Morgunblaðið - 10.03.2016, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
H
reinn fæddist á Mið-
skeri í Hornafirði
10.3. 1931 og ólst þar
upp. Hann lauk próf-
um frá Iðnskólanum í
Reykjavík, sveinsprófi í húsasmíði
1968, öðlaðist meistararéttindi 1974
og lauk kennaraprófi frá Kennara-
háskóla Íslands 1992.
Hreinn vann við húsasmíðar og
smíðakennslu til 1987, var fastráðinn
kennari við Nesjaskóla 1987-96,
kennari við Mýrarhúsaskóla 1996-97
og var síðan aðstoðarskólastjóri við
Nesjaskóla 1997-2001.
Hreinn var um skeið byggingar-
fulltrúi og fasteignamatsmaður í
Nesjahreppi og virðingamaður fyrir
Brunabótafélag Íslands. Hann sat í
barnaverndarnefnd um árabil, situr í
sóknarnefnd, er meðhjálpari og söng
í Samkór Hornafjarðar um árabil.
Hreinn æfði og keppti í íþróttum á
yngri árum, var virkur í starfi
íþrótta- og ungmennafélagshreyf-
ingarinnar, starfaði í Lionsklúbbn-
um Hæni í Nesjum, sat í stjórn
Menningarfélags Austur-Skaftfell-
inga um skeið, var fyrsti formaður
Leikfélags Hafnarkauptúns og síðar
í Leikhópi Mána. Hann hefur tekið
þátt í fjölmörgum leiksýningum í
Nesjum og á Höfn og samið gam-
anmál í bundnu máli og flutt við ým-
is tækifæri.
Hreinn er heiðursfélagi ung-
mennasambandsins Úlfljóts.
Hreinn Eiríksson, kennari og fyrrv. aðstoðarskólastjóri – 85 ára
Færeysk stemming Hreinn og Kristín með börnum sínum og barnabörnum á Ólafsvöku fyrir nokkrum árum.
Samrýnd og lífsglöð
Sæl í sólinni Hreinn og Kristín slaka á og sóla sig í Flatey á Breiðafirði.Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Erla MargrétGunnars-dóttir er
stödd á ferðalagi á
Suðurlandsundir-
lendinu með nemum
úr bandarískum há-
skólum.
„Ég er hópstjóri hjá
bandarísku fyrirtæki
sem heitir The Green
Program, en mark-
miðið með því er að
kynna háskólanemum
endurnýjanlega orku.
Ferðirnar hér á landi
eru í samstarfi við Há-
skólann í Reykjavík
og svo sér ferðaþjón-
ustufyrirtækið Mid-
gard Adventure um
að skipuleggja ferð-
irnar, sem eru blanda
af ævintýrum og lær-
dómi. Við förum í
virkjanir en skoðum
síðan staði eins og
Reykjadal og fossa til
að sýna orkuna í sínu náttúrulega umhverfi. Ég er núna í átta daga
ferð og verð líklegast í jöklagöngu og ýmsum skemmtilegum stöðum
á Suðurlandinu á afmælisdaginn.“
Erla er einnig í Leiðsögumannaskólanum í MK og starfar sem leið-
sögumaður fyrir fyrirtækið Goecco og fer aðallega í tveggja daga
ferðir austur að Jökulsárlóni. Svo vinnur hún sem barþjónn á Ölstofu
Kormáks og Skjaldar.
Erla er nýhætt sem formaður Skipulagsfræðingafélags Íslands en
hún er framkvæmdastjóri Steinsteypufélags Íslands. „Þetta er félag
einstaklinga, fyrirtækja, félaga og stofnana sem hafa áhuga á stein-
steypu og að það sé góð steinsteypa í umferð á Íslandi. Ég lærði
tæknifræði og þekki innviðina og sé um fyrir hönd stjórnarinnar að
skipuleggja fundi og gefa út fréttabréf.“
Helstu áhugamál Erlu eru tónlist og að hitta gott fólk. Uppáhalds
íslenski tónlistarmaðurinn hennar er Hemúllinn. „Ég fer mikið á tón-
leika og var að kaupa mér miða á Secret Solstice.“
Eiginmaður Erlu er Logi Bjarnason myndlistarmaður. Fósturdóttir
hennar er Embla Sól Logadóttir 15 ára. „Fyrst ég verð ekki heima hjá
mér á afmælinu þá ætlum við að halda sameiginlegt afmæli í Marokkó
um páskana.“
Kynnir nemum
endurnýjanlega orku
Erla Margrét Gunnarsdóttir er 35 ára í dag
Vetur Erla á Jökulsárlóni í desember sl.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki
sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum
og öðrum löndum. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Heyrnartæki eruniðurgreidd afSjúkratryggingum
Íslands