febr-
úar 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Guðbjörg
Kristjánsdóttir, f.
1917, d. 2008, og
Kristófer J.G. Krist-
ófersson, f. 1917, d.
1987. Bjuggu þau í Reykjavík all-
an sinn búskap. Systkini Odd-
rúnar eru Kristrún, f. 1941, og
björg Krista, f. 1988. Unnusti
hennar er Elís Ævarsson, f.
1973. Sonur Kristu er Úlfar
Leon, f. 2009. Sonur Elísar af
fyrra sambandi er Fannar, f.
1994. Dóttir Fannars er Ísabella,
f. 2015.
Lengst af starfaði Oddrún í
ferðageiranum og vann meðal
annars á Syrian Airlines og
Austrian Airlines í Kaupmanna-
höfn, á Scandinavian Tourist
Offices í New York og á
skemmtiferðaskipum í Kar-
íbahafinu.
Oddrún var mikil handverks-
kona og fagurkeri og henni var
margt til lista lagt og liggur
margt af fögrum hlutum eftir
hana.
Útför Oddrúnar fer fram frá
Vídalínskirkju í dag, 10. mars
2016, og hefst athöfnin kl. 13.
Smári, f. 1953.
Hinn 18. sept-
ember 1982 giftist
Oddrún Guðmundi
Cesari Magnússyni,
f. 1952, d. 2009.
Dætur þeirra eru:
1) Arna Rún, f.
1983. Eiginmaður
hennar er Hrafn
Leó Guðjónsson, f.
1978. Börn þeirra
eru Aron, f. 1998,
Sonja Líf, f. 2003, Ásdís María, f.
2003, Bergrún Embla, f. 2011, og
Kristófer Cesar, f. 2014. 2) Guð-
Okkar ástkæra móðir, amma
og tengdamóðir. Sterkari töffara
væri varla hægt að óska sér sem
mömmu og þú varst mamma mín.
Oft skullu okkar þrjóskuhausar
saman, að öllum líkindum af því
að þú átt svo gífurlega mikið í
mér, augljóst er það að ég er
dóttir þín.
Húmoristi og sterk í gegnum
erfiðleika lífsins, harðvinnandi
heimskona í gegnum árin öll.
Saman höfum við fjölskyldan
grátið, elskað, saknað og hlegið,
en eins og Úlfar Leon sagði í
barnslegri einlægni sinni þegar
hann frétti af andláti þínu: Nú
geta amma Odda og afi Cesar
knúsast alltaf og að eilífu.
Við elskum þig og þín mun
verða sárt saknað. Skilaðu knúsi
og kærleika til pabba frá okkur
sem eftir sitjum.
Ég skal mála allan heiminn elsku
mamma,
eintómt sólskin, bjart og jafnt.
Þó að dimmi að með daga kalda og
skamma,
dagar þínir verða ljósir allir samt.
Litlu blómin, sem þig langar til að
kaupa,
skal ég lita hér á teikniblaðið mitt.
Ég skal mála allan heiminn elsku
mamma,
svo alltaf skíni sól í húsið þitt.
Óskaðu þér mamma, alls sem þú vilt
fá,
ennþá á ég liti, til hvers sem verða má.
Allar heimsins stjörnur og
ævintýrafjöll
óskaðu þér mamma svo lita ég þau öll.
Þín,
Krista, Elís og Úlfar Leon.
Mér þykir við hæfi að kveðja
Oddrúnu Kristófersdóttur, mág-
konu mína, með nokkrum orðum.
Við Oddrún kynntumst ekki
fyrr en við Kristrún systir henn-
ar hófum okkar hjúskap um 1990.
Þá þegar átti Oddrún að baki fjöl-
breyttan og litríkan lífsferil.
Hafði meðal annars starfað hjá
bæði íslenskum og erlendum
flugfélögum, t.d. Flugleiðum,
Austrian Airlines, Syrian Airl-
ines o.fl. Þessi störf voru unnin
víðsvegar og um árabil í Kaup-
mannahöfn og New York. Auk
þessa hafði hún starfað á
skemmtiferðaskipi á siglingum
um Karíbahafið.
Þegar hér var komið sögu
hafði hún staðfest ráð sitt og gifst
Guðmundi Sesari Magnússyni og
eignast með honum tvær dætur,
þær Örnu Rún og Guðbjörgu
Kristu.
Segja má að í kringum Odd-
rúnu hafi aldrei verið nein logn-
molla og það breyttist ekkert við
hjúskap þeirra Sesars, og var það
um flest gott en annað ekki eins
og gengur.
Sesar var sjómaður og var
lengi bátsmaður á íslenskum
skipum en seinna réðist hann í
skiprúm á rússneskum togurum
sem einkum voru við veiðar við
vesturströnd Afríku.
Sesar fórst með vélbátnum
Berki frænda í desember 2009.
Segja má um þau Oddrúnu og
Sesar að þau voru um margt lík
og áttu vel saman, enda voru þau
bæði litríkir persónuleikar. Verð-
ur varla um þaurætt sitt í hvoru
lagi og þessi minningarorð verða
óhjákvæmilega um þau bæði.
Enda þótt bæði ættu til alvar-
legri hliðar, sem voru góðvild og
óendanleg greiðasemi, var þeirra
megineinkenni ekki síst spaug-
semi og skemmtilegur húmor
sem, að minnsta kosti hjá Odd-
rúnu, entist fram í andlátið.
Hefði ég ekki viljað missa af
þeirri samfylgd sem við höfum
átt við þau hjón síðasta aldar-
fjórðunginn og minnist þeirra
með þökkum fyrir hana.
Dætrum þeirra og fjölskyldum
þeirra sendum við okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur, með bæn
um að guðsblessun fylgi þeim inn
í framtíðina.
Logi Guðbrandsson.
Horfinn er vinur handan yfir sundin,
hryggðin er sár, svo jafnvel tárast
grundin.
Þá er svo gott, um ævi megum muna
milda og fagra geymum kynninguna.
Óvæntust ætíð kemur kveðjustundin
kærast í hjarta geymum minninguna.
(Vilhjálmur S.V. Sigurjónsson)
Á stundu sem þessari rekur
hver minningin aðra, margs er að
minnast og margs er að sakna en
fyrst og síðast ber að þakka fyrir
ómetanlega vináttu Oddrúnar,
frá því að leiðir okkar lágu fyrst
saman í Danmörku.
Það var aldrei lognmolla þar
sem þú varst, þú hafðir alltaf eitt-
hvað í handraðanum, sauma,
prjóna eða gera upp gamla hluti.
Þú varst sannkallaður listamaður.
Besta vinkona mín, þú varst
yndisleg manneskja og ég mun
alltaf sakna þín.
Dætrum og fjölskyldunni allri
sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning kærrar
vinkonu.
Vilhelmína.
Oddrún
Kristófersdóttir
Hinsta kveðja frá
Tippmilljóna-
félaginu
Elsku vinur okk-
ar Jón, nú ert þú horfinn frá okk-
ur. Þín verður sárt saknað. Á
tippfundi rétt eftir andlát þitt
vorum við félagarnir sammála
um að halda okkar striki sem
hópur og hafa minningu þína í
huga. Minningin lifir um góðan
og elskulegan vin. Við þökkum
þér allt sem þú gafst okkur.
Elsku Stefanía, Sveinbjörg,
Stefán, Rannveig og fjölskyldur,
samúðarkveðjur frá okkur öllum.
Birgir Jósafatsson,
Björn Ágúst Sigurjónsson,
Þorleifur Stefán Guðmunds-
son, Sigurður Ólafsson.
Kveðja frá Engjasels-
hópnum
Þegar vinir oss falla frá
fóta verðum okkur á ný.
Veröldin öll þá virðist grá
og vafin sólin inn í ský.
Horfinn af sviði í lífsins leik
ert ljúfi vinur, Jón Helgason.
Gjafir þínar gerðu okkur keik
á göngu lífsins, gleði og von.
Glaðvær dans við góða hljóma
glettinn rokkari og skenktir vel.
Grandvör boð þín og aðgát óma
einstakt við þökkum þitt vinarþel.
(Ólöf Helga Pálmadóttir)
Elsku Stebba, Sveinbjörg,
Jón Helgason
✝ Jón Helgasonfæddist 9. des-
ember 1945. Hann
lést 28. febrúar
2016. Útför Jóns
fór fram 9. mars
2016.
Stebbi, Rannveig og
fjölskyldur, innileg-
ar samúðarkveðjur
frá okkur öllum.
Ólöf Helga
Pálmadóttir.
Okkur langar í
fáum orðum að
minnast elskulegs
„uppeldisföður“
okkar, Jóns Helga-
sonar. Jón var hlýr, greindur og
umhyggjusamur maður. Hann
var áhugasamur um allt sem við
Engjaselsbörnin tókum okkur
fyrir hendur. Hvert eitt og ein-
asta okkar hefur af eigin raun
upplifað þennan áhuga hvort sem
hann sneri að námi, starfi eða
tómstundum. Honum var annt
um okkur öll og passaði upp á að
við værum ávallt með nýþvegnar
hendur. Einnig fengum við
stundum góðlátlegar ábendingar
um eigin áfengisneyslu jafnvel
þótt við værum sum komin á fer-
tugsaldur.
Jón var Valsari í húð og hár og
sá til þess að öll börnin í blokk-
inni gengju til liðs við rétta félag-
ið. Hann taldi aldrei eftir sér að
skutla börnum sínum og vinum
þeirra á æfingar á Volvonum,
sem var auðvitað rauður og upp-
fyllti alla helstu öryggisstaðla að
sænskum sið. Þannig var Jón,
alltaf til staðar og alltaf pottþétt-
ur. Í seinni tíð hafa barnabörnin
notið umhyggju hans og góðsemi
sem við þekkjum svo vel úr
æsku.
Elsku Stebba, Sveinbjörg,
Stebbi, Rannveig og fjölskyldur.
Missir ykkar er mikill og hugur
okkar er hjá ykkur.
Fyrir hönd barnanna í Engja-
seli 56,
Elín, Hugrún, Kári,
Kjartan, Pálmi,
Sigfríður og Sigurður.
Minningarnar eru margar sem
við eigum saman, fjölskyldan úr
Barrholtinu og Engjaselinu, sem
síðar varð Þjóttuselið. Við höfum
alltaf haldið góðu sambandi og
vorum síðast saman í barnaaf-
mæli hjá yngri stráknum mínum
laugardaginn 27. febrúar. Skilj-
anlega komust ekki allir þar sem
Jón var inni á spítala og var ansi
veikur. En enginn átti von á því
að daginn eftir yrði einn sá erf-
iðasti fyrir fjölskylduna í Þjóttu-
selinu. Þegar ég hugsa til baka þá
höfum við fjölskyldurnar brallað
svo margt saman og alltaf var
Jón þessi maður sem hægt var að
stóla á, með allt á hreinu, passaði
upp á alla og þá sérstaklega að
börnin færu sér ekki að voða. Jón
var einstaklega barngóður og þar
voru barnabörnin hans lánsöm,
líka mín börn því aðdráttaraflið
sem hann hafði var hreint út sagt
frábært. Börnin elskuðu hann,
vildu bara knúsa hann og vera
nálægt honum. Jón var einnig
mjög hjálplegur og vildi allt fyrir
alla gera. Það má segja að það
hafi komið sér vel að þekkja Jón
þegar ég fékk vinnu hjá Vega-
gerðinni. Þar átti ég þrjú frábær
sumur þar sem ég arkaði um
þjóðveg eitt í góðum hópi ungra
kvenna í fínhallamælingum.
Jón var algjör stærðfræðisnill-
ingur og átti mjög gott með að
kenna öðrum, þar kom berlega í
ljós hversu þolinmóður hann var.
Oftar en einu sinni fór ég í Þjóttu-
selið til að fá aðstoð með stærð-
fræðina, bæði í menntaskóla og
svo síðar í háskólanáminu. Ég
gæti talið upp ótal samveru-
stundir frá því í æsku þar sem við
fjölskyldurnar eyddum frábær-
um stundum saman. Samvera um
páska, sumarbústaðaferðir, þar
sem Jón passaði upp á að allir
settu á sig sólarvörn ef svo bar
undir, jólaboð svo eitthvað sé
nefnt.
Elsku Jón, takk fyrir allt,
hvíldu í friði.
Elsku Stebba, Sveinbjörg,
Stebbi, Rannveig, makar og
börn, megið þið fá aukinn styrk á
þessum erfiða tíma.
Ykkar
Eva Björk.
Elsku Jói minn.
Ég hef verið svo
lánsöm að fá að sjá
þig vaxa og dafna
síðustu ár frá því að vera
strákpjakkur upp í ábyrgan ung-
an mann, eiginmann og föður. Ég
á mér nokkur uppáhaldssamtöl
sem ég mun alltaf varðveita hjá
mér og ég verð alltaf þakklát fyr-
ir traustið sem þú sýndir mér í
gegnum öll okkar samskipti. Það
fór ekkert á milli mála hver var
stóra ástin í þínu lífi. Þú ljómaðir
í hvert skipti sem þú ræddir um
Lindu og þú fylltist stolti og gleði
í hvert skipti sem við töluðum um
Jóhann Svanur
Júlíusson
✝ Jóhann SvanurJúlíusson
fæddist 20. ágúst
1987. Hann lést 1.
mars 2016.
Útför Jóhanns
Svans fór fram 9.
mars 2016.
Aríellu Mist. Fjöl-
skylda ykkar beggja
er einstök og ég veit
að allir munu gera
allt sem þeir geta til
að styðja við prins-
essurnar þínar. Eft-
ir sitjum við öll og
getum ekki hugsað
um hvernig fram-
haldið verður. Sorg-
in er djúp, áfallið
mikið og söknuður-
inn ólýsanlegur.
Hvíldu í friði meistari.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Helga Fjóla Sæmundsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi,
HREINN EYJÓLFSSON,
lést á Borgarspítalanum í Reykjavík.
Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju
föstudaginn 11. mars 2016 klukkan 15.
.
Þrúður S. Ingvarsdóttir,
Reynir S. Hreinsson, Nína Björg Vilhelmsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
HELGA SIGURJÓNSSONAR,
fyrrum bónda, Torfum,
Eyjafjarðarsveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Furuhlíðar fyrir einstaka alúð og umönnun.
.
Sigríður Ketilsdóttir,
Smári Helgason, Anna Jóhannesdóttir,
Ketill Helgason, Anna Gunnbjörnsdóttir,
Sigurjón Helgason, Sólrún Sveinbergsdóttir,
Níels Helgason, Sveinbjörg Helgadóttir,
Jónína Helgadóttir, Kristján Gunnþórsson,
Guðjón Þór Helgason, Erla Halls,
Regína Helgadóttir,
Gunnhildur Helgadóttir,
afa-, langafa- og langalangafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RÓSA EINARSDÓTTIR,
Þverholti 26,
Reykjavík,
andaðist aðfaranótt laugardagsins
5. mars á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hennar verður
gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. mars kl. 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á MND félagið.
.
Kolbrún Hauksdóttir,
Auður Hauksdóttir, Eiríkur Þór Magnússon,
Unnur Berglind Hauksdóttir, Ólafur Jón Daníelsson,
ömmu- og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SKARPHÉÐINN GUÐMUNDSSON,
Mánatúni 2,
lést sunnudaginn 21. febrúar á
Droplaugarstöðum.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
.
Guðbjörg Lára Axelsdóttir,
Elín Skarphéðinsdóttir, Steinþór Hreinsson,
Erla Inga Skarphéðinsdóttir, Helgi Valur Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
SIGRÍÐUR GARÐARSDÓTTIR
verslunarstjóri,
Búhamri 34, Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
8. mars. Útför hennar fer fram frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum laugardaginn 19. mars klukkan 14.
Innilegar þakkir til starfsfólks 11-E Landspítala og starfsfólks
Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja.
.
Hjalti Hávarðsson,
Hávarður Þór Hjaltason, Alina Marin Hjaltason,
Erna Dögg Hjaltadóttir, Unnar Óli Ólafsson,
Breki Örn Hjaltason, Amalia Duffield.