Morgunblaðið - 22.03.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Ársfundur VIRK
Ársfundur VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs verður haldinn
þriðjudaginn 5. apríl á Grand Hótel Reykjavík kl. 13.00-15.00.
Dagskrá auk hefðbundinna ársfundarstarfa:
• Starfsemi VIRK
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK
• Ávinningur af starfsemi VIRK 2015
Benedikt Jóhannesson, tryggingastærðfræðingur
• Aukin atvinnutenging í starfsendurhæfingu
Jónína Waagfjörð, deildarstjóri hjá VIRK
Ársfundurinn er öllum opinn en meðlimir
fulltrúaráðs VIRK hafa einir atkvæðisrétt.
Heilbrigðisráðherra kynnti í gærátak til að stytta bið sjúklinga
eftir aðgerðum. Til átaksins á að
verja rúmum átta hundruð millj-
ónum króna á þessu ári og svipaðri
upphæð samanlagt á
næstu tveimur ár-
um.
Með þessu erstefnt að því
að hámarksbið verði
90 dagar, en síðustu
árin hefur fólk þurft
að bíða margfaldan þann tíma eftir
mikilvægum aðgerðum með tilheyr-
andi óþægindum, hættu og kostnaði.
Og munurinn á þessum fjár-útlátum ríkisins og ýmsum öðr-
um er að þessi hafa ekki í för með
sér viðbótarkostnað og jafnvel tals-
verðan sparnað þegar horft er til
þess að fólk verður fyrr virkara eft-
ir sjúkdóm en ella.
Það sparast ekkert við að hafafólk á biðlistum, nema að vísu
ef fólk fellur frá, sem seint verður
talið markmiðið.
Aðgerðirnar sem kynntar voru ígær þýða gjörbreytingu fyrir
þá sem bíða eftir liðskiptaaðgerð-
um, augasteinsaðgerðum og hjarta-
þræðingum. Biðlistarnir hverfa ekki
í einni svipan, en þeir verða fljótlega
miklu nær því að vera viðunandi.
Átakið er fagnaðarefni og sýnirað ríkisstjórninni er alvara
með að taka á vanda heilbrigðis-
kerfisins.
Vonandi ber stjórnarandstaðangæfu til að styðja þetta fram-
tak, jafnvel þó að samningar heil-
brigðisráðherra séu að hluta til við
einkaaðila, sem stjórnarandstaðan
telur að megi hvergi nærri heil-
brigðisþjónustu koma.
Kristján Þór
Júlíusson
Biðin (hér um bil)
á enda
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 21.3., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 2 alskýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 8 léttskýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Helsinki -1 léttskýjað
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 8 skýjað
Dublin 7 alskýjað
Glasgow 10 alskýjað
London 11 skýjað
París 8 alskýjað
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 7 skúrir
Vín 11 léttskýjað
Moskva -2 heiðskírt
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 8 skúrir
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 17 heiðskírt
Aþena 16 heiðskírt
Winnipeg -1 skýjað
Montreal 2 skýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 6 léttskýjað
Orlando 13 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:19 19:51
ÍSAFJÖRÐUR 7:23 19:57
SIGLUFJÖRÐUR 7:06 19:40
DJÚPIVOGUR 6:49 19:20
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Leikfélag Hólmavíkur í samstarfi
við Grunnskólann á Hólmavík
frumsýndi leikritið Ballið á Bessa-
stöðum eftir Gerði Kristnýju um
helgina. „Það er ljómandi
skemmtilegt að vera forseti þegar
maður hefur hafið sig yfir leið-
indin sem fylgja öllum þessum
bréfum sem maður fær og þarf að
svara,“ segir Jón Jónsson, sem
leikur aðalhlutverkið.
Jón segir að ákveðið hafi verið
að setja verkið upp meðal annars
vegna þess að embætti forsetans
sé í brennidepli um þessar mundir.
„Þetta liggur í loftinu og verkið
hentar því vel, auk þess sem verk-
ið er skemmtilegur söng- og gleði-
leikur fyrir börn og fullorðna,“
segir hann.
Þó Ballið á Bessastöðum sé
gleðileikur er forsetinn leiður á
starfinu og vill gera eitthvað ann-
að. „Hann lendir í miklum ævin-
týrum,“ segir Jón. „Þetta er forseti
sem hefur líf og fjör í fyrirrúmi á
Bessastöðum og er upptekinn af
því.“
Barnamenningarhátíð
Sýningarnar tvær um helgina
voru í tengslum við barnamenning-
arhátíð í Strandabyggð. Jón segir
að verkinu hafi verið mjög vel tek-
ið en þrjár sýningar eru eftir á
Hólmavík, sú næsta í kvöld, og ver-
ið er að skoða að vera með sýn-
ingu í Búðardal. Um 30 til 40
manns koma að sýningunni, sem
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir leik-
stýrir, og þar af um 15 leikarar, en
um 500 manns búa á Hólmavík og í
nágrenni.
Leikfélagið hefur verið mjög
virkt í áratugi og hefur sett upp
leiksýningu árlega, þar af sameig-
inlega með grunnskólanum annað
hvert ár með blöndu af eldri
áhugaleikurum og 14 til 16 ára
krökkum. „Þetta er samstarfsverk-
efni kynslóðanna,“ segir Jón og
bætir við að áhersla hafi verið lögð
á farsa og gamanleikrit.
Forsetinn leiður á bréfunum
Ballið á Bessastöðum Frá vinstri: Jón Valur Jónsson (Lárus Auðarson),
Ester Sigfúsdóttir (Auður) og Jón Jónsson (forsetinn).
Ballinu á Bessastöðum vel tekið á Hólmavík Samstarfsverkefni kynslóð-
anna Fyrirhugað að fara í sýningarferð til Búðardals í næsta mánuði
Ljósmynd/Eiríkur Valdimarsson
Um miðjan dag í gær var tilkynnt
um mann sem hafði hellt yfir sig
bensíni og hótaði að kveikja í sér.
Jafnframt hafði hann hellt bensíni
yfir útidyrahurð að gistiheimili og
hótaði að kveikja í henni. Þetta
kemur fram í dagbók lögreglu höf-
uðborgarsvæðis. Þar segir að mað-
urinn sé hælisleitandi sem hafði
verið vísað út af gistiheimilinu sem
staðsett er við Grensásveg. Maður-
inn var handtekinn og færður á lög-
reglustöð.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð-
inu var óskað eftir aðstoð þeirra en
lögreglan hafði yfirbugað manninn
þegar lögregla kom á staðinn.
Hælisleitandi hótaði
að kveikja í sér