Morgunblaðið - 22.03.2016, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Það er nauðsynlegt
að fólk geti fundið sér
íbúð að búa í á þeim
tíma sem það flytur úr
foreldrahúsum og að
íbúðin sé á þeim kjör-
um að viðkomandi ráði
við þau. Að undanförnu
hafa verið umræður um
að hvorugt þetta sé til
staðar í íslensku þjóð-
félagi. Þetta er ekki síð-
ur æskilegt fyrir þjóð-
félagið, til að halda í sitt
unga fólk, sem er að
hefja sitt ævistarf og á
að standa undir velferð
þegnanna í náinni
framtíð.
Fjárfestum í fyrstu
íbúðinni með unga
fólkinu okkar
Þörf fyrir nýjar íbúð-
ir er innan við tvö þús-
und á ári að mati þeirra
sem hafa fjallað um
þörfina að undanförnu.
Hvað ætli stór hluti
þeirra sem kaupa þær þurfi aðstoð við
fyrstu skrefin? Eigum við að giska á ¼
eða u.þ.b. 500.
Erfiðasti hjallinn fyrir þann hóp er
að leggja fram peninga í upphafi, sem
þarf að gera nú vegna hámarks á lán-
um í hlutfalli við verðmæti eignar-
innar. Sé gert ráð fyrir að framlagið
sé sex milljónir kr. á íbúð og 500 íbúð-
ir, þá er um að ræða 3.000 milljónir á
ári.
Þessa peninga getum við auðveld-
lega lagt fram úr sameiginlegum sjóð-
um okkar gegn því að eignast sam-
svarandi hlut í íbúðunum til skemmri
tíma. Á íbúðunum væri kvöð um að
rekstur þeirra og viðhald væri að fullu
á vegum kaupandans og hann myndi
kaupa hlutinn innan tíu ára eða selja
íbúðina ella. Á upphæðina væru reikn-
aðir hóflegir vextir, sem þá væru
gerðir upp, t.d. vextir samsvarandi
verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Ís-
lands á hverjum tíma. Ef íbúðin væri
seld innan þess tíma
væri upphæðin gerð upp
á sömu forsendum.
Árleg útgjöld kaup-
enda lækka umtals-
vert fyrstu tíu árin
Með þessu væri
stórum hluta þessara að-
ila gert kleift að kaupa
sína fyrstu íbúð. Kostn-
aður kaupendanna
vegna íbúðarlána myndi
lækka um a.m.k. 20%
fyrstu tíu árin miðað við
30 milljóna króna eign,
sem myndi fleyta mörg-
um og kannski flestum
þeirra yfir erfiðasta
hjallann við íbúðar-
kaupin.
Við sem þjóðfélag
myndum leggja til þessa
peninga árlega, en upp-
hæðin samsvarar 0,09%
af eignum lífeyrissjóð-
anna sem dæmi. Vegna
takmörkunar á tíma og
miðað við ofangreindar
forsendur myndi upp-
hæðin í heild aldrei
verða meiri en 0,9% af
þessari sömu eign og líklega umtals-
vert lægri vegna líklegra kaupa íbúð-
areigenda á þessum hlut á tímabilinu.
Þetta er fjárfesting, ekki gjöf
Fjármunirnir væru áfram eign okk-
ar og þeir bæru vexti og því ekki um
útgjöld að ræða, eingöngu bindingu
þessara fjármuna.
Málið er einfalt þannig að ekki þarf
að koma á fót sérstakri stofnun vegna
þessa með tilheyrandi kostnaði.
Íbúðalánasjóður gæti auðveldlega séð
um málið, enda er það skylt verk-
efnum sjóðsins. Hann myndi gæta
hagsmuna okkar sameiginlega sjóðs
við þessi viðskipti, svo sem að gæta
þess að kaupverð viðkomandi eigna sé
rétt og eðlilegt í hverju tilviki og að
sala á eignarhlutnum og uppgjör fari
fram í samræmi við kvöðina.
Auðleystur vandi
ungs fólks við kaup
á sinni fyrstu íbúð
Eftir Sigurð
Ingólfsson
Sigurður Ingólfsson
» Það er æski-
legt fyrir
þjóðfélagið að
halda í sitt unga
fólk, sem er að
hefja sitt ævi-
starf og á að
standa undir
velferð þegn-
anna í náinni
framtíð.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Hannars ehf.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Gullsmárinn
Spilað var á 10 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 17. mars.
Úrslit í N/S:
Gunnar Sigurbjss. – Sigurður Gunnlss. 203
Ragnar Jónsson – Lúðvík Ólafsson 188
Pétur Antonsson – Guðl. Nielsen 181
Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 179
A/V
Auðunn Guðmss. – Björn Árnason 217
Kristín G. Ísfeld – Óttar Guðmss. 198
Gunnar Alexanderss. – Elís Helgason 197
Jón I. Ragnarss. – Sæmundur Árnas. 178
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Mánudaginn 14. mars var spilað á 18
borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara
í Reykjavík
Efstu pör í N/S:
Guðm. Sigursteinss. – Unnar Guðmss. 392
Logi Þormóðss. – Kristinn Sölvason 365
Trausti Friðfinnsson – Guðl. Bessason 360
Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 337
A/V
Óli V. Thorstensen –
Anna L. Agnarsd. 371
Björn Arnarson – Magnús Hjartarson 370
Óli Gíslason – Magnús Jónsson 367
Sigurður Kristjánss. – Jörgen Halldss. 364
Fimmtudaginn 17. mars var spilað á 14
borðum.
Efstu pör í N/S:
Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 367
Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 364
Guðl. Bessason – Trausti Friðfinnsson 359
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 356
A/V
Trausti Pétursson – Ingvi Traustason 425
Óli V. Thorstensen –
Anna L. Agnarsd. 377
Kristján Guðmss. –
Magnús Hjartarson 348
Sigurður Þórhallss. –
Sigr. Benediktsd. 332
Sverrir sterki sterkastur
Hraðsveitakeppni Bridsfélags Kópavogs
lauk sl. fimmtudag. Tíu sveitir öttu kappi
fjóra fimmtudaga og urðu helstu úrslit
þessi.
Sverrir sterki 2102
Bingi og feðgarnir 2054
Hjálmar 2029
Þorsteinn Berg 1980
Þórður Jörunds 1963
Að loknu súkkulaðihúðuðu páskafríi
hefst svo Impa-keppni Bakarameistarans
sem verður þriggja kvölda butler-tvímenn-
ingur. Allir velkomnir.
Það er sagt að til-
laga Stjórnarskrár-
nefndar um breyt-
ingar á stjórnarskrá
Íslands eigi að auka
og efla lýðræði í land-
inu. Þá er nauðsyn-
legt að skilgreina
hvað menn meina
með orðinu lýðræði.
Hér skal gerð smá
tilraun til þess.
Lýðræði felst í því
að hver maður ráði sjálfum sér og
þá engum öðrum, nema um það sé
samið af frjálsum vilja hverju
sinni. Lýðræði felst þannig í samn-
ingum en ekki kúgun. Þó er það
hefðbundin og lögformleg regla að
meirihlutinn ráði þegar sam-
komulag næst ekki.
Stjórnmálaflokkarnir eru hinn
formlegi vettvangur stjórnmála-
umræðunnar í landinu meðal al-
mennings. Allir eru meira en vel-
komnir í flokkinn. Þar eru öll
þjóðfélagsmál rædd og það á
mörgum stigum: Í flokksfélög-
unum, á kjördæmisþingum og loks
á landsfundum þar sem ályktanir
félaganna eru samræmdar og
heildarstefna mynduð. Oftast eru
heitar umræður í flokkunum um
einstök málefni, allar athugasemd-
ir og breytingatillögur teknar til
greina og afgreiddar, samkvæmt
fundarsköpum. Þannig er reynt að
semja um öll mál svo að sem allra
flestir geti samþykkt. Þetta gildir
um alla flokkana. Vilji menn „hafa
áhrif“ þá eru flokkarnir rétti vett-
vangurinn til þess. Það er of seint
að ætla sér að hafa áhrif þegar
ákvörðun hefur verið tekin og mál-
ið komið fyrir þingið til að lögfesta
það. Því má jafnvel segja að þjóð-
aratkvæðagreiðsla sé fyrirfram, á
vegum flokkanna, um öll meirihátt-
ar löggjafarmálefni, og vafasamt
hvort fleiri myndu nýta atkvæðis-
rétt sinn í allsherjar atkvæða-
greiðslu. Kjósi menn að nýta ekki
atkvæðisrétt sinn er það á þeirra
ábyrgð en ekki kerfinu að kenna.
Stjórnmálaflokkarnir eru þannig
hornsteinar lýðræðisins. Þar er
samið um málin, allir geta verið
með sem vilja. Flokkarnir bjóða
svo fram lista í þing-
kosningum og þegar á
þing er komið byrja
samningar milli þing-
flokkanna, sem enda
með samningi um
meirihlutasamstarf og
myndun ríkisstjórnar.
Lýðræðið byggist á
því að menn semji um
hvað rétt skuli teljast í
hverju tilviki svo að
sem flestir geti verið
ánægðir með nið-
urstöðuna. Það verða
þó aldrei allir ánægðir
samtímis, en sem flestir þó. Þetta
er lýðræðið að verki! En það eru
alltaf einhverjir í minnihluta hvort
sem þjóðaratkvæðagreiðsla er við-
höfð eða ekki. Þeir, sem ekki þola
að lenda í minnihluta hljóta að
vera lýðræðislega heftir.
Alþingi endurspeglar yfirleitt
það sem þjóðin hefur komið sér
saman um og því væri það ólýð-
ræðislegt ef einhver einstakur
embættismaður eða stofnun gæti
breytt því.
Beint lýðræði, sem kallað er, er
ekki lýðræði í sjálfu sér heldur
stjórnleysi.
Ef fólkið á að stjórna stjórnvöld-
unum, er þá nokkur stjórn? Hver
ætti þá að bera hina pólitísku
ábyrgð á því sem ákveðið yrði í
allsherjar atkvæðagreiðslu? Það
getur enginn borið ábyrgð á því
sem hann ræður engu um, stjórn-
völd geta því ekki borið ábyrgð á
því, sem ákveðið er á þann hátt, en
yrðu kúguð til að sjá um fram-
kvæmd þess og fólkið mundi samt
örugglega kenna stjórnvöldum um
ef illa tækist til.
En ef lögin eru felld, hvað þá?
Þegar efnt er til allsherjarat-
kvæðagreiðslu gagngert til að
hnekkja ákvörðun Alþingis, getur
þingið engan veginn sætt sig við
það og hlýtur að biðjast lausnar,
þá verður að rjúfa þing og efna til
kosninga (en getur þjóðin „beðist
lausnar“). En hvað um forsetann?
Þá er einnig felld hans staðfesting.
Hann staðfestir lög fyrir hönd
þjóðarinnar, allt sem hann gerir
opinberlega gerir hann fyrir hönd
allrar þjóðarinnar. Það yrði þá
vantraust á forsetann jafnframt og
þá hlyti hann að biðjast lausnar
um leið. Þetta yrði ein hringavit-
leysa þar sem enginn stæði við
neitt: Kjósendur stæðu ekki við
kosningu til Alþingis, þeir sömu
kjósendur stæðu ekki við kosningu
forsetans, þannig yrði útkoman
stjórnleysi á stjórnleysi ofan,
ábyrgðarleysi, öryggisleysi og
óvissa, erfitt yrði, ef ekki ómögu-
legt með öllu að halda ákveðinni
stjórnarstefnu, sem aftur mundi
leiða til misræmis í lagasetningu
með tilheyrandi réttaróvissu. Hæg-
lega gæti farið svo að sömu flokkar
fengju meirihluta á þingi aftur, því
fæstir láta eitt afmarkað mál ráða
sinni grundvallar lífsskoðun. Þá
gæti Alþingi samþykkt frumvarpið
aftur sem hafnað var, og þá væri
komið upp hið hlálegasta þrátefli!
Hvort ætti þá að ráða þetta um-
rædda ákvæði eða fyrsta grein
stjórnarskrárinnar? Mundi það
efla lýðræði ef lítill minnihluti
kjósenda gæti svipt Alþingi lög-
gjafarvaldinu hvenær sem er. Án
rökstuddrar ástæðu? Vilji menn af-
nema þingræðið þá er hætt við að
það yrði að breyta stjórnarskránni
í mörgum greinum T.d. fyrstu
greininni, þeirri þrítugustu og
sjöttu og fertugustu og áttundu.
Þessar greinar útiloka að hægt sé
að kúga Alþingi yfirleitt. Tillaga
stjórnarskránefndar um þjóðar-
atkvæðagreiðslu felur, í raun, í sér
afnám þingræðis,
En það hefur aldrei verið talað
um þetta mál á þeim nótum. Menn
hljóta að sjá að bezt færi á því að
Alþingi héldi sínu löggjafarvaldi –
óskertu.
Flokkarnir og lýðræðið
Eftir Pétur
Guðvarðsson
Pétur Guðvarðsson
» Þeir sem ekki þola að
lenda í minnihluta
hljóta að vera lýðræðis-
lega heftir.
Höfundur er fv. bóndi og
rökhyggjumaður.