Morgunblaðið - 10.03.2016, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016
Djasstónlist
Sunnu Gunn-
laugsdóttur úr
kvikmynd Ás-
gríms Sverr-
issonar, Reykja-
vík, verður flutt
á Bryggjunni,
Grandagarði 8, í
kvöld kl. 21.
Sunna mun
ásamt hljómsveit
flytja tónlist sem hún samdi fyrir
kvikmyndina sem verður frumsýnd
á morgun. Er það frumraun Sunnu
í tónsmíðum fyrir kvikmynd. Að-
gangur að tónleikunum er ókeypis.
Leika djass Sunnu
úr Reykjavík
Sunna
Gunnlaugsdóttir
Vampíruhrollvekjan Hleyptu þeim
rétta inn í leikstjórn Selmu Björns-
dóttur verður frumsýnd á Stóra
sviði Þjóðleikhússins í kvöld. Höf-
undur leikgerðarinnar er Jack
Thorne, en verkið byggist á sam-
nefndri bók og kvikmyndahandriti
eftir John Ajvide Lindqvist.
Verkið fjallar um unglingsstrák-
inn Óskar, sem er einmana, vina-
laus og lagður í einelti í skóla. Þeg-
ar hin dularfulla Elí flytur inn í
íbúðina við hliðina á honum, um-
turnast tilvera hans, en í ljós kemur
að Elí er 200 ára gömul vampíra í
líkama unglings.
Með hlutverk Elíar og Óskars
fara Lára Jóhanna Jónsdóttir og
Sigurður Þór Óskarsson. Í öðrum
hlutverkum eru Baldur Trausti
Hreinsson, Hallgrímur Ólafsson,
Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Odd-
ur Júlíusson, Pálmi Gestsson,
Snorri Engilbertsson, Stefán Hallur
Stefánsson, Svava Björg Örlygs-
dóttir og Þröstur Leó Gunnarsson.
Leikmynd hannar Halla Gunn-
arsdóttir, búninga María Th. Ólafs-
dóttir og lýsingu Ólafur Ágúst Stef-
ánsson. Tónlist semur Högni
Egilsson. Atriði í sýningunni geta
vakið óhug og því ráðleggja for-
svarsmenn leikhússins að áhorf-
endur séu eldri en 13 ára.
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Ótti Pálmi Gestsson og Lára Jóhanna Jónsdóttir í hlutverkum sínum.
Frumsýna Hleyptu
þeim rétta inn
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Þýskir kvikmyndadagar hefjast í
Bíó Paradís í dag í sjötta sinn og
standa til 20. mars. Það eru Bíó
Paradís og Goethe Institut í Dan-
mörku sem standa að kvikmynda-
hátíðinni í samstarfi við þýska
sendiráðið á Íslandi.
„Við leggjum áherslu á það besta
og ferskasta í þýskri kvikmynda-
gerðarlist auk
þess sem við
reynum að hafa
fjölbreytileikann
að leiðarljósi,“
segir Hrönn
Sveinsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Bíós Para-
dísar.
Myndirnar sex
sem sýndar
verða á Þýskum
kvikmyndadögum í ár eru leiknu
myndirnar Elser í leikstjórn Oli-
vers Hirschbiegel, Phoenix í leik-
stjórn Christians Petzold, Victoria í
leikstjórn Sebastians Schipper, Ich
und Kaminski í leikstjórn Wolf-
gangs Becker og Wir sind jung.
Wir sind stark í leikstjórn Burhans
Qurbani auk tónlistarheimildar-
myndarinnar B-movie: Lust &
Sound in West-Berlin í leikstjórn
Jörgs A. Hoppe og Heikos Lange.
Allt frá drama til kómíkur
„Opnunarmynd hátíðarinnar er
hin margrómaða Elser í leikstjórn
Olivers Hirschbiegel, sem er einna
þekktastur fyrir kvikmynd sína
Downfall. Hér er á ferðinni hrífandi
frásögn af uppreisnarmanninum
Georg Elser sem reyndi að ráða
Hitler af dögum 8. nóvember 1939
og hefði mögulega getað bjargað
milljónum mannslífa ef hann hefði
aðeins haft 13 mínútur í viðbót.
Ich und Kaminski er tragíkómísk
mynd eftir leikstjórann sem gerði
Goodbye, Lenin. Myndin fjallar um
misheppnaðan og hégómafullan rit-
höfund sem ætlar sér að skrifa ævi-
sögu listamannsins Manuels Kam-
inski. Verðlaunamyndin Phoenix
fjallar um Nelly, sem er þýskur
gyðingur sem lifir fangabúðir nas-
ista af og reynir að komast að því
hvort eiginmaður hennar hafi svik-
ið hana í hendur nasista á sínum
tíma.
Myndinni Victoria hefur verið
lýst sem kvikmyndalegu afreki, en
þar er farið í gegnum Berlín að
næturlagi í einni töku.
Wir sind Jung. Wir sind stark er
áhrifamikil mynd sem fjallar um
það þegar hópur nýnasista kveikti í
búðum þar sem 150 Víetnamar
höfðust við í Rostock í Austur-
Þýskalandi árið 1992.
Heimildarmyndin B-movie fjallar
um listalífið í Berlín á árunum 1979
til 1989 þar sem myndaðist ótrúleg-
ur suðupottur merkilegustu og
framsæknustu tónlistarmanna þess
tíma,“ segir Hrönn og bendir á að
boðið verði upp á tónlistarveislu í
Bíó Paradís í kvöld í tengslum við
sýningu síðastnefndu myndarinnar.
Að sögn Hrannar hefur aðsóknin
á Þýska kvikmyndadaga ávallt ver-
ið góð. „Þetta eru okkar sterkustu
kvikmyndadagar og voru jafnframt
okkar fyrstu. Þeir urðu fljótt mjög
vinsælir og við getum alltaf stólað á
að hingað mæti vel á annað þúsund
manns til að sjá þýskar hágæða-
myndir.“ Allar nánari upplýsingar
um myndir og sýningartíma má
finna á vefnum bioparadis.is, en
myndirnar eru allar sýndar með
enskum undirtexta.
„Það besta og ferskasta“
Upprisa Nina Hoss í hlutverki sínu
sem Nelly Lenz í Phoenix.
Plottað Artur Nebe (Burghart Klaußner), Georg Elser (Christian Friedel)
og Heinrich Müller (Johann von Bülow) í kvikmyndinni Elser.
Þýskir kvik-
myndadagar
haldnir í 6. sinn
Hrönn
Sveinsdóttir
Mátar Daniel Brühl og Jesper
Christensen í hlutverkum sín-
um sem Zöllner og Kaminski í
Ich und Kaminski.
Kringlan Shopping Center
Kringlan 4 – 12
Reykjavik
MARC O’POLO STORE
Full búð
af nýjum
vörum
BROTHERS GRIMSBY 6, 8, 10
TRIPLE 9 10
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 6, 8
ZOOTROPOLIS 2D 5:40 ÍSL.TAL
DEADPOOL 8, 10:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
-T.V., Bíóvefurinn