Morgunblaðið - 10.03.2016, Qupperneq 44
FIMMTUDAGUR 10. MARS 70. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Vissu ekki af íbúðinni í húsinu
2. 22 þúsund lítra eldsneytisstuldur
3. Fannst ofan í svefnpoka sínum
4. Rannsókn lokið á áverkum …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir
leggur undir sig Café Rosenberg og
heldur tónleika þar í kvöld, annað
kvöld og á laugardagskvöld. Hálfvit-
arnir munu leika lög af nýjustu plötu
sinni, Hrísey, í bland við gamlar hálf-
vitalummur. Tónleikarnir byrja kl. 21 í
kvöld en 22 hin kvöldin.
Tónleikaþrenna hjá
Ljótum hálfvitum
Frásagnar-
háttur í Íslend-
ingasögunum er
efni fyrirlestrar
sem William Ian
Miller heldur á
vegum Miðalda-
stofu í stofu 132 í
Öskju, húsi Há-
skóla Íslands í
dag klukkan 16.30. Miller er prófess-
or við lagadeild Michigan-háskóla og
heiðursprófessor við sagnfræðideild
St. Andrews-háskóla og hefur kennt
og skrifað um Íslendingasögur.
Fjallar um frásagn-
arhátt í Sögunum
Þjóðlagatónlistarhátíðin Reykjavík
Folk Festival hefst í kvöld kl. 20 á Kex
hosteli og er það Elín Ey sem ríður á
vaðið. Hátíðin stendur til 12. mars og
auk Elínar koma fram á henni Valdi-
mar Guðmundsson, Örn Eldjárn,
Högni Egilsson, Ellen
Kristjánsdóttir, Ey-
þór Gunnarsson,
Ragga Gröndal,
Bangoura Band,
Ingunn Huld,
Skuggamyndir
frá Býzans og
Sóley.
Reykjavík Folk Festi-
val hefst í kvöld
Á föstudag Suðvestan 15-23 m/s og éljagangur, hvassast á Vest-
fjörðum en úrkomulítið fyrir norðaustan. Hægari og suðlægari og
dregur úr éljum um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 13-20 m/s með éljum um og eftir
hádegi, fyrst fyrir vestan. Kólnar í veðri. Hiti víða 1 til 7 stig.
VEÐUR
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu vann til brons-
verðlauna í Algarve-
bikarnum í knattspyrnu í
gær með því að leggja Nýja-
Sjáland að velli. Staðan var
1:1 eftir venjulegan leiktíma
en Ísland hafði betur í víta-
spyrnukeppni, 6:5, þar sem
leikmenn Íslands nýttu allar
sínar spyrnur. Þetta er í
þriðja sinn í tólf tilraunum
sem Ísland vinnur til verð-
launa á mótinu. »3
Unnu til verð-
launa í þriðja sinn
„Riðlakeppnin er galopin enda aðeins
tvær umferðir að baki af sex. Mögu-
leikar okkar eru enn fyrir hendi. Við
erum meðvituð um mik-
ilvægi leiksins við
Sviss. Hann skiptir
okkur miklu máli ef
við ætlum að ná
markmiði okk-
ar sem er
lokakeppni
EM í Sví-
þjóð,“ sagði
Ágúst Þór
Jóhannsson,
landsliðsþjálf-
ari í hand-
knattleik
kvenna. Ís-
lenska lands-
liðið mætir
landsliði
Sviss ytra í
undankeppn-
inni í kvöld.
»4
Mikilvægur leikur til að
ná markmiði okkar
Hannes Þór Halldórsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, er á leið til
norska úrvalsdeildarfélagsins Bodö/
Glimt að láni frá hollenska félaginu
NEC Nijmegen, samkvæmt frétt
norska miðilsins Avisa Nordland í
gærkvöld. Lánssamningurinn er
sagður gilda til 17. júlí og Hannes
mun samkvæmt því spila í Noregi
fram að EM í Frakklandi. »2
Hannes líklega í Noregi
fram að EM í Frakklandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Páll Halldór Halldórsson, fyrsti
starfsmaður bifreiðaumboðsins
Öskju, hefur ákveðið að snúa sér að
því að reka eigið fyrirtæki, Jópal
ehf., og fara með ferðamenn á fjöll.
„Ég kann vel við mig á gatnamótum
og er óhræddur við að taka beygj-
ur,“ segir sölustjóri atvinnubíla hjá
Öskju undanfarin 12 ár og söngvari í
Fjallabræðrum.
Bílar, einkum stór tæki, hafa átt
hug Páls frá barnæsku í Hnífsdal.
Hann rifjar upp að hann hafi alltaf
dáðst að Ármanni Leifssyni þegar
hann ók framhjá í flutningabílum
sínum á leið frá eða til Bolungar-
víkur og seinna verið bílstjóri hjá
honum. Páll tók þátt í ísakstri, var
þekktur rallökumaður og var meðal
annars Íslandsmeistari 1998. Hann
hefur lengi verið mikill jeppakarl og
var frumkvöðull í því að breyta Benz
Sprinter og setja á 46 tommu dekk.
Hann áréttar að hann sé pabbi og sé
góður fjölskyldubílstjóri auk þess
sem hann hafi nokkrum sinnum orð-
ið Íslandsmeistari í ökuleikni og eigi
mótókrosshjól. „Í sveitinni keyrði ég
Hanomak, Ferguson og Willys-
jeppa löngu áður en ég hafði aldur til
og Jói Júl. verkstjóri setti mig um
fermingaraldurinn á lyftara í Íshús-
félagi Ísfirðinga.“
Símanúmer og gemsi
Þegar Páll sótti eiginkonuna í
vinnuna hjá Félagi íslenskra at-
vinnuflugmanna fyrr í vikunni segist
hann hafa fengið spurningu: „Af
hverju varðstu ekki flugmaður?“
„Því var fljótsvarað. Mér líkaði bíl-
arnir betur. Ég er jarðbundinn og
bílarnir eru nær jörðinni. Þeim
fylgir fjör, ákveðin áreynsla, að
drífa, eins og við segjum í jeppa-
bransanum, vera fljótur.“
Á keppnisárunum í rallinu var
Páll á Mitsubishi Lancer sem bif-
reiðaumboðið Hekla aðstoðaði hann
við að gera út. „Hann kostaði jafn-
mikið og raðhúsið mitt 1997,“ segir
hann og bætir við að þegar Hekla
hafi tekið við umboðinu fyrir Daiml-
er-bíla hafi honum verið boðið sölu-
stjórastarfið. „Tryggvi Jónsson, þá-
verandi forstjóri Heklu, sýndi mér
nýtt rými og sagði að þar ætti Askja
að vera. Þá hringdi síminn hjá hon-
um og hann fór út. Ég beið en hann
kom ekki aftur. Þá hugsaði ég með
mér hvað þyrfti að gera við stofnun
nýs fyrirtækis. Við þurfum að fá
okkur símanúmer, ég þarf að fá mér
gemsa og tryggja netfangið askja.is
var það fyrsta sem mér datt í hug.“
Páll sagði upp vegna þess að hann
langar til þess að standa á eigin fót-
um og snúa sér að því að fara með
ferðamenn um hálendið á Benz
Sprinter á 46 tommu hjólum. „Ef ég
geri það ekki núna geri ég það aldr-
ei,“ segir hann. „Það er mjög sér-
stakt að segja upp starfi sem ég
kann sérlega vel við, fara frá frábær-
um vinnufélögum og viðskiptavin-
um, en ég er ekki alveg horfinn, verð
áfram á kantinum sem hálfgerður
erindreki.“
Frumkvöðull á fjöll
Hættur í inni-
vinnu til að sinna
ferðamönnum
Tímamót Páll Halldór Halldórsson til hægri afhenti Ólafi Erlingssyni öflugasta Mercedes Benz-dráttarbíl sem flutt-
ur hefur verið til landsins áður en hann sneri sér að rekstri eigin fyrirtækis. Nú ætlar hann að fara á fjöll.
Þórsmörk Páll Halldór Halldórsson fer með ferðamenn um hálendið.