Morgunblaðið - 22.03.2016, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Siffon-
mussur
Str. S-XXL | Tveir litir
Nýtt kortatímabil
Kr. 8.900
Vertu upplýstur!
blattafram.is
MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI
ÞOLENDUR OG GERENDUR
KYNFERÐISOFBELDIS
PERSÓNULEGA.
ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA
ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI?
Mc Planet og 3322 - Vor 2016
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
www.facebook.com/spennandi
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is og facebook.com/laxdal.is
Fisléttar Dúnúlpur
- margir litir
Vattjakkar - kr. 19.900
Gallabuxnaúrval
- verðlækkun
Krakkar, mömmur, pabbar, ömmur og afar!
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík efna til páskaeggjaleitar og páska-
eggjabingós víðsvegar um borgina, fimmtudaginn 24. mars
(skírdag) og laugardaginn 26. mars. Leitað verður að fagurlega
skreyttum eggjum og börnin fá súkkulaðiegg.
Munið að taka með körfur eða poka undir eggin
Páskaeggjaleit í Laugardalnum
Leit hefst við þvottalaugarnar í
Laugardalnum, fimmtudaginn 24. mars,
skírdag, kl. 11:00.
Leynigestur ræsir keppnina.
Félög sjálfstæðismanna í Langholti og
Háaleitishverfi.
Páskaeggjaleit áÆgissíðunni
Leit hefst við grásleppuskúrana við
Ægissíðu, fimmtudaginn 24. mars, kl. 13:00.
Leynigestur ræsir keppnina, en einnig
verður haldin húlahoppkeppni og boðnar
kaffiveitingar.
Félög sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi,
Vestur- og Miðbæ og Norðurmýri.
Páskaeggjabingó í Grafarvogi
Bingóið hefst í sjálfstæðisheimilinu í
Grafarvogi í Hverafold 1-3 (3. hæð),
laugardaginn 26. mars, kl. 11:00. Guðlaugur
Þór Þórðarson alþingismaður er bingóstjóri
og spjaldið kostar 250 kr. Húsið opnar kl.
10:30. Afar veglegir vinningar í boði.
Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi.
Páskaeggjaleit &
páskabingó
Hittumst hress í páskaskapi. Allir velkomnir!
› Á RÉTTRI LEIÐ TIL FRAMTÍÐAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Stjórn Landssambands lögreglu-
manna fagnar þeim sinnaskiptum
sem hún segir að virðist hafa orðið
hjá fjármálaráðherra. Segir í ályktun
að sinnaskiptin birtist í þeirri vinnu
sem lögð var í nýlegt svar ráðherrans
við fyrirspurn Bjarkeyjar Olsen
Gunnarsdóttur, þingmanns VG, um
þróun launa lögreglumanna. „LL hef-
ur margítrekað, í kjarasamnings-
viðræðum undanfarin ár, beðið um að
fjármálaráðuneytið vinni þá vinnu
sem birtist í svari ráðherrans. Þeim
beiðnum LL hefur í hvert sinn, m.a.
við úrvinnslu gerðardóms í kjaradeil-
um LL, verið tekið fálega. Á sama
tíma hefur ráðuneytið blásið á þau
gögn sem LL hefur látið vinna sem
sýnt hafa fram á þá þróun sem birtist
í svari ráðherrans,“ segir þar. Jafn-
framt segir að svör ráðherrans hafi
ekki slegið á þá miklu ólgu og reiði
sem sé innan raða lögreglumanna.
„LL er því, á þessum tímapunkti
spurn, hvað ráðherrann hyggist gera
í þessum efnum og sér í lagi í ljósi
þess að síðasta framlengingar-
samkomulag kjarasamningsins var
samþykkt á lagatæknilegum atriðum,
með minnihluta já atkvæða.“
LL segist fagna sinna-
skiptum fjármálaráðherra
Velferðarráðuneytið vinnur að því
að greina mögulegan ávinning af því
að flytja undir eitt þak Greiningar-
og ráðgjafarstöð ríkisins, Heyrnar-
og talmeinastöð Íslands, TMF
Tölvumiðstöð og Þjónustu- og þekk-
ingarmiðstöð fyrir blinda, sjón-
skerta og daufblinda einstaklinga.
Þetta kemur fram í nýrri eftirfylgn-
iskýrslu Ríkisendurskoðunar sem
sagt er frá í tilkynningu á vef Rík-
isendurskoðunar.
Þar segir að árið 2013 hafi Ríkis-
endurskoðun hvatt velferðarráðu-
neytið til að meta faglegan og fjár-
hagslegan ávinning að flutningi
þriggja þessara ríkisstofnana sem
þjóna einstaklingum með skerta
færni í sameiginlegt húsnæði. Einn-
ig taldi Ríkisendurskoðun rétt að
kanna hvort ávinningur fælist í því
að TMF Tölvumiðstöð og Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra flyttust undir eitt
þak með fyrrnefndum stofnunum.
Samskiptamiðstöðin heyrir undir
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið.
Í hinni nýju eftirfylgniskýrslu
Ríkisendurskoðunar kemur fram að
nú þremur árum síðar er unnið að
því að greina mögulegan ávinning af
flutningi umræddra stofnana í sam-
eiginlegt húsnæði, þ.e. allra nema
Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra
og heyrnarskertra en viðræður eru í
gangi um að fella hana undir Há-
skóla Íslands.
Morgunblaðið/Golli
Sameiningar Velferðarráðuneytið
skoðar sameiningar stofnana.
Möguleg
sameining
könnuð
Þrjár stofnanir
undir eitt þak
mbl.is