Morgunblaðið - 22.03.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hlæjandi hress börn sjást nú á vappinu um borg
og bý enda páskafrí frá skóla gengið í garð um
land allt. Nóg er þá svigrúmið til að gæða sér á
súkkulaðipáskaeggjum og öðru góðgæti sem
fylgir með. Veðrið mun þó ekki leika við lands-
menn í fríinu en allar líkur eru á veglegu páska-
hreti, samkvæmt Veðurstofunni. Búast má við
éljagangi á skírdag og föstudaginn langa. Hret
verður fyrir norðan á páskadag ásamt frosti.
Páskafrí með súkkulaðiívafi hafið um land allt
Morgunblaðið/Eggert
Veðrið mun ekki leika við landsmenn yfir páskana í ár
Ríkisútvarpið efnir í kvöld til borg-
arafundar um heilbrigðismál. Í til-
kynningu kemur fram að boðið verði
upp á málefnalegan umræðuvett-
vang þar sem leitað verði svara við
spurningum almennings um heil-
brigðiskerfið og framtíð þess.
Sérfróðir gestir sem og fulltrúar
stjórnmálaflokkanna munu sitja fyr-
ir svörum.
„Ég er enginn sérfræðingur“
Athygli hefur þó vakið að Kári
Stefánsson er ekki á meðal auglýstra
gesta fundarins, en hann er forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar og upp-
hafsmaður söfnunarinnar þar sem
safnast hafa um 85 þúsund undir-
skriftir, til stuðnings endurreisn
heilbrigðiskerfisins.
Í samtali við mbl.is skýrði Kári frá
því að hann hefði
upphaflega komið
með hugmyndina
að fundinum á
borð til Ríkis-
útvarpsins. Út-
varpsstjóri hefði
gripið hugmynd-
ina á lofti.
„Svo hafa þau
samband við mig
og segjast vera
búin að skipuleggja þetta. Þau ætli
að hafa tvö pallborð, í öðru borðinu
verði ýmsir sérfræðingar og í hinu
borðinu verði pólitíkusarnir. Þeir
buðu mér að taka þátt með sérfræð-
ingunum og ég sagði þeim að það
kæmi ekki til greina, ég væri enginn
sérfræðingur og hefði ekki unnið í ís-
lensku heilbrigðiskerfi í fjörutíu ár.“
Fyrst að ekki hefði staðið til boða
að vera í pallborði með stjórnmála-
mönnunum hefði hann því sagst ekki
vilja taka þátt í fundinum.
Honum finnist hann þó verða að
koma þeim skilaboðum til þeirra
sem skrifað hafi undir í söfnuninni
að honum hafi ekki staðið til boða að
vera þátttakandi í fundinum. „RÚV
vill okkur ekki í þessu og það er í
sjálfu sér allt í lagi því það verða um-
ræður um heilbrigðismál en ekki um
mig, aðstandendur söfnunarinnar
eða hana sem slíka.“
Þá tekur Kári fram að honum
þyki myndarlegt af RÚV að halda
borgarafundinn. „En ég hefði haldið
að skemmtilegasta sjónvarpið væri
að etja mér gegn stjórnmálamönn-
unum í þessum hópi. En RÚV er
með svolitla drottningarstæla og
þeir vilja stjórna og þeir vilja ráða.
Þeir lúta ekki einu sinni „common
sense“.“
„Ekki pólitísk uppákoma“
Ingólfur Bjarni Sigfússon, vef- og
nýmiðlastjóri RÚV, segir í samtali
við mbl.is að Kára hafi vissulega ver-
ið boðið til fundarins.
„Við buðum honum og hann vildi
ekki þiggja það boð. Þetta er í sjálfu
sér ekki pólitísk uppákoma heldur
borgarafundur, þar sem við erum að
leita svara en ekki að setja þumal-
skrúfur á menn eða vinna að ein-
hverjum tilteknum málstað,“ segir
Ingólfur, en ekki sé um að ræða fund
þar sem Kári, eða einhver annar,
herji á stjórnmálamenn. „RÚV hef-
ur allt annað hlutverk og lagaramma
heldur en þann.“ sh@mbl.is
„RÚV með drottningarstæla“
Kári Stefánsson ekki á meðal gesta á borgarafundi RÚV um heilbrigðismál
Hafnaði boði um að vera í pallborði sérfræðinga „RÚV vill okkur ekki“
Kári
Stefánsson
Viðar Guðjónsson
Freyr Bjarnason
Velferðarráðuneytið tilkynnti í gær
að Kristján Þór Júlíusson heilbrigð-
isráðherra hefði undirritað samn-
ing við fjórar heilbrigðisstofnanir
um þátttöku þeirra í skipulögðu
átaki til að stytta bið sjúklinga eftir
brýnum aðgerðum.
Áformað er að verja 1.663 m.kr.
til þessa verkefnis á árunum 2016 –
2018, þar af um helmingi fjárins á
þessu ári. Fram kemur á vef vel-
ferðarráðuneytisins, að liðskipta-
aðgerðum verði fjölgað um 530 en
1.336 sjúklingar bíða eftir liðskipta-
aðgerð. Augasteinsaðgerðum verð-
ur fjölgað um 2.890 en 3.893 bíða
eftir augasteinsaðgerð.
Hjartaþræðingum fjölgar um 50
en áætlað er að framkvæma 1.725
aðgerðir á tímabilinu. Í janúar voru
92 einstaklingar á biðlista.
Í tilkynningu frá velferðarráðu-
neytingu segir að áskilið sé að
framkvæmd aðgerða sem heyra
undir átakið leiði ekki til þess að
bið eftir öðrum valkvæðum aðgerð-
um lengist. Þá þurfa aðilar sem
taka þátt í átakinu að skila mán-
aðarlegri greinargerð um fram-
vindu átaksins.
Langir biðlistar gífurleg sóun
Fréttamannafundur var haldinn í
gær í tilefni af átakinu. Birgir Jak-
obsson landlæknir segir langa bið-
lista vera gífurlega sóun og því hafi
verið nauðsynlegt að ráðast í skipu-
legt átak til að stytta bið sjúklinga
eftir tilteknum brýnum aðgerðum.
„Ég er ánægður með að það skuli
vera ráðist í þetta núna og reynt að
koma þessum biðtíma í það horf þar
sem hann er bestur í nágrannalönd-
unum. Þetta er gífurleg sóun að
hafa svona langa biðlista,“ segir
Birgir.
Stytting
biðlista
boðuð
Átak Ráðherra og forstöðumenn
heilbrigðisstofnana skrifa undir.
1.663 milljónir kr.
á þremur árum
Enskur barnataugalæknir, dr. Wa-
ney Squier, sem hefur veitt sér-
fræðiálit í fjölda dómsmála sem
varða svonefndan barnahristing (e.
shaken baby syndrome) hefur verið
sviptur lækningaleyfi. Squier kom
meðal annars fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur í slíku máli árið 2014.
Enska eftirlitsnefndin komst að
þeirri niðurstöðu að Squier hefði af-
vegaleitt dómstóla með framburði
sínum.
Skoðanir Squier stangast á við
meirihluta sérfræðinga sem telja að
bólgur í heila, blæðingar á milli höf-
uðkúpu og heila og blæðingar á sjón-
himnu séu merki um áverka á börn-
um. Slíkt hefur verið nefnt
barnahristingur á íslensku. Squier
er á öndverðum
meiði og hefur
verið kvödd til
sem sérfræðing-
ur í fjölda mála
þar sem sakborn-
ingar eru sakaðir
um að hafa valdið
dauða ungra
barna með
Árið 2014 kom
Squier fyrir Hér-
aðsdóm Reykjavíkur og gaf skýrslu í
tengslum við mögulega endurupp-
töku máls Sigurðar Guðmundssonar
sem var dæmdur fyrir að hafa valdið
dauða níu mánaða gamals barns á
daggæslu í Kópavogi árið 2001.
Þar hélt Squier því fram að aðrir
þættir hefðu getað skýrt dauða
drengsins og frekari rannsóknir
hefði þurft að gera til að skera úr um
dánarorsök hans. Endurupptöku-
nefnd samþykkti að taka mál Sig-
urðar upp aftur í fyrra.
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður
Sigurðar, segir að niðurstaða ensku
eftirlitsnefndarinnar ógildi ekki allar
niðurstöður hans. Matsgerð læknis-
ins var grundvöllur endurupptöku.
„Hins vegar er alveg ljóst að þessi
úrskurður nefndarinnar ómerkir
ekki sjálfkrafa allt það sem frá henni
hefur komið enda væri það afar sér-
stakt,“ segir Sveinn Andri sem
bendir á að matsgerðir frá Squier
hafi m.a. legið til grundvallar sakfell-
inga í barnahristingsmálum.
Svipt lækningaleyfi
Sveinn Andri
Sveinsson
Lögmaður telur sviptingu ekki þurfa að ógilda vitnisburð
Endurupptaka barnahristingsmáls m.a. fyrir tilstilli SquierMál íbúa Kjósarhrepps og Hval-fjarðar gegn Silicor Materials Inc.,
Skipulagsstofnun og umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu til að fá ógilta
þá ákvörðun að ekki þurfi umhverf-
ismat vegna fyrirhugaðrar kísilverk-
smiðju fyrirtækisins á Grundartanga
verður tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag.
Stefnendur eru fimmtíu og tveir
talsins og er Skúli Mogensen, for-
stjóri WOW air, þeirra á meðal.
„Stefnendur vilja ógilda þá
ákvörðun að stærsta verksmiðja
sinnar tegundar í heiminum sem
beitir byltingarkenndum nýjum að-
ferðum í náttúruperlu sem þegar er
komin að þanmörkum hvað varðar
mengun, þurfi ekki að sæta mati á
umhverfisáhrifum,“ segir Páll Rúnar
M. Kristjánsson, lögmaður stefn-
enda.
Það var Skipulagsstofnun sem tók
þá ákvörðun að fyrirhuguð fram-
kvæmd Silicor Materials á Grundar-
tanga skyldi ekki háð umhverfismati.
„Ekkert kom fram við meðferð
málsins sem benti til þess að starf-
semin kynni að hafa í för með sér um-
talsverð umhverfisáhrif og þyrfti þar
af leiðandi að sæta umhverfismati,“
sagði í tilkynningu stofnunarinnar
29. apríl 2015. laufey@mbl.is
Fyrirtaka 52 stefnendur vilja ógilda
ákvörðun Skipulagsstofnunar.
52 stefna í máli gegn
Silicor Materials