Morgunblaðið - 22.03.2016, Síða 13
„Samfélagið okkar er svolítið
sniðið að A-týpunni,“ segir Erla
Björnsdóttir. Hún bendir á að
vinnudagurinn sé oft skipulagð-
ur frá 8-4 eða 9-5 sem henti A-
týpunni vel. Nátthröfnum, B-
týpunum svonefndu, líði betur ef
þeir geta farið seint að sofa og
lúrt fram eftir á morgnana. Því
fólki gæti hentað vel að vinna til
dæmis frá kl. 11 á morgnana og
fram að kvöldmatartíma, segir
Erla. Slíkt sé þó oft erfiðara
vegna þess ramma sem atvinnu-
lífið starfar samkvæmt.
„B-fólk er oft litið hornauga
og það jafnvel talið latt,“ segir
Erla. „Þetta er ósanngjarnt því
auðvitað er hægt að afkasta al-
veg jafn miklu þó unnið sé á öðr-
um tímum. En staðreyndin er sú
að B-manneskjur verða oft að
þröngva sér inn í þennan hefð-
bundna ramma og rannsóknir
sýna að í þess hópi eru svefn-
vandamál nokkuð algeng.“
B-týpan litin
hornauga
FLESTIR VINNA FRÁ 8-4
Rjóminn af tískuelítunni í Hollywood var mættur á
hina árlegu verðlaunahátíð The Daily Front Row
Fashion í Los Angeles á sunnudaginn. Hátíðin fór
fram á Sunset Tower-hótelinu þar sem mikið var
um dýrðir og gestir í sínu fínasta pússi. Allir
kepptust um athyglina og ljósmyndarar lágu ekki
á liði sínu. Lady Gaga var þó óumdeild stjarna
hátíðarinnar, fékk enda titilinn ritstjóri ársins
fyrir framlag sitt sem gestaritstjóri V Maga-
zine. „Lady Gaga er gríðarlega hæfileikarík og
einn margslungnasti og undursamlegasti lista-
maður samtímans,“ sagði ritstjóri The Daily Front
Row, sem er tískufréttaveita á netinu, þegar verð-
launin voru afhent.
Eins og gengur gátu sumir baðað sig meira í
sviðsljósinu en aðrir, því óneitanlega beindist athyglin
meira að verðlaunahöfum kvöldsins. Til dæmis Evu
Chow sem var valin fatahönnuður ársins og Bellu
Hadid fyrirsætu ársins.
Lady Gaga valin ritstjóri ársins á tískuhátíð í Los Angeles
Tískufyrirsæta ársins Bella Hadid
þótti flottasta fyrirsætan.
Tískufólk í
fremstu röð
Fatahönnuður ársins Eva Chow
ásamt einum sem vildi vera með.
Ritstjóri
ársins
Lady Gaga
engri lík.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ökumaður Mörg umferðarslys verða þegar ökumenn sofna undir stýri. Hvíld í korter getur gert gæfumuninn.
hugsunum og atferli sem hafa trufl-
andi áhrif á svefn. Þessi meðferð er
árangursríkari leið en langvarandi
notkun svefnlyfja sem getur haft
skaðleg áhrif. Lyf bæla niður ein-
kenni vandans í stað þess að fara að
rótunum,“ segir Erla.
Aðspurð hvernig hugrænni at-
ferlismeðferð í þessum aðstæðum sé
háttað segir hún að fyrsta skrefið sé
að sjúklingur skrái svefnvenjur í
eina til tvær vikur, svefnmynstrið sé
kortlagt og samkvæmt þeim upplýs-
ingum megi útbúa einstaklings-
áætlun.
Eðlilegt að rumska
„Svefnvandi er einstaklings-
bundinn. Stundum eru mikil streita
eða önnur vandamál til staðar. Því
þarf fólk að vera tilbúið að breyta
lífsstíl sínum og venjum,“ segir Erla.
Það er eðlilegt að rumska á
nóttunni og slíkt eykst um fertugs-
aldurinn. Að vakna upp 1-2 sinnum á
nóttu, en sofna aftur, sé ekkert til að
hafa áhyggjur af. Að liggja andvaka
heilu næturnar sé hins vegar alvar-
legt mál og þá sé aðstoðar þörf. „Við
erum öll misjafnlega upplögð á dag-
inn og orkan breytileg eftir því. Ef
við hins vegar ítrekað sofnum yfir
sjónvarpinu, á fundum eða slíkt ætti
fólk að leita til læknis og fá ráð,“
segir Erla sem rekur fyrirtækið
Betri svefn. Á vefsetri þess, á slóð-
inni betrisvefn.is, er boðið upp á
meðferð yfir netið og reynslan af því
er góð. Þá sinnir hún rannsóknum á
þessu sviði með vísindamönnum á
Landspítalanum, sem á sínu sviði
hafa náð góðum árangri.
Lánsöm í starfi
„Ég er svo lánsöm að vera um-
kringd frábærum vísindamönnum á
Landspítalanum þar sem mikil
virkni er í svefnrannsóknum undir
styrkri stjórn Þórarins Gíslasonar
og Bryndísar Benediktsdóttur
lækna. Íslenski hópurinn stendur
framarlega á alþjóðavettvangi og ég
hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að
fá að starfa með fremstu vísinda-
mönnum heims á sviði svefnrann-
sókna,“ segir Erla.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
María K. Jónsdóttir
Sölufulltrúi
www.fr.is
Sylvía G.Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali. sylvia@fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDUNÚNA
8208081
Garpar Ætli fólk sér að ganga á jökulinn þarf það að vera í þokkalegu formi og
vel útbúið, því jöklaferðir krefjast góðs undirbúnings og þjálfunar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Snæfellsjökull 1.446 m. hár og sést víða að. Útsýnið af hnúknum er einstakt.