Morgunblaðið - 22.03.2016, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
✝ Hlynur Ingi-marsson fædd-
ist á Akureyri 5.
apríl 1935. Hann
lést á heimili sínu
Goðheimum 26,
Reykjavík, 13.
mars 2016.
Hann var elsta
barn hjónanna
Óskar Hallgríms-
dóttur, f. 31. októ-
ber 1910, d. 28.
desember 1988, og Ingimars
Júlíussonar, f. 12. desember
1911, d. 12. júlí 1987. Systkini
Hlyns eru Heimir, Grétar, lát-
inn, Jón, Ísleifur, Hallveig og
Óttarr. Hlynur kvæntist 25.
desember 1956 Kristínu (Gógó)
Magnúsdóttur, f. 15. júlí 1938,
d. 27. janúar 1997. Foreldrar
hennar voru Magnús Ingimund-
arson og María Sigurðardóttir.
Börn Hlyns og Kristínar eru
Magnús, f. 1956, Ómar, f. 1959,
Linda Björk, f. 1960, og Kristín
Ósk, f. 1967. Börn Magnúsar
1974. Börn Guðna Hrafns eru
Grétar Hrafn, Arnar Hrafn og
Hrafntinna. Dóttir Hafsteins
Hrafns er Jóhanna Ósk. Dætur
Tinnu eru Ragnheiður Kolka
og Æsa Margrét.
Hlynur ólst upp á Bíldudal til
sextán ára aldurs er hann fór
til náms á Patreksfirði þar sem
hann lauk námi í vélvirkjun ár-
ið 1955. Hann lauk vélstjóra-
prófi frá Vélskólanum í Reykja-
vík 1958 og prófi í rafmagns-
deild 1959 og hlaut síðar meist-
araréttindi. Hann var vélstjóri
á Ólafi Jóhannessyni frá Pat-
reksfirði 1959-1961. Frá 1961-
1968 starfaði hann hjá Lýsi hf. í
Reykjavík. Árin 1968-1971
starfaði hann hjá Björgun hf.
og Olíuverslun Íslands. Hlynur
starfaði sem verkstjóri hjá
Berki hf. í Hafnarfirði frá
1971-1982. Þá fór hann til
starfa hjá friðargæsluliði Sam-
einuðu þjóðanna í Ísrael, Líban-
on, Sýrlandi, Íran og síðast í
Kúveit til vorsins 1995. Hann
var yfirvélstjóri á Sindra og
síðast Sighvati Bjarnasyni frá
Vestmannaeyjum til ársins
2005 þegar hann lét af störfum.
Útför Hlyns fer fram frá
Langholtskirkju í Reykjavík í
dag, 22. mars 2016, kl. 15.
eru Stefán Þór,
Kári Freyr og
María Sif. Börn
Ómars eru Hlynur
Gauti, Björn, Pétur
Karl, Gréta Krist-
ín, Ásgeir Kári og
Emil Hrafn. Börn
Lindu Bjarkar eru
Lísa Rún, Silja
Brá, Eygló Hlín og
Ingimar Logi.
Börn Kristínar
Óskar eru Ingibjörg Ósk, Birg-
itta Saga og Kristófer Orri.
Langafabörnin eru 14.
Hlynur kvæntist seinni konu
sinni, Ragnheiði Guðnadóttur,
f. 26. október 1941, þann 29.
desember 2001. Fyrri eig-
inmaður Ragnheiðar var Grét-
ar Hafsteinsson, f. 7. október
1937, d. 23. júlí 1985. Foreldrar
Ragnheiðar voru Guðni Gunn-
arsson og Guðlaug Gísladóttir.
Börn Ragnheiðar eru Guðni
Hrafn, f. 1969, Hafsteinn
Hrafn, f. 1973, og Tinna, f.
Elsku hjartans afi minn. Ég
er svo þakklát fyrir að hafa átt
þig fyrir afa. Ég man þegar ég
var lítil þá voruð þið amma alltaf
á flakki í útlöndum og alltaf beið
maður eftir því að fá að knúsa
ykkur. Ég gleymi því ekki þegar
ég vaknaði í kringum fjögurra
eða fimm ára aldurinn eftir
hræðilegan draum sem virtist
frekar saklaus. Það var þá sem
það uppgötvaðist að ég var ber-
dreymin. Vaknaði hágrátandi og
sagði að þú hefðir rakað af þér
allt skeggið. Ég var svo vön að
sjá þig með skegg og draum-
urinn var ráðinn þannig að eitt-
hvað hefði komið fyrir þig. Þú
varst í útlöndum, man ekki hvar.
En þegar þú komst heim varstu
fótbrotinn.
Svona hefur þú verið rauður
þráður í gegnum líf mitt, ein-
hvern veginn á hliðarlínunni en
samt með svo mikil áhrif á mitt
líf.
Þegar amma dó tók ég á móti
þér er þú komst grátandi heim
og sagðir okkur að hún væri dá-
in. Við vorum öll harmi slegin og
þessi minning er alltaf brenni-
merkt inn í sálu mína. Ástin sem
þú barst til ömmu var svo mikil
og hún lýsti sér svo vel þarna.
Nú ertu kominn í faðminn henn-
ar ömmu aftur. Við getum horft
á það á fallegan hátt þrátt fyrir
að Inga frænka hafi sagt að
amma Gógó hefði verið frek að
sækja þig svona snemma. Þú
varst afskaplega heppinn að fá
að eignast aðra ást í lífinu en
sem betur fer valdir þú hana
ömmu Ragnheiði. Svo ljúfa og
góða konu þér við hlið og hún
yngdi þig upp með sínum holla
lífsstíl, góða mat og umlukti þig
væntumþykju og ást svo augu
þín ljómuðu alltaf.
Elsku besti afi minn, ég er svo
þakklát fyrir tímana sem við
spjölluðum saman, þótt ég hefði
viljað að þeir hefðu verið fleiri.
Ég mun alltaf, alltaf geyma
afaknús-tilfinninguna innst inni í
hjartanu og hlakka til að fá að
knúsa þig næst þegar við hitt-
umst. Ég veit að við eigum eftir
að gleðjast meira saman seinna í
öðru lífi. Mig langar að þakka
þér fyrir að taka mér alltaf ná-
kvæmlega eins og ég var, þú
gagnrýndir mig aldrei eða ætl-
aðist til meira af mér en ég var,
ég var alltaf nóg. Þú umluktir
mig umhyggju og í hvert sinn
sem ég sá þig ljómuðu augu þín
af lífsgleði og ást.
Ég hef og mun alltaf líta upp
til þess hvað þú flakkaðir mikið
um heiminn og hvað þú varst
víðsýnn og opinn fyrir nýjum
stöðum og nýju fólki. Ég hefði
t.d. aldrei þorað að fara lengst til
Suður-Ameríku en þið amma
tókuð best í ferðahug minn og
óskuðuð mér alls hins besta á
meðan ég þurfti að færa rök fyr-
ir för minni fyrir flestum öðrum.
Þetta var allt eitthvað svo eðli-
legt.
Í hvert sinn sem ég sé þig ljóma augu
þín elsku afi.
Í hvert sinn sem ég sá þig ljómuðu
augu þín.
Ó elsku afi.
Ég mun aldrei, aldrei, aldrei aftur sjá
fallegu augu þín,
brosandi, hlýju augun þín.
Ekki í þessum heimi,
ekki í þessu lífi.
Takk fyrir allt elsku afi minn.
Takk fyrir að vera þú og takk fyrir að
leyfa mér að vera ég.
Þegar ég kvaddi þig opnuðust augu
þín ekki.
Ég sá þau ekki ljóma.
Ég kyssti þig á kinn og sagði:
„Bless elsku afi minn.
Takk fyrir allt. Sjáumst.“
Aldrei að segja aldrei, hlakka
til að sjá þig, elsku afi minn.
P.s. knúsaðu ömmu frá mér.
Þín afastelpa,
Lísa Rún Guðlaugsdóttir.
Kæri afi Hlynur
þú hvílir í hjarta mér
ég kveð þig en því miður
okkur vantar þig hér.
Ömmu okkar þú misstir
en ólifuð voru ævintýri nokkur
svo aðra konu þú kysstir
og nýja ömmu þú gafst okkur
Á bátnum þið siglduð saman
þó það væri rigning, sól eða bylur
ég veit að þið höfðuð gaman
því þú varst minn afi Hlynur.
Þitt knús var það hlýjasta
þínar sögur voru ekkert sveitó
þitt bros var það bjartasta
og þínar vöfflur algjört leyndó.
Þú sagðir ætíð að gott væri að
sjá mig,
með þér mér fannst ávallt gaman
þó þú stundum segðir ekkert við mig
við bara nutum þess að vera saman.
Þú varst aldrei að flýta þér
þú sem vildir sitja, njóta og vera
svo jákvæður þú virtist mér
ég vildi að við hefðum meira að gera.
Afa dautur og gamlar ljósmyndir
þú vildir stanslaust deila með mér
og erlendar Disney-myndir
við systkinin gláptum á hjá þér.
Afi, þú sagðir alltaf við mig
Eygló „haltu áfram að vera þú“
ég vild’ ég hefði sagt það við þig
„þú hjálpaðir mér að hafa á mér trú“.
Vildi ég ei láta skilaboðin liggja
í bergmálandi huga mér
svo því munum við öll því fylgja
því sem afi sagði mér.
Afa minn þið komuð til að kveðja
ég held hann hefði við alla sagt
„haldið þið áfram að vera þið“
og ég veðja
hann hafi hamingjusamur á rúmið
sitt lagt.
Kæri afi Hlynur
þú hvílir í hjarta mér
ég kveð þig en því miður
okkur vantar þig hér.
(Eygló Hlín Guðlaugsdóttir.)
Þín afastelpa,
Eygló Hlín Guðlaugsdóttir.
Í dag kveðjum við elsku Hlyn
okkar með kæru þakklæti og
djúpum söknuði. Það var mikill
fengur fyrir okkur systkinin
þegar mamma og Hlynur kynnt-
ust og ákváðu að eyða ævinni
saman. Augljóslega höfðu þau
fundið í hvort öðru kærleiksrík-
an lífsförunaut. Það var aðdáun-
arvert hvernig þau leiddu hvort
annað á vit ævintýra og gerðu
ástríður hvort annars að sínum.
Mamma taldi það ekki eftir sér
að kasta sér í ískaldan sjóinn og
koma sér inn í björgunarbát á
hvolfi til að ná pungaprófinu og
gerast fyrsti stýrimaður með
skipstjóra Hlyni í siglingum
þeirra. Að sama skapi fylgdi
Hlynur mömmu fast eftir í ótelj-
andi leiðöngrum um fjöll og firn-
indi.
Hlynur var glæsilegur maður.
Hann var einstakur, traustur og
kær vinur. Hann fyllti í föður-
skarðið og snerti okkur djúpt
með hlýju sinni, ástúð, gjafmildi
og gleði. Það var ávallt bjart yfir
Hlyni og hann var ætíð tilbúinn
til að leggja á sig ómælt erfiði
fyrir ástvini sína. Hlynur var
yndislegur afi barnanna okkar
sem leituðu mikið til hans enda
sérlegur leiðbeinandi þeirra
hvort sem það var við smíðar í
sveitinni eða píanóæfingar í Goð-
heimunum. Í fjallgöngum kenndi
hann kappsfullum afabörnum
sínum að staldra við og njóta.
Afi gat allt, hann vissi allt og
lagaði það sem bilaði. Það var
notalegt að hjúfra sig hjá afa,
hlusta á hann spila á gítarinn og
strjúka mjúka hárið hans. Ekk-
ert var eins gott og afagrautur
og afavöfflur.
Hlynur ólst upp á Vestfjörð-
um. Það má segja að hann hafi
verið vestfirskur heimsborgari.
Vegir hans lágu víða um höf og
lönd. Hann vann fyrir Samein-
uðu þjóðirnar í Miðausturlönd-
um og bjó að reynslu, skilningi
og innsýn um menn og málefni á
þeim slóðum. Víðsýni hans og
fordómaleysi var eftirtektarvert.
Hlynur var mikill mannvinur og
laðaði að sér fólk með ljúfri nær-
veru, kímni og skemmtilegum
frásögnum. Hann hafði skapandi
huga og ósjaldan tók hann upp
blað og blýant til að rissa upp
hugmyndir eða til nánari útskýr-
ingar.
Hlynur naut sín best siglandi
fyrir fullum seglum hvort sem
var við Íslandsstrendur, í Mið-
jarðarhafinu eða Karíbahafinu.
Mörg okkar fengu tækifæri til
að sigla með Hlyni og mömmu.
Þetta eru ógleymanlegar sigl-
ingar, þau svo eldklár, samrýmd
og samstiga rétt eins og í lífinu.
Alltaf gengu siglingarnar vel og
við sem fylgdumst með þeim
heima biðum spennt eftir
margra blaðsíðna ferðalýsingum
sem drógu upp litrík samskipti
þeirra við heimamenn og aðra
siglingakappa í ólíkum höfum og
höfnum. Undirbúningur fyrir
fjölskylduferð suður á bóginn
var þegar hafinn en Hlyni voru
ætluð önnur ferðaplön. Minning-
in um kæran vin lifir, elska hans
og leiðsögn.
Guðni Hrafn, Hafsteinn
Hrafn og Tinna.
Hvít segl ber við himininn,
skútan siglir beggja skauta byr
og færist nær sólarupprásinni
og að ströndinni hinum megin.
Við stýrið stendur Hlynur
frændi minn og stýrir styrkri
hendi. Hann hefur leyst land-
festar í síðasta sinn og lagt upp í
sína hinstu siglingu. Við sem eft-
ir stöndum vitum að hann verður
tilbúinn að taka á móti spott-
anum þegar okkar fley ber að
ströndinni hinum megin.
Góðan byr, elsku frændi, ég
kveð þig með þakklæti fyrir all-
ar liðnu stundirnar á sjó og
landi.
Ástvinum þínum öllum sendi
ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Margrét (Magga) frænka.
Það er sárt að horfa á eftir
nánum vini sem manni þykir
vænt um. Manni sem veitti
hverjum þeim sem honum
kynntist óskipta athygli og hlýj-
an vinarhug með orðum eða
verkum. Þannig hafa kynni mín
af Hlyni verið og dálæti mitt á
honum vaxið með hverju árinu
sem liðið hefur. Ég kynntist
Hlyni og Ragnheiði um það leyti
er þau giftu sig, en þar runnu
saman tvær fjölskyldur. Fjöl-
skyldur sem Hlynur og Ragn-
heiður hafa ræktað í gegnum ár-
in og ég hef notið margra
skemmtilegra samverustunda
með. Þar hafa afa- og langafa-
börnin verið í fyrirrúmi, en
Hlynur sýndi börnum fádæma
athygli, virðingu og væntum-
þykju. Það fór ekki fram hjá
neinum sem með því fylgdist.
Hlynur bjó yfir mörgum mann-
kostum en hann var fylginn sér,
forvitinn, íhugull, hæverskur,
tryggur og greiðvikinn. Verkviti
bjó hann yfir sem gerði það að
verkum að allt lék í höndunum á
honum. Í honum bjó sterk þrá
eftir að láta drauma sína rætast
og láta gott af sér leiða. Það lýsir
sér meðal annars í störfum hans
fyrir Sameinuðu þjóðirnar eða í
áhuga hans á að sigla um á skútu
um heimsins höf. Það fór ekki á
milli mála að þeirra tíma naut
hann til fulls og var þeim mun
ánægðari ef honum tókst að
draga fólk inn í þessa reynslu-
heima og ræða af fordómaleysi
um stór mál eða mikilvæg smá-
atriði. Sögurnar kveiktu í honum
frásagnargleði sem unun var á
að hlusta og margt hægt að læra
af, hvort sem var af árum hans í
friðargæslu Sameinuðu þjóð-
anna, sjómennsku eða árunum
þegar hann var að alast upp á
Bíldudal. Ragnheiði og öðrum
aðstandendum færi ég mínar
dýpstu samúðarkveðjur. Hlyns
verður sárt saknað.
Sigurjón Baldur
Hafsteinsson.
Hlynur
Ingimarsson
Elskulegur og
kær vinur okkar
hjóna, Páll Helga-
son, er látinn langt
um aldur fram. Fáir
samferðamenn hafa
haft eins mikil áhrif á lífshlaup
okkar og Páll Helgason. Í 45 ár
höfum við átt hann að vinnu-
félaga, kórstjóra og ferðafélaga
og það má eiginlega segja að við
höfum sungið okkur í gegnum líf-
ið með þeim hjónum Páli Helga-
syni og elskulegri eiginkonu
hans, Bjarneyju Einarsdóttur,
eða Palla og Böddu, sem alltaf
eru nefnd í sama orðinu sem einn
maður.
Ógleymanlegar eru ferðir Ála-
fosskórsins til Rússlands og
Bandaríkjanna, ógleymanlegir
eru útreiðartúrarnir þar sem
kjötsúpa var höfð í hávegum og
ógleymanlegar eru allar ferðirn-
ar með Karlakór Kjalnesinga og
Vorboðum bæði innanlands og
Páll Helgason
✝ Páll Helgasonfæddist 23.
október 1944. Hann
lést 5. mars 2016.
Útför Páls fór
fram 15. mars 2016.
utan og síðast en
ekki síst samstarfið
með þeim hjónum
og vinkonu okkar
Guðríði Pálsdóttir í
Glaða genginu.
Það er efni í heila
bók allt það sem
Páll Helgason hefur
afrekað um ævina
og kom það engum á
óvart þegar Páll var
valinn bæjarlista-
maður Mosfellsbæjar 2012 og
fylgdi því eftir með tónleikum og
kynningu á kórunum sem hann
hefur stofnað og stjórnað og tón-
listarveislan sem Páll stóð fyrir í
Langholtskirkju á 70 ára afmæl-
isdaginn sinn er mörgum í fersku
minni.
Já, margs er að minnast og
margs að sakna og kærar þakkir
fyrir samfylgdina, Páll Helgason,
sárastur er söknuður elsku
Böddu okkar, barnanna Helga,
Einars og Anítu og allrar fjöl-
skyldunnar.
Innilegar samúðarkveðjur til
ykkar allra.
Úlfhildur Geirsdóttir
og Sigvaldi Haraldsson
(Úlla og Silli).
Elsku amma mín
er látin. Það voru
mjög daprar fréttir
sem bárust miðvikudagsmorgunn
9. mars,
en þá hringdi mamma og til-
kynnti mér um andlát hennar. Ég
var svo heppinn að geta fengið að
kveðja hana deginum áður. Ég
missti ekki bara ömmu, líka góða
og trausta vinkonu.
Ég minnist hennar á svo marg-
an hátt. Það var oft sem hún bað
mig um að aðstoða sig við hitt og
þetta sem var bara skemmtilegt,
eins og t.d. að keyra sig út í búð,
banka eða bara þangað sem hún
þurfti að fara og gera eða bara á
rúntinn.
Við brölluðum margt skemmti-
legt og alltaf var gott að tala við
hana um allt, því alltaf var hún
hreinskilin og sagði það sem henni
fannst. Við gátum talað um allt og
ef okkur lá eitthvað á hjarta gát-
um við talað um það. Ég fékk að
upplifa með henni gleðina, sorgina
og hamingjuna. Mér fannst alltaf
gaman að hlusta á sögurnar henn-
ar. Hún sagði mér oft sögur frá
gamla tímanum og hvernig hún
upplifði hann.
Ég man svo vel þegar hún var
að passa okkur Hlyn bróður þegar
við vorum börn á meðan foreldrar
okkar voru að vinna. Hún undi sér
best í eldhúsinu og var algjör hús-
móðir. Tók á móti okkur þegar við
komum úr skólanum með hlýju og
mat.
Þegar ég varð eldri og amma
hætt að passa okkur þá kom ég
Kristín Jónína
Sigurjónsdóttir
✝ Kristín JónínaSigurjóns-
dóttir, Dúa, fæddist
23. júlí 1932. Hún
lést 9. mars 2016.
Útför hennar fór
fram 18. mars 2016.
Meira: mbl.is/
minning
svo oft til hennar upp
á Sléttahraun eftir
skóla. Við brölluðum
margt saman þar.
Ég man alltaf eftir
plokkfisknum sem
hún gerði úr saltfisk-
inum. Hann var í
uppáhaldi hjá mér.
Við elduðum oft sam-
an í hádeginu í gegn-
um árin.
Svo allar veislurn-
ar sem hún hélt, hún kunni það
sko.
Hún var alltaf til staðar fyrir
mig þegar ég þurfti á að halda.
Hvort sem það var bara til að
hlusta, spjalla eða hughreysta
mig.
Nú mun engin skötuveisla
verða hjá okkur ömmu. Það var
fastur liður.
Undanfarna daga er ég oft á
leiðinni að hringja til hennar og
mér finnst skrýtið að geta það ekki
meir.
Ég hugsa hana núna komna til
hans afa eftir margra ára fjarveru
og veit ég að þau munu eiga góðan
tíma saman. Hann hefur örugg-
lega komið á „Gullvagninum“ að
sækja hana.
…
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég er svo þakklát fyrir öll árin
sem við áttum saman.
Ég er líka þakklát fyrir að börn-
in mín fengu að eiga svona góða
langömmu og mun ég passa að við-
halda minningu hennar með þeim.
Guð veri með þér og varðveiti
þig.
Þín dótturdóttir,
Helga Lucia.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum.
Minningargreinar