Morgunblaðið - 22.03.2016, Side 24
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Verslunin LOKAR
á Laugavegi
30-50% afsláttur
Úr – demantar –gull – silfur
giftingahringirKíktu á úrvaliðí vefversluninni á
michelsen.is/fermingar
Laugavegi 15 og Kringlunni
Sími 511 1900 - www.michelsen.is
Casio Retro
11.900 kr.
Michelsen Tradition
73.000 kr.
Armani Classic
40.200 kr.
Jacques Lemans
Liverpool
25.700 kr.
Fossil Grant
21.100 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
– fyrir stráka
Íslenska þjóðfylk-
ingin (ÍÞ) er nýstofn-
aður stjórnmálaflokk-
ur sem fjölmargir
hafa beðið eftir og
mikið hefur verið tal-
að um eftir stofnun
hans. Stjórnmála-
flokkur sem er af-
rakstur viðræðna
fjölda einstaklinga og
hópa, þ.m.t. stjórn-
málaflokksins Hægri grænir, sem
hafa nú ákveðið að sameinast í
borgaralega þjóðholla stjórn-
málafylkingu, landi voru og þjóð til
heilla.
Grunnstefnan skýr
Andstætt t.d. píratískum anark-
isma hefur ÍÞ lagt fram skýra og
afdráttarlausa grunnstefnu í helstu
þjóðmálum líðandi stundar og ætla
ég að leyfa mér að minnast á þau
hér að neðan. Það er von okkar í
ÍÞ að sá fjöldi sem aðhyllist þjóð-
holl borgaraleg gildi og viðhorf
komi nú til liðs við Þjóðfylkinguna.
Því þörfin hefur aldrei verið brýnni
en nú, ekki síst í ljósi þeirrar póli-
tísku upplausnar og umróts sem nú
er í íslenskum stjórnmálum og
raunar á sviði heimsmálanna í dag.
Bráðabirgðastjórn vinnur að því
að skipuleggja framhaldsstofnfund
sem fyrst þar sem við munum
formlega kjósa okkur formann og
stjórn. Á þeim fundi munum við
líka útfæra lög flokksins og grunn-
stefnuna nánar.
ÍÞ vill standa vörð um fullveldi
og sjálfstæði Íslands, íslenska
þjóðmenningu, tungu og siðinn í
landinu. Grunnstefna flokksins er
einstaklingsfrelsi, takmörkun rík-
isafskipta, gagnsær, sjálfbær rík-
isrekstur (báknið birt), beint lýð-
ræði, náttúruvernd, friðsöm og
haftalaus milliríkjaviðskipti. ÍÞ
beitir sér ætíð fyrir jafnvægi í
byggð landsins, málefnum fjöl-
skyldunnar, heimilanna og smærri
fyrirtækja í einkarekstri sem eru
hornsteinar samfélagsins. Málefni
öryrkja og aldraðra eru ætíð í fyr-
irrúmi og stefnt skal að útrýmingu
fátæktar á Íslandi.
Í utanríkismálum höfnum við al-
farið aðild að ESB,
krefjumst úrsagnar úr
Schengen strax og
viljum endurskoðun á
EES-samningnum.
Við styðjum eindregið
aðild að NATO, SÞ,
EFTA og norrænu
samstarfi. Við höfnum
TISA-samningnum.
Flokkurinn stefnir að
hertu landamæraeftir-
liti og strangari inn-
flytjendalöggjöf.
Í innanríkismálum
er það stefna okkar að stórefla lög-
gæslu, landhelgisgæslu og toll. Við
teljum brýnt að Varnarmálastofn-
un Íslands verði endurreist og Ís-
lendingar taki aukinn þátt í eigin
vörnum með beinum hætti. Það er
líka algjörlega nauðsynlegt að hér
verði gerð almenn íbúðaskuldaleið-
rétting og í kjölfarið tekin upp ný
mynt (ríkisdalur) sem tengd verði
USA-dollar með ákveðnum vik-
mörkum og verðtrygging afnumin í
leiðinni.
ÍÞ vill að beinu lýðræði verði
komið á í lífeyrissjóðum landsins
og sjóðsfélagar einir kjósi í stjórn-
ir. Bundinn verði endi á aðild stétt-
arfélaga og atvinnurekenda. Tekið
verði á fákeppni á öllum sviðum og
tryggt verði að t.d. bankar og
tryggingafélög fái samkeppni.
Við viljum að teknar verði upp
þjóðaratkvæðagreiðslur að hætti
Sviss og að ákvæði um stjórnlaga-
dómstól verði sett í stjórnarskrá.
ÍÞ stefnir að hækkun persónu-
afsláttar í þrjú hundruð þúsund
krónur sem kemur þeim tekju-
lægstu til góða og samhliða því
yrðu tekjutengingar aldraðra og
öryrkja afnumdar með öllu. Við
viljum breytta sjávarútvegsstefnu
og leyfa frjálsar strandveiðar
strax. Ekki skal hróflað við stað-
setningu Reykjavíkurflugvallar.
Við teljum annað ekki koma til
greina en að Landsvirkjun verði
ávallt í fullri eigu þjóðarinnar.
Kristin trú og gildi eru nátengd ís-
lenskri þjóðmenningu sem og
Ásatrú og flokkurinn vill eindregið
styðja við þessi gildi. Flokkurinn
er alfarið á móti því að moskur séu
reistar á Íslandi og styðst í því
sambandi við þróun mála á Norð-
urlöndum og Evrópu. Við viljum
líka bregðast strax við og lögleiða
bann við búrkum, umskurði mey-
barna af trúarlegum ástæðum og
að skólar íslamista verði stofnaðir
á Íslandi.
Andsnúin útlendingum?
Ég vil að lokum aðeins minnast
á ótrúlegan útúrsnúning „góða“
fólksins sem heldur því fram að
flokkurinn vilji ala á andúð á út-
lendingum og helst senda fólk af
erlendu bergi brotnu úr landi.
Maður getur ekki annað en spurt:
Hverjum dettur svona vitleysa í
hug? Þvert á móti fögnum við fólki
sem kemur hingað af góðum hug,
aðlagast okkur, leggur á sig að
læra málið okkar og tekur upp
okkar siði og venjur. Fólk sem
kemur hingað og vill gerast Íslend-
ingar með öllum þeim skyldum
sem íslenskur ríkisborgarréttur
krefst er velkomið. Að vera nýr Ís-
lendingur fylgir ekki bara rétti,
heldur skyldu sem allir ættu að
vilja kostgæfa að fylgja.
Íslenska þjóðfylkingin
Eftir Helga
Helgason » Þvert á móti fögnum
við fólki sem kemur
hingað af góðum hug,
aðlagast okkur, leggur á
sig að læra málið okkar
og tekur upp okkar siði
og venjur.
Helgi Helgason
Höfundur er talsmaður og situr í
bráðabirgðastjórn Íslensku þjóðfylk-
ingarinnar.
Sá háttur útgerðar-
manna að drepa
loðnuna rétt fyrir
hrygningu með þeim
rökum að hrognin séu
svo verðmæt er al-
gjört sjálfskaparvíti.
Stöðugt minnkandi
kvóti undanfarin ár er
blóðugt vitni um
þessa glæpsamlegu
hegðun gagnvart
loðnunni. Þetta er
svona eins og á hrein-
dýraveiðum væru ein-
ungis drepnar kálf-
fullar kýr að vori,
svona eins og sauð-
fjárbóndi myndi slátra
rollunum sínum að vori
rétt fyrir burð og skilja
svo ekkert í því að roll-
unum færi fækkandi,
svona eins og þorskur-
inn væri veiddur
skefjalaust rétt fyrir
hrygningu og fengi
ekkert „fæðingarorlof“, svona eins
og Kristján Loftsson veiddi bara
kálffullar hvalakýr, svona eins og
gæsin og aðrir fuglar væru drepnir
er þeir væru að undirbúa hreiður-
gerð og svona mætti lengi telja.
Er það takmark loðnuútgerðar-
manna að ganga svo að loðnunni
með þessari skefjalausri hrogna-
töku að á endanum væri bara ein
hrognafull loðna eftir og hún væri
elt um allan sjó að því að hún er
500.000.000 króna virði? Hver
myndi kaupa þau hrogn? Bara þeir
sem eru á sífækkandi lista yfir rík-
ustu menn heims og hittast í Davos
í Sviss? Er þetta framtíðarsýnin
sem einhverjir hafa? Og hvar er
Hafró í þessu dæmi? Er það vís-
indalega sannað að það sé gott fyrir
loðnustofninn að veiða hana rétt
fyrir hrygningu? Ég ætla bara að
vona að þetta sé fyrirhyggjuleysi
og að menn hafi ekki pælt í þessu
afleiðingum frekar en að menn séu
svo forhertir.
Nei, loðnuútgerðarmenn og sjó-
menn verða að fara að hætta að
kenna um hvölum eða hlýnandi sjó
eða breyttu göngumynstri loðnunn-
ar heldur horfast í augu við sjálfa
sig og fara að spyrja sig spurninga
á heiðvirðan hátt. Er græðgivæðing
okkar í rosalega verðmæt loðnu-
hrogn að ganga af stofninum dauð-
um?
Ég segi, gefið loðnunni frið til að
hrygna í friði og þá mun ávöxtur
náttúrunnar springa út í blóma öll-
um til hagsbóta.
Eru loðnuútgerðarmenn og
loðnusjómenn hálfvitar?
Eftir Ragnar
Þ. Þóroddsson
Ragnar Þ
Þóroddsson
»Ég man þá tíð er
kvótinn var í kring-
um milljón tonn. Nú
slefar hann í um 100.000
tonn.
Höfundur er bókagerðamaður og býr
í Reykjanesbæ.
mbl.is
alltaf - allstaðar