Morgunblaðið - 22.03.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
lÍs en ku
ALPARNIR
s
FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727
alparnir.is
Tollalækkun Salomonskór á ennbetra verðien áður!Salomon
Speedcross 3
herraskór
Stærðir 36-41
Verð
áður 29.995 kr.
nú 24.995 kr.
MÁ BJÓÐA ÞÉR
Í SJÓNMÆLINGU?
NÝ SENDING AF
UMGJÖRÐUM
Traust og góð þjónusta í 19 ár
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími 554 3200
Opið virka daga 9.30-18, laugardaga 11–14
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Forstöðumaður siglingasviðs Vega-
gerðarinnar hefur stigið fram og við-
urkennt að um verulegt ofmat hafi
verið að ræða á gæðum á allri rann-
sóknarvinnu er lúti að Landeyja-
höfn,“ segir Sveinn Rúnar Valgeirs-
son, skipstjóri á Lóðsinum í Vest-
mannaeyjum, en brösuglega hefur
gengið að dýpka Landeyjahöfn frá
því að belgíska dýpkunarskipið Gali-
leo 2000 var fengið til landsins síðla í
febrúar.
„Núna segir forstöðumaðurinn að
það taki 10 til 15 ár að gera nauðsyn-
legar endurbætur á höfninni og það
takist jafnvel aldrei.“
Vandinn liggur í hönnun dælu-
skipa sem notuð hafa verið við Land-
eyjahöfn að sögn Sveins en Galileo
er 80 metra langt og undir miðju
skipsins fer dæluhausinn niður.
„Þetta þýðir að skipið er með 40
metra bæði fyrir framan og aftan
dæluhausinn en til að komast inn í
höfnina þarf að taka sandbakka við
innsiglinguna og þannig þarf að sigla
skipinu 40 metra upp á bakkann áð-
ur en hægt er að dæla af honum.
Þetta getur valdið vandræðum þar
sem straumurinn er oftast í vestur
þvert við hafnarmynnið og þá stend-
ur annar hluti skipsins í straumnum
en hinn inn í lygnuna.“
Ráðum ekki veðrinu
Sigurður Áss Grétarsson, for-
stöðumaður siglingasviðs Vegagerð-
arinnar, segir verkið við Landeyja-
höfn fyrst og fremst ganga hægt
vegna veðurs.
„Þetta er ekki mikill tími sem hef-
ur farið forgörðum en samt einhver.
Veðrið er helsta ástæða þess að
þetta gengur hægar og ég vildi feg-
inn að þetta verk myndi ganga betur
og hraðar en við ráðum ekki veðr-
inu.“
Jafnframt vísar Sigurður til byrj-
unarörðugleika og segir menn að
sjálfsögðu fara varlega við nýjar og
erfiðar aðstæður, líkt og þær sem
eru við Landeyjahöfn.
Andrés Sigurðsson, hafnsögu-
maður í Vestmannaeyjum, tekur
undir með Sigurði og segir fáa góða
daga hafa verið undanfarið.
„Skipið fer út þegar veður leyfir
og aðstæður eru hentugar. Það hafa
ekki verið margir góðir dagar í vetur
en þegar skipið fer út og aðstæður
eru ásættanlegar eru afköstin mjög
góð.“
Ekki náðist í skipstjóra Galileo
2000 en hann starfar hér á landi í
þrjár vikur í einu og þá tekur nýr við
næstu þrjár.
Brösuglega gengur að dýpka Landeyjahöfn
Ofmat var á gæðum rannsókna við Landeyjahöfn að sögn skipstjóra Lóðsins Vegagerðin segir
veðurfar og byrjunarörðugleika fyrst og fremst valda töfum á dýpkunarframkvæmdum
Landeyjahöfn Skipið Galileo 2000 kom til landsins síðla í febrúar.
Meirihluti landsmanna, eða tæp-
lega 52%, er hlynntur því að stað-
göngumæðrun verði leyfð hér á
landi samkvæmt niðurstöðum
nýrr-ar skoðanakönnunar Mask-
ínu.
Tæpur fjórðungur, eða 23-24%.
er því hins vegar andvíg. Karlar
eru hlynntari því að leyfa stað-
göngumæðrun en konur eða rúm-
lega 56% á móti 46-47%. Yngra
fólk er að sama skapi mun hlynnt-
ara staðgöngumæðrun en þeir sem
eldri eru. Þeir sem eru háskóla-
menntaðir eru hins vegar síður
líklegir til þess að styðja stað-
göngumæðrun en þeir sem hafa
minni formlega menntun.
Ef horft er til stjórnmálaflokka
er minnstur stuðningur við stað-
göngumæðrun á meðal kjósenda
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs og Samfylkingarinnar.
Minni hluti stuðningsmanna flokk-
anna styður staðgöngumæðrun en
meirihluti stuðningsmanna hinna
flokkanna.
Meirihluti hlynntur
staðgöngumæðrun
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð
Héraðsdóms Suðurlands þar sem
manni var gert að sæta gæslu-
varðhaldi í fjórar vikur eða til 8. apr-
íl vegna líkamsárásar sem átti sér
stað aðfaranótt laugardagsins 12.
mars í Vestmannaeyjum.
„Verður að fallast á það með lög-
reglustjóra að ætla megi að kærði
muni halda áfram brotum meðan
máli hans er ekki lokið og að rök-
studdur grunur leiki á að hann hafi
rofið í verulegum atriðum skilyrði
sem honum hafa verið sett í skilorðs-
bundnum dómi,“ segir í úrskurði
héraðsdóms sem Hæstiréttur stað-
festir.
Maðurinn sem um ræðir á að sögn
lögreglustjóra langa brotahrinu að
baki þrátt fyrir ungan aldur og þá
aðallega líkamsárásir og fíkniefna-
lagabrot frá því í maí 2014. Hann
hafi hlotið fjóra dóma fyrir slík brot
auk þjófnaða, gripdeild og nytja-
stuld.
Telur lögreglustjóri jafnframt að
mögulegt sé að afgreiða hratt og
örugglega fyrir dómstólum þau ell-
efu mál sem enn er ólokið á hendur
manninum í réttarvörslukerfinu ef
hann verði vistaður í gæsluvarðhaldi
á meðan. Maðurinn hafi ennfremur
með háttsemi sinni reynt að hafa
áhrif á vitni í máli sem þegar hafi
verið þingfest.
Lögreglustjórinn telur nauðsyn-
legt að maðurinn verði vistaður í sí-
brotagæslu til að koma í veg fyrir að
hann haldi brotum sínum áfram á
meðan málum hans er ekki lokið.
Fór hann því fram á gæsluvarðhald
til 14. apríl en héraðsdómur hafnar
því. Tekið er fram í niðurstöðum
dómsins að gæsluvarðhaldi verði
ekki markaður lengri tími en 4 vikur
í senn samkvæmt lögum.
Morgunblaðið / Kristinn
Vist Hæstiréttur staðfesti úrskurð
héraðsdóms um gæsluvarðhald.
Með langan brotafer-
il í gæsluvarðhaldi
Kærður vegna líkamsárásar í Eyjum