Morgunblaðið - 22.03.2016, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Hugsaðu
um heyrnina!
Hjá Dynjanda færðu heyrnarhlífar
og eyrnartappa.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Hæstiréttur hefur gert karlmanni
sem grunaður er um mansal í Vík að
sæta nálgunarbanni í fimm mánuði.
Á þeim tíma getur hann ekki kom-
ið að, verið nálægt, heimsótt eða sett
sig í samband við eiginkonu sína.
Hún er á meðal þeirra sem munu
bera vitni í dómsmálum gegn hon-
um, bæði hvað varðar meint ofbeldi
gegn eiginkonunni sjálfri og í man-
salsmálinu þar sem tveimur systrum
var haldið föngnum á saumastofu í
húsi mannsins.
Hæstiréttur staðfesti með þessu
niðurstöðu hérðasdóms fyrir utan
það að héraðsdómur kvað á um sex
mánaða nálgunarbann.
Í úrskurði héraðsdóms frá 14.
mars kemur fram að málið hafi haf-
ist 31. október á síðasta ári þegar
eiginkona mannsins óskaði aðstoðar
lögreglu vegna ofbeldis sem hún
kvaðst hafa orðið fyrir af hálfu
mannsins. Neitaði maðurinn sök, en
lögreglustjóri vísaði manninum af
heimili þeirra beggja og setti hann í
þriggja vikna nálgunarbann. Þann
30. nóvember var ákært í málinu og
18. febrúar var gerð húsleit á heimili
þeirra vegna gruns um mansal. Þar
fundust konurnar tvær. Maðurinn
var svo hnepptur í gæsluvarðhald en
hann var talinn líklegur til að reyna
að hafa áhrif á afstöðu konunnar.
Nálgunar-
bann í man-
salsmáli
Settur í 5 mánaða
nálgunarbann
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Bannað Grunaði í mansalsmáli í Vík
má ekki heimsækja eiginkonu sína.
RÚV þarf að greiða 250.000 króna
stjórnvaldssekt vegna áfengis-
auglýsingar sem var birt í Ríkis-
sjónvarpinu í október í fyrra. Þetta
er niðurstaða fjölmiðlanefndar sem
segir að RÚV hafi brotið fjölmiðla-
lög með birtingu auglýsingarinnar.
Fjölmiðlanefnd barst kvörtun frá
Foreldrasamtökum gegn áfengis-
auglýsingum 16. október í fyrra
vegna meintra áfengisauglýsinga á
RÚV. Í kvörtuninni var vísað til
auglýsinga frá Ölgerðinni Agli
Skallagrímssyni á Egils Gulli.
Fjölmiðlanefnd komst að þeirri
niðurstöðu að með birtingu auglýs-
ingar fyrir Egils Gull hafi Ríkis-
útvarpið brotið lög um fjölmiðla.
þar sem kveðið er á um bann við
viðskiptaboðum fyrir áfengi.
Glerflaska eða álumbúðir
Í niðurstöðum fjölmiðlanefndar
segir að í auglýsingunni sé í raun
ekki vísað til vörutegundar sem
hefði minna en 2,25% áfengis-
innihald, heldur vörutegundar sem
hefði hlotið verðlaun World Beer
Awards árið 2011 og hefði 5%
áfengisinnihald. Jafnframt væri
vísað til áfengrar vörutegundar
með því að birta myndir af gler-
flösku en ljóst væri að Egils Gull
með 2,25% áfengisinnihald stæði
neytendum einungis til boða í ál-
umbúðum.
RÚV mótmælti harðlega þeirri
niðurstöðu að birting auglýsingar
hefði brotið í bága við lög en fjöl-
miðlanefnd taldi ekki augljóst að
vísað væri til óáfengs drykkjar.
RÚV sektað um 250.000 kr.
Morgunblaðið/Eggert
Bann RÚV greiðir stjórnvaldssekt vegna birtingar áfengisauglýsingar.
Brutu fjölmiðlalög með birtingu áfengisauglýsingar
Hjálparstarf kirkjunnar hefur hafið
fjársöfnun til að svara neyðarbeiðni
Alþjóðlegs hjálparstarfs kirkna, ACT
Alliance, um 627 milljónir króna til að
aðstoða Eþíópa sem eru á barmi
hungursneyðar vegna þurrka og upp-
skerubrests. Þetta kemur fram í til-
kynningu á vef samtakanna.
Þar segir jafnframt að neyðar-
ástand í norðan- og austanverðri Eþí-
ópíu nú megi rekja til þess að ekki
rigndi á venjubundnum regntíma í
mars á síðasta ári. Ekki rigndi heldur
í ágúst og september þannig að
haustuppskera brást, dýr drápust úr
þorsta og milljónir íbúa urðu háðar
matar- og drykkjaraðstoð.
Eþíópía á
barmi hung-
ursneyðar