Morgunblaðið - 22.03.2016, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklumeira, en bara ódýrt
frá 3.995
frá 795
Hjólkoppar
12” 13” 14” 15” 16”
Jeppa/fólksbíla
tjakkur 2,25T
lyftihæð 52 cm
Sonax vörur
í úrvali á
frábæru
verði
12V fjöltengi
m/USB
Straumbreytar
12V í 230V,
margar gerðir
4.995
Bílabónvél
Hjólastandur
f/bíl
Viðgerðarkollur,
hækkanlegur
frá 4.995
8.995
Loftdæla
12V 35L
2.995
Loftmælir
Bíla- og glugga-
þvottakústar
frá 6.995
Þjöppumælar
Mössunarvél 1200W,
hraðastýrðmeð púðum
Avomælar
frá 1.695
7.999
19.995
Verðmæta-
skápar
mikið úrvalfrá 6.995
!"
#
#
$#%
#
$
%
$#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$
%#
#
$
$ $
%
%
$!
$#
!!#
##"
#!"
$#
!
!
%"
$!#
#%%
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Yfir 96% tóku
tilboði í hlutabréf í
Bakkavör sem til-
kynnt var um í lok
febrúar, þegar félag
í eigu bandaríska
fjárfestingarfélags-
ins Baupost Group
og stofnenda
Bakkavarar, Ágústs
og Lýðs Guðmunds-
sona, bauð í um
10% hlutafjár. Eftir útboðið fer félag
Baupost, Ágústs og Lýðs með samtals
99,5% hlutafjár í Bakkavör. Alls fengu
um 2.800 íslenskir hluthafar í Bakkavör
tilboð og mun sala þeirra hluthafa sem
tóku tilboðinu ganga í gegn þriðjudaginn
29. mars og er dagsetning greiðslu-
uppgjörs 12. apríl næstkomandi.
Baupost, Ágúst og Lýður
með 99,5% í Bakkavör
Ágúst
Guðmundsson
● Flugakademía Keilis hefur gert sam-
starfssamning við Framtíðina náms-
lánasjóð hf. sem gefa mun nemendum
Keilis, sem hyggjast stunda nám í sam-
tvinnuðu atvinnuflugmannsnámi, aukin
tækifæri til töku námslána fyrir skóla-
gjöldum. Framtíðin er námslánasjóður
sem hóf göngu sína snemma árs 2015.
Framtíðin veitir lán til
atvinnuflugmannsnáms
STUTTAR FRÉTTIR ...
Dröfn, sem eins og áður segir nýtur
stuðnings Lífeyrissjóðs verslunar-
manna. Hefði Guðný náð fleiri at-
kvæðum en ein þeirra, hefðu einka-
fjárfestarnir náð meirihluta í
stjórninni.
Snerist á hæli á lokametrunum
Innan við sólarhring fyrir aðal-
fundinn barst tilkynning í gegnum
fréttakerfi Kauphallarinnar að Guð-
mundur Þórðarson og Jóhann Hall-
dórsson hefðu dregið framboð sín til
baka. Því var ljóst að ekki var hægt að
ljúka stjórnarkjörinu á aðalfundinum
17. mars því aðeins einn karlmaður
var í framboði. Skjóta varð fundinum
á frest og verður hann haldinn þann
6. apríl næstkomandi. Áreiðanlegar
heimildir Morgunblaðsins herma að
tvær ástæður séu fyrir því að tví-
menningarnir hafi dregið framboð sín
til baka. Annars vegar vildu þeir
halda opnum þeim möguleika að geta
losað um hluti sína í félaginu, en
stjórnarmenn sem fruminnherjar eru
bundnir af ströngum reglum þar um.
Hins vegar hafi þeir ekki viljað að
stjórnarkjörinu myndi vinda fram
þegar ljóst varð að Jostein Sørvoll
myndi ekki mynda meirihluta með
Guðmundi og Guðnýju Hansdóttur í
stjórninni og tryggja að skipt yrði um
stjórnarformann.
Skákað í skjóli kynjakvóta
við stjórnarkjör hjá VÍS
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stjórn Átök hafa komið upp innan eigendahóps VÍS eftir að stjórn félagsins lækkaði arðgreiðslutillögu sína verulega.
Hugðust mynda blokk gegn lífeyrissjóðum Norðmaðurinn gekk úr skaftinu
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Einkafjárfestar, með umtalsverðan
eignarhlut í tryggingafélaginu VÍS,
freistuðu þess í aðdraganda aðal-
fundar félagsins að ná meirihluta í
stjórn félagsins og skáka til hliðar nú-
verandi stjórnarformanni, Herdísi
Dröfn Fjeldsted. Hún hefur notið
stuðnings Lífeyrissjóðs verslunar-
manna í stjórn félagsins en hún er
einnig framkvæmdastjóri Framtaks-
sjóðs Íslands, sem er í eigu 15 lífeyr-
issjóða, Landsbankans og VÍS.
Fjárfestahópurinn hugðist nýta
reglur um kynjakvóta til að tryggja
hópnum þrjá stjórnarmenn í kosn-
ingu á aðalfundi og sæti stjórnarfor-
manns. Þetta herma áreiðanlegar
heimildir Morgunblaðsins. Byggðist
aðferðin á því að ef aðeins tveir ein-
staklingar af öðru kyninu bjóða sig
fram til stjórnar, eru þeir hinir sömu
sjálfkjörnir í stjórn. Þegar svo stend-
ur á geta þeir hluthafar sem að öðr-
um kosti myndu ljá viðkomandi at-
kvæðismagn sitt nýtt þau til að
tryggja öðrum frambjóðendum
brautargengi. Í stjórnarkjörinu voru
þrír karlar í framboði, allir fulltrúar
einkafjárfesta en þá voru einnig í
framboði fjórar konur, þrjár sem
nutu stuðnings lífeyrissjóða en ein
sem einkafjárfestarnir hugðust
styðja.
Markmið fjárfestahópsins var að
fá tvo karlkyns frambjóðendur sjálf-
kjörna inn með því að einn hinna
þriggja sem í framboði voru drægi
framboð sitt til baka. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins átti það
að vera Jóhann Halldórsson en að
Guðmundur Þórðarson og Jostein
Sørvoll, sem báðir hafa átt sæti í
stjórninni frá aðalfundi síðasta árs,
héldu framboðum sínum til streitu. Í
kjölfar þess að Jóhann drægi fram-
boð sitt til baka hefðu einkafjárfestar
sem annars hefðu greitt Guðmundi og
Jostein atkvæði sín, stutt Guðnýju
Hansdóttur. Samtakamáttur einka-
fjárfestanna hefði þá að öllum líkind-
um tryggt Guðnýju fleiri atkvæði en
einhverri þeirra þriggja kvenna sem
þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins
styðja til stjórnar. Í framboði voru
þær Helga Jónsdóttir, sem nýtur
stuðnings Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins, Helga Hlín Hákonardóttir,
sem nýtur stuðnings Gildis og Herdís
Regluleg laun landsmanna voru að
jafnaði 7,2% hærri á árinu 2015 en
2014, sem gaf að meðaltali 5,5%
kaupmáttaraukningu. Þá voru laun á
4. ársfjórðungi liðins árs 8,8% hærri
en á sama ársfjórðungi 2014 og
kaupmátturinn var 6,7% meiri.
Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá
hagfræðideildar Landsbankans.
Segir þar að kaupmáttur launa á
Íslandi sé nú meiri en hann hafi „ver-
ið nokkurn tímann áður“.
„Kaupmáttur út frá launavísitölu
varð hæstur í ágúst 2007 og náði svo
aftur sama stigi í nóvember 2014 og
hefur aukist um 8,3% síðan þá.
Launahækkanir hafa verið miklar
síðustu mánuði og var 12 mánaða
launahækkunartaktur tæp 10% í
janúar og febrúar í ár,“ segir um
þróun launa í Hagsjánni.
Ferðaþjónusta á þátt í hækkun
Fram kemur að frá 4. ársfjórðungi
2014 hafi laun hækkað mest í sam-
göngum eða flutningum, eða um
10,3%, og er í því efni bent á mikinn
uppgang í ferðaþjónustu. „Hækkan-
ir í hinum ýmsu greinum eru í kring-
um 9% nema í fjármálaþjónustu þar
sem hækkunin er einungis 7,7%,“
segir hagfræðideild Landsbankans.
Kaupmáttur launa
aldrei verið meiri
Launaþróun og kaupmáttur
Vísitala, janúar 2011=100 Laun Kaupmáttur
Heimild: Hagstofa Íslands, Hagfræðideild Landsbankans.
145
140
135
130
125
120
115
110
105
100
95
jan
úar
´11
ágú
st´
11
ma
rs´
12
okt
.´1
2
ma
í ´1
3
des
.´1
3
júlí
´14
feb
.´1
5
sep
.´1
5