Morgunblaðið - 22.03.2016, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Syndsamlega góður eftirréttur
...með engri fyrirhöfn
Samninganefndir níu aðildarfélaga
BHM og Sambands íslenskra sveit-
arfélaga undirrituðu undir morgun í
gær samkomulag um breytingar og
framlengingu á kjarasamningum
aðila. Aðildarfélög BHM sem standa
að samkomulaginu eru Dýrlækna-
félag Íslands, Félag íslenskra félags-
vísindamanna, Félag íslenskra nátt-
úrufræðinga, Félagsráðgjafafélag
Íslands, Fræðagarður, Iðjuþjálfa-
félag Íslands, Sálfræðingafélag Ís-
lands, Stéttarfélag bókasafns- og
upplýsingafræðinga og Þroska-
þjálfafélag Íslands, samkvæmt upp-
lýsingum á vefsíðu BHM í gær. Nýi
samningurinn verður kynntur fé-
lagsmönnum á næstu dögum og kos-
ið um hann. Tilkynna þarf niður-
stöðu kosninga um samninginn ekki
síðar en 5. apríl.
Níu BHM-félög náðu
kjarasamningum
Sátt Viðræður BHM og sveitarfélaga hafa
staðið yfir í húsnæði Ríkissáttasemjara.
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég get ekki sagt það en það er
skemmtileg tilviljun að hann hafi líka
verið formaður Orators. Stóri bróðir
er mikil fyrirmynd en hann var í
þessu áður en ég fæddist,“ segir Sig-
ríður Erla Sturludóttir, nýkjörinn
formaður Orators, félags laganema
við Háskóla Íslands. Hún var spurð
að því hvort það hefði haft áhrif á að
hún sóttist eftir formennskunni að
bróðir hennar, Gunnar Sturluson lög-
maður, var formaður fyrir 28 árum.
Sigríður Erla er að ljúka öðru ári í
lagadeild. „Ég sóttist eftir þessu
vegna þess að mér finnst svo
skemmtilegt að vinna fyrir Orator.
Ég hef starfað þar frá því að ég byrj-
aði í náminu, var til að mynda hags-
munafulltrúi á fyrsta árinu.“
Þriðji lögfræðingurinn
„Ég tók lögfræðiáfanga í Versló og
fannst hann áhugaverður. Lögfræðin
nær yfir helstu svið mannlegra sam-
skipta. Ég hef mikinn áhuga á fólki
og samskiptum við fólk. Ég tel að það
geti líka haft áhrif að pabbi [Sturla
Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi, fyrrverandi alþingismaður og
ráðherra] var á þingi og tók þar þátt í
að setja lög. Mér fannst það áhuga-
vert. Það spilar líka inn í að mamma
mín og bróðir minn eru lögfræðingar
en þó á mismunandi sviðum,“ segir
Sigríður Erla. Móðir hennar, Hall-
gerður Gunnarsdóttir, úrskrifaðist
sem lögfræðingur 55 ára gömul og
starfar hjá gjafsóknarnefnd hjá
Sýslumanninum á Vesturlandi í
Stykkishólmi. Gunnar er lögmaður
og eigandi hjá Logos, stærstu lög-
mannsstofu landsins.
„Það virðist vera að áhugi á fé-
lagsmálum plagi þessa fjölskyldu,“
segir Gunnar Sturluson. Mörg þeirra
hafa starfað í stúdentapólitíkinni á
háskólaárunum, meðal annars El-
ínborg sem er nú prestur í Stafholti
og starfandi í félagsmálum þjóðkirkj-
unnar. Ásthildur er bæjarstjóri í
Vesturbyggð og Böðvar hefur starf-
að innan Sjálfstæðisflokksins. Sjálfur
hefur Gunnar verið í forystusveit
hestamanna síðustu tíu árin, fyrst
sem stjórnarmaður í Landssambandi
hestamannafélaga og síðar sem for-
seti FEIF sem eru alþjóðasamtök
um íslenska hestinn.
Hann notar líkindi úr hrossarækt-
inni og segir að félagsmálaáhuginn
virðist erfast vel. Móðurafi systk-
inanna, Gunnar Guðbjartsson á
Hjarðarfelli, formaður Stéttar-
sambands bænda, var einnig í flest-
um nefndum og stjórnum í sveit sinni
og héraði og föðuramma þeirra, El-
ínborg Ágústsdóttir í Ólafsvík var í
fararbroddi við að koma á og sjá um
húsmæðraorlof og starfaði einnig
mikið í leikfélaginu.
Margir áberandi menn í þjóðfélag-
inu hafa byrjað þátttöku í opinberu
lífi sem formenn Orators, og emb-
ættið hefur stundum verið stökk-
pallur fyrir áhugasama stjórnmála-
menn. Sigríður Erla segir ekkert
slíkt vaka fyrir sér. „Ég er ekki
spennt fyrir því að setjast á Alþingi,
eins og staðan er í dag, en veit ekki
hvað framtíðin ber í skauti sér. Sem
dóttir stjórnmálamanns get ég ekki
sagt að það sé spennandi starf þótt
mér finnist áhugavert að vinna fyrir
samfélagið og gefa þannig af mér. En
ég hef lært að maður á aldrei að segja
aldrei.“
Fræðastarfið mikilvægt
Formaður Orators á að vera andlit
félagsins út á við og gæta hagsmuna
nemenda við lagadeildina. Hann
stýrir almennri starfsemi félagsins
og sér til þess að allir séu að sinna
sínum verkum. „Þetta er heilmikið
starf. Orator er með mikla starfsemi,
skemmtanir og fræðastarf, og miklar
hefðir eru við lagadeildina sem þarf
að sjá um að hafðar séu í heiðri,“ seg-
ir hún.
Félagið var stofnað 1928. Sigríður
Erla lætur þess getið að hún hafi tek-
ið við formennskunni af Silju Rán
Arnarsdóttur úr Grundarfirði og því
haldist embættið á Snæfellsnesi.
Gunnar segist ekki hafa fylgst
nógu vel með starfi Orators til að
geta gefið nýkjörnum formanni ráð.
Hann segir þó að mjög merkilegt
starf hafi verið unnið á þeim vett-
vangi. Nefnir hagsmunabaráttuna og
baráttu félagsins fyrir því að bæta
laganámið. Einnig hafi þar verið öfl-
ugt fræðastarf, ekki síst með útgáfu
Úlfljóts sem lengi vel hafi verið eitt
helsta fræðitímarit landsins um lög-
fræði.
Kosin formaður Orators 28
árum á eftir stóra bróður
Félagsmálaáhugi plagar Sigríði Erlu Sturludóttur og systkini úr Stykkishólmi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Systkini Sigríður Erla Sturludóttir, nýkjörinn formaður Orators, getur leitað í smiðju til bróður síns, Gunnars, sem
var kosinn formaður fyrir 28 árum. Gunnar er elstur fimm systkina úr Stykkishólmi og Sigríður Erla yngst.
607 tilkynningar
bárust um hegn-
ingarlagabrot í
febrúar, sem
gerir um það bil
21 tilkynningu á
dag. Þar af bár-
ust 63 tilkynn-
ingar um innbrot
í febrúar, skv. afbrotatölfræði lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu. Ekki hafa borist jafn fáar til-
kynningar um innbrot í einum
mánuði síðan í febrúar 2014. Til-
kynnt voru 18 kynferðisbrot í mán-
uðinum sem er nokkur aukning frá
janúar. Það sem af er ári hafa bor-
ist færri tilkynningar um kynferðis-
brot miðað við meðalfjölda árin
2013 til 2015. Brotum þar sem öku-
maður var grunaður um akstur
undir áhrifum ávana- og fíkniefna
fjölgar á milli mánaða og hefur
skráðum brotum fjölgað í hverjum
mánuði frá því í október 2015.
Ekki færri innbrot
frá febrúar 2014
Tekið var fyrir mál Reykjavíkur
gegn Kópavogsbæ, Mosfellsbæ,
Grindavík og Ölfusi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Aðalmeðferð er
áætluð í maí á þessu ári. Snýst málið
um eignarrétt að landsvæði sem
liggur að öllum nefndum sveitar-
félögum.
Öll sveitarfélögin ásamt Seltjarn-
arnesi, sem einnig var stefnt, hafa þó
ákveðið að láta málið ekki til sín
taka.
Miklir hagsmunir í húfi
Landsvæðið sem deilurnar standa
um er til að mynda allt Bláfjalla-
svæðið, hálendið upp af Reykjavík
og Kópavogi þar sem finna má m.a.
Þríhnjúkagíg og það sem fyrir augu
ber þegar keyrt er upp á Hellisheiði.
Óbyggðanefnd hafði upphaflega úr-
skurðað landsvæðið þjóðlendu sem
staðfest var af Hæstarétti. En fyrir
tveimur árum var þeirri niðurstöðu
hnekkt í öðru máli þar sem óbyggða-
nefnd komst að þeirri niðurstöðu að
svæðið væri innan staðarmarka
Kópavogs. Þetta segir lögmaður
stefnda Kópavogs, Guðjón Ár-
mannsson, hrl.
Í umræddu dómsmáli gerir
Reykjavíkurborg þá kröfu að úr-
skurði Óbyggðanefndar verði
hnekkt og svæðið allt verði talið inn-
an staðarmarka borgarinnar.
Kópavogsbær krefst hins vegar
sýknu og að úrskurður óbyggða-
nefndar standi þannig að svæðið
verði allt talið innan staðarmarka
sveitarfélagsins.
Segir Guðjón að málið sé viðamik-
ið og flókið því þarna komi til dæmis
inn í umráðasvæði Orkuveitu
Reykjavíkur því þarna séu vatns-
verndarsvæði höfuðborgarsvæðis-
ins. „Þetta er stórt og umdeilt mál
enda miklir hagsmunir í húfi.“
Miklir hagsmunir í
deilu sveitarfélaga
Deila um landsvæði við Hellisheiði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dómsmál Bláfjallasvæðið er hluti
þess landsvæðis sem deilt er um.