Morgunblaðið - 22.03.2016, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
ÚRVALS SÓSUR
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
B
ra
nd
en
b
ur
g
Ekki laumupokast
Breyting á endurvinnslustöðvum. Gerðu öllum auðveldara
fyrir og komdumeð blandaða úrganginn í glærum poka
Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is
Elstu kórbjöllu landsins, að talið er,
er að finna í Heydalakirkju í Breið-
dal. Kristján heitinn Eldjárn, fyrr-
verandi þjóðminjavörður og síðar for-
seti Íslands, áleit á sínum tíma að
bjallan væri frá 12. öld. Þessi dýr-
gripur hefur verið geymdur í sér-
stökum viðhafnarskáp í Heydala-
kirkju allt frá árinu 1958, án þess að
gegna sérstöku hlutverki undanfarið.
„Við tókum á móti Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands, í kirkj-
unni árið 2001 og hringdum þá bjöll-
unni og aftur sumardaginn fyrsta
2015, þegar Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra heimsótti
okkur á hátíð og hélt ræðu í minningu
séra Einars Sigurðssonar, prests og
sálmaskálds í Heydölum. Þá var
ákveðið að bjallan yrði aftur tekin til
notkunar við helgihaldið í kirkjunni,“
sagði séra Gunnlaugur Stefánsson,
sóknarprestur í Heydölum. Ákveðið
var að kórbjallan fengi hlutverk í
fermingarathöfnum í Heydalakirkju
þannig að hvert fermingarbarn
hringdi bjöllunni til að minnast ferm-
ingar sinnar.
Guðni Berg Hauksson varð þess
heiðurs aðnjótandi að hringja bjöll-
unni fyrstur fermingarbarna þegar
hann fermdist í Heydalakirkju laug-
ardaginn 19. mars sl. Aþena Sól
Káradóttir hélt á bjöllunni. Hún er í
fermingarfræðslu fyrir austan en ætl-
ar að fermast í Reykjavík.
Anna Þorsteinsdóttir, prestsfrú í
Heydölum í 40 ár til ársins 1987,
skrifaði að Stefán Guðmundsson í
Felli hefði afhent henni bjölluna sum-
arið 1958. Hann kvaðst hafa tekið
hana til varðveislu þegar prestslaust
varð á staðnum eftir séra Vigfús
Þórðarson. Bjallan var í kirkjunni
fram yfir aldamótin 1900. Henni var
hringt við sérstakar athafnir eins og
skírn, hjónavígslu eða innleiðslu en
konur voru leiddar í Heydalakirkju
eftir barnsburð allt til ársins 1903.
gudni@mbl.is
Ljósmynd/Sif Kjartansdóttir
Heydalakirkja Aþena Sól Káradóttir og fermingardrengurinn Guðni Berg
Hauksson með elstu kórbjöllu landsins sem talið er að sé frá 12. öld.
Börn hringja
elstu kórbjöllunni
Hringja í tilefni fermingar sinnar
Reykjavíkurborg
auglýsir eftir
hugmyndum að
rekstri á hjóla-
leigu í Reykja-
vík. Borgarráð
hefur samþykkt
að auglýsa í for-
vali eftir áhuga-
sömum aðilum til
að koma á fót og reka hjólaleigu í
Reykjavík. Aðkoma borgarinnar
verður fyrst og fremst fólgin í að
skapa aðstöðu og leggja til borgar-
land, en sérhæfðum aðilum látið
eftir að sjá um uppsetningu og allan
rekstur. Auk upplýsinga um þátt-
takanda, hvort heldur einstakling
eða lögaðila, er óskað eftir lýsingu
á hvernig viðkomandi sér rekstur-
inn fyrir sér. Sérstaklega er óskað
eftir lýsingu á þremur þáttum:
Hugmyndir um fjölda hjóla og
leigustöðva.
Lýsing á tæknilegum lausnum
sem boðið er upp á. Hugmyndum að
staðsetning stöðva á borgarlandi,
ef það er hluti af hugmyndinni.
Auglýsa eftir fólki til
reksturs hjólaleigu
Fjórir fulltrúar af framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi
hafa óskað eftir að vera leystir und-
an setu í sveitarstjórn út kjörtíma-
bilið. Ástæðan er sú að þeir geta ekki
gegnt störfum varafulltrúa fyrir sitj-
andi fulltrúa.
Erna Björnsdóttir, bæjarfulltrúi
flokksins, segir að ákveðin rúlletta
hafi farið í gang þegar Friðrik Sig-
urðsson, oddviti flokksins í sveitar-
stjórn, sagði af sér störfum vegna
flutnings til Akureyrar. Erna var
fyrsti varamaður og tók sæti Frið-
riks og var kosin forseti sveitar-
stjórnar í hans stað. Kom í ljós að
næsta fólk á listanum sem að öðru
jöfnu hefði átt að starfa sem vara-
fulltrúar gat ekki sinnt þeim störfum
af mismunandi ástæðum. Meðal ann-
ars er einn fluttur úr landi, tveir upp-
teknir við nám og tveir eru í þannig
störfum og búsettir það langt í burtu
að þeir eiga erfitt með að mæta á
fundi.
Erna segir að fulltrúar flokksins
geti ekki boðað hvaða fulltrúa sem er
neðar á listanum, þeir þurfi að hafa
kjörbréf sem varamenn. Varamenn
verða nú Stefán Jón Sigurgeirsson,
Jóhanna Kristjánsdóttir og Kristín
Ýr Einarsdóttir. Þau voru í 9., 10. og
12. sæti framboðslistans við síðustu
sveitarstjórnarkosningar.
Erna tekur fram að þessar breyt-
ingar hafi engin áhrif á meirihluta-
samstarf Sjálfstæðisflokks og VG í
sveitarstjórn Norðurþings.
Hreyfing á fólki
Mikið er um að vera í sveitarfé-
laginu vegna iðnaðaruppbyggingar-
innar á Bakka. Erna segir að það
kunni að eiga þátt í því að talsverð
hreyfing sé á fólki. Þegar fasteigna-
verði hækki losni um og fólk sem
lengi hafi viljað selja geti kannski
gert það og fengið eðlilegt verð fyrir.
helgi@mbl.is
Varafulltrúar sóttir niður
fyrir miðjan framboðslista
Hreyfing á framboðslista Sjálfstæðisflokks í Norðurþingi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Húsavík Mikið umrót er í Norður-
þingi þessi árin og margir flytja.
Rannsókn á málum lögreglumann-
anna tveggja, sem störfuðu hjá
fíkniefnadeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, stendur enn
yfir hjá héraðssaksóknara og ríkis-
saksóknara.
Enn hefur engin ákvörðun verið
tekin um framhald málanna, en
málið sem ríkissaksóknari er með
til skoðunar er þó á seinni stigum.
Fyrri lögreglumaðurinn var sett-
ur í gæsluvarðhald milli jóla og ný-
árs en hann er grunaður um óeðli-
leg samskipti við brotamenn með
því að hafa lekið upplýsingum og
jafnvel þegið greiðslur fyrir. Barst
saksóknara í hendur upptaka af
samskiptum mannsins við brota-
mann. Í seinna málinu er einnig um
að ræða lögreglumann sem sakaður
er um að hafa átt í óeðlilegum sam-
skiptum við brotamenn. Er það mál
til rannsóknar hjá embætti héraðs-
saksóknara. thorsteinn@mbl.is
Lögreglumenn enn til rannsóknar