Morgunblaðið - 22.03.2016, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
✝ Anna MaríaAðalsteins-
dóttir fæddist í
Reykjavík 3. maí
1950. Hún lést á
heimili sínu 14.
mars 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Aðalsteinn
H. Vígmundsson,
f. 17. mars 1920,
d. 16. júní 1997,
og Beta Guðjóns-
dóttir, f. 11. september 1920,
d. 5. apríl 1965. Bróðir hennar
var Örn Pálmi Aðalsteinsson,
f. 30. mars 1941, d. 2. júlí
1993.
Hinn 2. maí 1970 giftist
Anna María eftirlifandi eigin-
manni sínum Jóhanni Gunn-
arssyni vélfræðingi, f. 15. apr-
sambýlismaður Arnar Þór
Sævarsson, bæjarstjóri á
Blönduósi, f. 16. nóvember
1971. Börn þeirra eru Arnar
Freyr, Ásrún Inga og Eyrún
Anna.
Anna María vann við versl-
unarstörf á yngri árum og hóf
síðan störf á leikskólanum
Hlíðaborg árið 1972. Hún
færði sig síðan til á leikskóla
Landspítalans við Engihlíð þar
til hún hóf nám í Fósturskóla
Íslands. Eftir útskrift úr Fóst-
urskólanum hóf hún vinnu á
leikskólanum Hamraborg/-
-Björtuhlíð þar sem hún starf-
aði til æviloka. Anna María
tók þátt í þróunarverkefni um
vísindaleik barna ásamt sam-
starfsfólki í samstarfi við H.Í
frá 2004. Árið 2012 bættist svo
við þróunarverkefni í stjörnu-
fræði. Hún hélt marga fyrir-
lestra um þessi verkefni
hérlendis og erlendis.
Útför Önnu Maríu fer fram
frá Árbæjarkirkju í dag, 22.
mars 2016, klukkan 13.
íl 1948. Sonur
hjónanna Gunnars
Jóhannssonar, f.
18. ágúst 1920, d.
31. júlí 2005, og
Valgerðar Bald-
vinsdóttur, f. 17.
október 1920, d.
28. janúar 1991.
Anna María og Jó-
hann eignuðust
tvö börn. 1) Aðal-
steinn Jóhannsson,
vélfræðingur, f. 15. janúar
1971, sambýliskona Harpa Sif
Jóhannsdóttir, starfsmaður
hjá Icelandair, f. 26 febrúar
1971. Börn þeirra eru Jóhann
Karl, Gunnar Árni og Anna
María. 2) Gerður Beta
Jóhannsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, f. 18. febrúar 1976,
Margar góðar minningar eru
til um mömmu sem gera þennan
erfiða tíma þó léttari fyrir fjöl-
skyldu og vini sem kveðja mikla
og góða konu sem sýndi öllum
ástúð, umhyggju, vináttu og
skilning enda verður minningin
um hana geymd að eilífu í hjarta
okkar.
Fjölskyldan var mömmu mik-
ilvæg og fátt þótti henni
skemmtilegra en að fá okkur öll
í Fljótshlíðina, þar sem hún og
pabbi höfðu byggt upp sannkall-
aðan sælureit í gegnum árin.
Þessi sælureitur stækkaði síðan
með hverju barnabarninu til að
vel færi um alla, enda hugsaði
mamma ávallt vel um þá sem
henni voru næstir.
Hún naut þess að gefa af sér
og gerði það af ástríðu sem
smitaði út frá sér til allra. Þetta
sást vel í leikskólanum þar sem
okkar börn voru það heppin að
fá að vera með henni og kynnast
vísindaverkefninu sem hún var
virkilega stolt af, enda var hún
vakin og sofin yfir því hvar sem
hún var. Ávallt var hún að viða
að sér efniviði í vísindastarfið og
skipti þar engu hvort hún var
með okkur í útlöndum, bústaðn-
um eða heima.
Við vorum heppin að geta
ferðast með þér í gegnum lífið
og erum enn að átta okkur á því
að seinustu sporin hafa verið
tekin hjá þér, enda eru þetta of
stórar fréttir til að meðtaka
strax fyrir alla. Þetta sýnir okk-
ur þó að við þurfum að nota
þann tíma sem við fáum vel
saman því við vitum aldrei hve-
nær kallið kemur. Þegar
mamma fékk slæmu fréttirnar
tók hún því af æðruleysi eins og
ávallt og sagði: „Ég er búin að
eiga æðislegt líf og njóta þess
með þeim sem ég elska.“
Þú varst mamma, eiginkona,
tengdó, amma, vinur, hjartahlý,
falleg að innan sem utan, elsku
mamma, og þannig muntu lifa
hjá okkur.
Aðalsteinn (Steini).
Elsku yndislega, fallega, lífs-
glaða mamma mín kvaddi okkur
eftir stutta en erfiða baráttu við
veikindi. Þetta er allt saman svo
óraunverulegt og sárt. Fjórtán
dögum eftir að hún fór inn á
spítala kvaddi hún okkur en við
fengum að njóta þess að vera
með henni síðustu klukkustund-
irnar hennar heima. Fyrir það
er ég óendanlega þakklát elsku
mamma mín, að þú gast fengið
að koma heim.
Nú reyni ég að ylja mér við
allar minningarnar, þær eru svo
margar og góðar. Þess á milli
veit ég ekki hvernig ég á að fara
að því að lifa án þín. Ég elskaði
þig svo heitt, þú varst ekki bara
mamma mín heldur líka besta
vinkona mín, með hjarta úr
gulli. Þú hélst svo þétt utan um
okkur öll, þú varst límið í fjöl-
skyldunni og hugsaðir alltaf um
hag okkar fyrst og fremst. Betri
ömmu er ekki hægt að hugsa
sér, þið pabbi hugsuðuð um
barnabörnin á svo einstakan
hátt. Við munum halda áfram
ásamt pabba að umvefja þau og
passa upp á allt sem þú lagir
áherslu á. Við erum samhent
fjölskylda og munum halda
áfram að hafa gildi þín og lífs-
gleði til fyrirmyndar. Það verð-
ur erfitt en þú sáðir svo vel
elsku mamma, þú kenndir mér
svo margt og varst mín helsta
fyrirmynd.
Mig skortir orð, þú munt allt-
af lifa í hjarta mínu, elsku
mamma mín. Ég veit að þú
sendir okkur ljósið og munt
vaka yfir okkur.
Hvíl í friði, elsku mamma.
Tárin streyma í stríðum straumum.
Hvað geri ég án þín, elsku mamma
mín?
Hvernig get ég lifað út daginn?
Allt er svo tómlegt hér án þín.
Stóllinn sem þú sast svo oft í,
ég horfi á hann oft á dag.
Bara ég gæti fengið þig til baka,
þá myndi allt komast aftur í lag.
En sú draumastund mun aldrei koma,
raunveruleikinn blasir við mér.
Að kveðjustund okkar er komið
og þú gengur í gegnum hið gullna
hlið.
Minningar um þig um huga minn
reika
margar góðar eru í skjóðunni þar.
Við áttum svo marga góða tíma,
já, mikið um gleði hjá okkur var.
Ávallt gat ég til þín leitað
aldrei hunsaðir þú mig.
Reyndir alltaf mig að hugga
ó, hve sárt er að missa þig.
Þitt bros og þín gleði
aldrei sé ég það á ný.
Ég vil bara ekki trúa
að þitt líf sé fyrir bí.
Ég vildi að við hefðum haft
meiri tíma, þú og ég.
Við áttum svo mikið eftir að segja,
ó, hvað veröldin getur verið
óútreiknanleg.
Ég þarf nú að taka stóra skrefið,
treysta á minn innri styrk.
Takast á við lífið
svo framtíðin verði ei myrk.
Ég veit að þú munt yfir mér vaka
verða mér alltaf nær.
Þú varst og ert alltaf mér best,
elsku móðir mín kær.
(Katrín Ruth 1979)
Gerður Beta Jóhannsdóttir.
Elskuleg tengdamóðir mín,
Anna María Aðalsteinsdóttir,
lést hinn 14. mars síðastliðinn í
faðmi fjölskyldunnar heima í
Fiskakvísl.
Ef það er eitthvað eitt sem
einkenndi Önnu Maríu má segja
að það hafi verið hversu góða
nærveru hún hafði og væntum-
þykja hennar fyrir fjölskyld-
unni, Jóhanni, börnum þeirra,
tengdabörnum og barnabörn-
um. Sumarbústaðurinn í Fljóts-
hlíð var tengdamóður minni
mikils virði. Þar var hún á
heimavelli og naut hverrar
stundar í þeirri fallegu sveit.
Eyjafjallajökullinn, Þórsmörk-
in, Tindfjöllin og Fljótshlíðin
eru að margra mati gersemar
íslenskrar náttúru. Frá þeirri
náttúru var tengdamóðir mín
sprottin og mikil gersemi var
hún tengdamóðir mín. Við sitj-
um nú eftir með söknuð í hjarta.
Anna María varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að halda reisn sinni
til hinstu stundar. Það urðu allir
betri í návist hennar.
Nú er ævi þinni lokið og er ég
handviss um að kær vinkona
taki á móti þér með faðminn út-
breiddan. Ég sé fyrir mér bros-
ið ykkar hlýja og kærleikurinn í
fyrirrúmi í veröld þar sem birki-
ilmurinn berst að vitum, ljúfur
lækjarniður að eyrum og
sumardýrðin skartar sínu feg-
ursta ykkur til dýrðar.
Þitt hjarta geymdi gullið dýra og
sanna,
að gleðja og hjálpa stærst þín unun
var.
Því hlaust þú hylli Guðs og góðra
manna
og göfugt líf þitt fagran ávöxt bar.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þakka þér fyrir allt, Anna
María mín kæra, og Guð blessi
þig og geymi í eilífðinni.
Arnar Þór Sævarsson.
Mín besta vinkona og tengda-
mamma, Anna María, kvaddi
þennan heim þann 14. mars.
Þvílíkur missir að þessari ein-
stöku konu. Það er enginn búinn
að átta sig á að þú sért farin frá
okkur, elsku Anna mín. Ég á
svo ótrúlega margar fallegar og
skemmtilegar minningar um þig
að erfitt er að velja nokkrar til
að deila hér að leiðarlokum.
Þessi setning samt lýsir þér
einna best: „Þetta er ekkert
mál, ég er tvær mínútur að
þessu,“ þegar þú varst að bjóða
fram þína einstöku hjálp. Þú
vildir allt fyrir alla gera. Vildir
alltaf vera til taks fyrir barna-
börnin, okkur fjölskylduna,
baka kökur fyrir fjölskylduboð,
skutlast með krakkana á æfing-
ar, hjálpa til við framkvæmdir,
flutning, ég get endalaust talið
upp. Þú varst líka þeim góða
kosti gædd að bjóða fram að-
stoð, jafnvel áður en maður
sjálfur áttaði sig á því að maður
þyrfti aðstoð. Ég man þegar
krakkarnir voru litlir og Steini
mikið erlendis vegna vinnunnar,
þú komst svo oft til mín í Eski-
hlíðina og sópaðir að þér flís-
peysunum, útigöllum, úlpum og
öðru af krökkunum. „Skelli
þessu í vélina, þetta kemur allt
þvegið til þín á morgun.“ Barna-
börnin urðu alltaf að vera hrein
og fín og ég tala ekki um vel
klippt. Ég veit að Jóhann Karl á
eftir að sakna stundanna þegar
þú fórst með hann í klippingu og
svo var farið að „kringlast“ á
eftir. Þetta voru ykkar stundir
alveg undir það síðasta. Svona
stundir fengu öll ömmugullin
þín að eiga með þér.
Við tvær vorum líka svo
óendanlega ánægðar með hvor
aðra og við sögðum það reglu-
lega. Vinkonur mínar margar
öfunduðu mig af okkar frábæra
sambandi. Við bara smullum
einhvern veginn alveg saman
strax þegar ég kom inn í fjöl-
skylduna ykkar. Þú varst mín
fyrirmynd í svo ótalmörgu og
stoð og stytta þegar á reyndi.
Við gátum alltaf leitað til hvorr-
ar annarrar með hvað sem var.
Við áttum líka mörg „trúnómó-
ment“ Anna mín. Það var líka
ótrúlega gaman að vera í kring-
um þig, þú sagðir svo skemmti-
lega frá, varst með svo hressan
og smitandi hlátur og svo féllstu
alls staðar strax í hópinn, skipti
engu hvort það var fjölskyldan
mín, vinkonur eða vinnufélagar.
Fram undan er vorið, tíminn
sem við fjölskyldan fórum að
fara meira saman að sumarbú-
stað fjölskyldunnar í Fljótshlíð-
inni. Yndislegur staður sem þið
Jói voruð búin að gera að al-
gjörri paradís þannig að vel færi
um alla. Þarna var þinn staður,
þarna liggja ræturnar þínar og
hvað það var gaman að fara með
ykkur Jóa og krökkunum um
Fljótshlíðina og heyra þig segja
frá æskuminningum. Það verður
erfitt að fara í Fljótshlíðina án
þín.
Elsku Anna mín, þú varst
einstök eiginkona, mamma og
amma. Þú varst svo mikil fyr-
irmynd í öllum þínum hlutverk-
um. Ég sagði oft við þig og vin-
konur mínar að ég myndi taka
svo margt sem ég lærði af þér
með inn í mitt næsta stóra nýja
hlutverk, sem vonandi verður
einhvern tímann, að verða
amma. Minning um yndislega
og einstaka konu mun lifa með
okkur um ókomna tíð. Hvíl í
friði, elsku Anna mín.
Þín
Harpa Sif.
Elsku amma.
Takk fyrir allt sem þú kennd-
ir okkur og allar dýrmætu
stundirnar sem við áttum sam-
an. Það verður alltaf kveikt á
ljósinu þínu, amma. Hvíl í friði.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlést okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Jóhann Karl, Gunnar
Árni og Anna María.
Þegar ég fékk fréttirnar um
að frænka mín, hún Anna
María, væri farin yfir móðuna
miklu helltist yfir mig tifinning
sem erfitt er að lýsa. Anna
María var góð kona. Maður hef-
ur á tilfinningunni að allir sem
þekktu hana séu á sama máli.
Hún passaði mig þegar ég var
yngri og mín fyrsta minning um
hana er þegar hún var að knúsa
mann í kaf. Í minningunni var
þetta óþarflega langt og fast
faðmlag sem mér fannst ekkert
voðalegt gott á þeim tíma, enda
ekki annálaður faðmari. Anna
María lagði mikla áherslu á að
fólk væri snyrtilegt í klæða-
burði, t.d. þegar hún átti að fara
út með mig setti hún það skil-
yrði að móðir mín væri búin að
klæða mig smekklega, annars
neitaði hún að passa mig. Hún
vildi ekki láta sjá sig á almanna-
færi með hallærislegan ungan
dreng í sínu föruneyti. Anna
María kenndi mér á unga aldri
að maður getur ekki valið sér
fjölskyldu, en maður getur valið
sér vini. Enda gerði hún það af
kostgæfni og varð fljótt mjög
vinmörg. Hins vegar var hún
ekki mikil kattakona, í eitt
skipti var hún að greiða sér fyr-
ir framan spegilinn og ég laug
því að kettir væru komnir inn í
stofu. Henni brá svo mikið að
hún stökk upp úr stólnum með
þeim afleiðingum að greiðan
sem var með oddmjóum enda
öðrum megin stakkst í öxl henn-
ar, henni til lítillar skemmtunar.
Eins og aðrir í föðurfjölskyld-
unni byrjaði hún snemma að
vinna í Mjólkursamsölunni. En
eftir að Steini kom í heiminn
fann hún fjölina sína og ákvað
að mennta sig sem leikskóla-
kennari. Áður en barnabörnin
komu hafði hún verið mjög yf-
irlýsingaglöð með það að hún
ætlaði ekki að vera alltaf pass-
andi einhver barnabörn, hún
hefði engan tíma í það. Þessi
ummæli hennar reyndust ekki
vera rétt, hún var frábær amma
og boðin og búin að vera með
barnabörnin mun oftar en þurfti
og stóð sig frábærlega í því
hlutverki eins og öðru sem hún
tók sér fyrir hendur. Önnur
ástríða Önnu var sumarbústað-
ur þeirra, eða höllin, eins og ég
kýs að kalla hann, þau hjónin
byggðu sumarbústaðarparadís
sem fjölskyldan hefur unað sér
vel í. Anna María hafði gaman
af því þegar ég mætti í heim-
sókn í fyrra og spurði hana
hvort ég mætti ekki kíkja út í
fjós, þá svaraði hún sposk á
svip: „Þú getur gert það, en
fjósið fór fyrir tíu árum. Hins
vegar get ég sýnt þér hótelið
sem er komið í staðinn“ – og hló
svo mikið.
Ég hef verið svo lánsamur að
hafa Önnu María fylgjandi mér
allt mitt líf og það er erfitt að
hugsa til þess að fá ekki að
njóta návistar hennar og vináttu
lengur. Þess í stað ylja ég mér
við ljúfar minningar um frábæra
frænku sem ég verð ævinlega
þakklátur fyrir að hafa átt.
Anna María var svo lánsöm að
kynnast frábærum manni, hon-
um Jóa, og eiga með honum tvo
magnaða einstaklinga, þau
Steina og Gerðu Betu. Fjöl-
skyldunni og öðrum aðstand-
endum votta ég mína dýpstu
samúð á þessum erfiðu tímum.
Stefán Arnarson.
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er
jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
Og til eru ýmsir sem ferðalag þetta
þrá,
en þó eru margir sem ferðalaginu
kvíða.
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
en aðrir setjast við hótelgluggann og
bíða.
(Tómas Guðmundsson)
Í dag kveðjum við góða vin-
konu okkar. Það er ekki hægt
að segja að hún hafi setið við
hótelgluggann og beðið. Hún
var skyndilega hrifin brott eftir
stutt veikindi en eftir situr
minning um yndislega konu.
Hún hafði mikla ánægju af
starfi sínu sem leikskólakenn-
ari, eða fóstra eins og hún sagði
sjálf. Hún naut þess að miðla til
barna og kveikja áhuga þeirra á
lífinu og tilverunni. Hún var
alltaf svo hrifnæm yfir því hvað
börnin voru að gera og hvatti
þau til dáða að gera hinar ýmsu
tilraunir og athuganir. Anna
María var góður vinur og sam-
starfsfélagi, stutt í húmorinn og
brosið, réttlætiskennd var henni
í blóð borin. Við getum yljað
okkur við margar skemmtilegar
minningar um góða vinkonu.
Elsku Jói, Steini, Gerður og
fjölskyldur, við sendum ykkur
öllum innilegustu samúðar-
kveðjur. Við minnumst Önnu
Maríu Aðalsteinsdóttur með
gleði, guð blessi ykkur öll.
Bryndís, Dýrleif,
Karitas og Nanna
Mín kæra æskuvinkona er
horfin á braut, eins og á ör-
skotsstundu var klippt á lífs-
þráðinn og hún Anna vinkona
horfin á vit feðranna þá leið sem
sérhvert okkar þarf að fara.
Við vorum ungar þegar leiðir
okkar lágu saman, aðeins fjög-
urra ára þegar feður okkar
byggðu fjölskyldum sínum hús-
næði í Eskihlíð á árum húsnæð-
isskorts eftir síðari heimsstyrj-
öld. Þar hófust okkar góðu
kynni og hafa varað síðan. Sam-
an lá skólagangan, fram á full-
orðinsár .
Anna var kona traust og
áreiðanleg og trygg fjölskyldu
sinni og vinum, sem kom vel
fram í öllum samskiptum henn-
ar almennt. Ung þurfti hún að
takast á við sorg og erfiðleika
við móðurmissi, sem eflaust hef-
ur mótað persónuleika hennar
og haft áhrif á trausta skapgerð
hennar. Fullorðinsárin voru
henni gjöful á flestan hátt, hún
eignaðist góðan og dugmikinn
eiginmann í Jóhanni, börnin
urðu tvö, myndarleg og vel
gerð, og í kjölfarið barnabörn
sem voru henni afar mikils virði.
Vinátta okkar hélst fram á síð-
asta dag; hún var mér sem kær
systir og söknuðurinn er mikill
við óvænt og ótímabært fráfall
hennar. Litlu hlutirnir skipta
oft meira máli en við gerum
okkur grein fyrir, aðeins það að
geta ekki lyft upp símtólinu og
hringt í vinkonu mína og talað
saman um það sem okkur lá á
hjarta í góða stund eins og vani
okkar var fyllir mig söknuði .
Ég er þakklát fyrir liðnar
stundir sem ég og mitt fólk átt-
um með þeim hjónum.
Ég óska aðstandendum Guðs
blessunar á erfiðri stundu.
Hvíli í friði, mín kæra vin-
kona.
Lilja.
Mundu það helga og háa
því hjartanu veitir það frið.
Líttu á það auma og lága
og láttu það koma þér við.
(Margrét Pálmadóttir frá Sauða-
felli)
Þessi staka minnir mig á
hvað mín kæra vinkona var allt-
af umhyggjusöm og kærleiksrík
við unga sem aldna. Blessuð sé
minning minnar elskulegu,
tryggu, skemmtilegu og ham-
ingjusömu vinkonu sem ég
sakna svo sárt. Fari hún vel til
nýrra heima með þökkum fyrir
dýrmæta samfylgd á þessari
jörð.
Sjáið minningar
svífa í lofti
uppi yfir leiðum
látinna vina.
Gróa þar blóm
á grænum stofni
höfuð sín hneigja
himins til.
(Margrét Pálmadóttir
frá Sauðafelli)
Elsku Jói, Steini, Harpa,
Gerður Beta, Arnar og börn.
Einlægar samúðarkveðjur send-
um við fjölskyldan ykkur öllum.
Fríða.
Anna María
Aðalsteinsdóttir