Morgunblaðið - 22.03.2016, Síða 35
stofunni Fjölhönnun sumarið 1980
og starfaði síðan hjá Mennta-
málaráðuneytinu frá 1982. Hún
hélt síðan til Kaupmannahafnar í
framhaldsnám í byggingarverk-
fræði í Danmarks Tekniske Uni-
versitet haustið 1984 og útskrif-
aðist þaðan sem Civil Ingeniør
(MSc) vorið 1986.
Eftir að Guðrún kom heim
starfaði hún áfram við Mennta-
málaráðuneytið 1992. Hún hóf síð-
an störf hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga þar sem hún vann til
ársins 1999. Næstu fjögur árin
starfaði hún á Hönnun verk-
fræðistofu og síðar á Eski verk-
fræðistofu en árið 2003 hóf hún
störf hjá Reykjavíkurborg og
starfaði þar þangað til í apríl 2015
er hún hóf störf í Borgarbyggð.
Slæm umgengni ferðafólks
„Ég er afskaplega ánægð með
starfið og við erum í sjöunda
himni hér í Borgarnesi. Borgar-
fjörðurinn er engu líkur, blómleg
byggð, náttúran einstök og fögur
fjallasýn.
Auk þess er starfið afar fjöl-
breytt og skemmtilegt en mér
leiðist einhæfni. Hér þarf ég að
huga að öllu, frá holum í malbiki
að áhyggjum af illri umgengni
ferðamanna, t.d. á Grábrók. Það
verður að segjast eins og er að
ferðamenn ganga almennt illa um
landið. Þeir bera ekki sama skyn-
bragð á landið og við Íslendingar,
skynja ekki hættur og virða ekki
náttúruna eins og okkur er þó í
blóð borið. Í þessum efnum þarf
að spyrna við fótum en ég verð að
viðurkenna að ég er ekki alveg
viss um hvað er best til ráða í
þessum efnum. Ég held samt að
skilti hér og þar skili litlum ár-
angri. En við þurfum enhvern
veginn að koma skýrari skila-
boðum til ferðamanna um að þeir
séu ekki í erlendri stórborg þegar
þeir virða fyrir sér íslenska
náttúru.“
Guðrún hefur áhuga á ferðalög-
um, tónlist, myndlist, skógrækt og
almennri útiveru. Auk þess spilar
hún brids: „Ég hef sungið í nokkr-
um kórum og gekk til liðs við
Freyjukórinn nú í vetur. Við hjón-
in erum með skika norður í Skíða-
dal í Eyjafirði þar sem við höfum
verið með skógrækt frá 1990 og
erum byrjuð að byggja þar sum-
arbústað. Ég hef mjög gaman af
myndlist og stefnan er að draga
eiginmanninn með mér á nokkur
söfn í París í afmælisferðinni. En
hvergi er samt betra en að vera í
faðmi íslenskri náttúru og þar er
Skíðadalurinn ofarlega á blaði.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er
Gunnar Sigurjónsson, f. 27.10.
1958, kennari og skrifstofumaður.
Foreldrar hans: Sigurjón Sigurðs-
son, f. 4.3. 1925, d. 6.1. 2008, bóndi
að Syðra-Hvarfi í Skíðadal, og
Elínborg Gunnarsdóttir, f. 3.10.
1927, fyrrv. húsfreyja að Syðra-
Hvarfi, nú búsett á Dalbæ á Dal-
vík.
Börn Guðrúnar og Gunnars eru
Elínborg Hulda Gunnarsdóttir, f.
26.11. 1989, BA í félagsráðgjöf frá
Háskóla Íslands og starfsmaður á
leikskólanum Sólborg í Reykjavík
en maður hennar er Ólafur Snorri
Ottósson, matreiðslunemi Reykja-
vík, og Jóhann Hilmir Gunnaron,
f. 16.9. 1994, starfsmaður í eldhúsi
Frederiksen Ale House, búsettur í
Reykjavík.
Bræður Guðrúnar eru Jóhannes
Hilmisson, f. 2.12. 1959, rafmagns-
tæknifræðingur á Álftanesi, og
Eiríkur Hilmisson, f. 5.4. 1963,
hljóðmaður í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar eru Hilmir
Jóhannesson, f. 24.5. 1936,
mjólkurfræðingur og leikskáld á
Sauðárkróki, og Hulda Jónsdóttir,
f. 3.4. 1937, húsfreyja og dagmóðir
á Sauðárkróki.
Úr frændgarði Guðrúnar S. Hilmisdóttur
Guðrún S .
Hilmisdóttir
Hólmfríður Eiríksdóttir
húsfr. á Húsavík
Pétur Jónsson
verkam. á Húsavík
Guðrún Pétursdóttir
verkakona á Húsavík
Jón Guðmundsson
verkstj. í Neskaupstað
Hulda Jónsdóttir
húsfr. og dagmóðir
á Sauðárkróki
Guðný Jóhannsdóttir
húsfr. á Þrasastöðum
Guðmundur Bergsson
b. á Þrasastöðum í Fljótum
Katrín Jónsdóttir
sjúkraliði
Stefán Pétursson
útgerðarmaður
Eiríkur
Eiríksson
b. Djúpadal
Júlíus Stefánsson
útgerðarmaður
Valgerður
Eiríksdóttir
Katrín Júlíusdóttir
alþingismaður
Nanna
Þorbergsdóttir
húsfr. í Djúpadal
í Akrahreppi
Andrés Magnús-
son geðlæknir
Nanna
Rögnvaldardóttir
matreiðslubóka-
höfundur
Jón Magnússon
tölvufræðingur
Guðrún
Rögnvaldardóttir
verkfræðingur
Ásmundur
Magnússon
tæknifræðingur
Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Skinnalóni
Stefán Jónsson
b. á Skinnalóni á Melrakkasléttu
Ása Stefánsdóttir
verkakona á Húsavík
Jóhannes Ármannsson
smiður á Húsavík
Hilmir Jóhannesson
mjólkurfræðingur og
leikskáld á Sauðárkróki
Hálfdánía Jóhannesdóttir
húsfr. í Hraunkoti
Ármann Þorgrímsson
b. í Hraunkoti í Aðaldal
Sigríður
Jónsdóttir
verslunarm. á
Sauðárkróki
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Dómhildur fæddist á Akureyri22.3. 1926. Foreldrar henn-ar voru Kristín Mýrdal
Karlsdóttir húsfreyja, og Jón Hallur
Sigurbjörnsson húsgagnabólstrari.
Bróðir Dómhildar var Karl Ómar
Jónsson verkfræðingur sem lést
2014.
Eiginmaður Dómhildar var sr.
Pétur Þ. Ingjaldsson sem lést 1996,
sóknarprestur í Höskuldsstaða-
prestakalli og prófastur í Húna-
vatnsprófastsdæmi og eignuðust
þau tvo syni, viðskiptafræðingana
Jón Hall og Pétur Ingjald.
Dómhildur lauk gagnfræðaprófi
frá MA 1944 og stundaði síðan nám í
Húsmæðraskóla Akureyrar. Hún
var mjög virk í skátastarfi á ung-
lingsárunum, lauk húsmæðrakenn-
araprófi frá Húsmæðrakennara-
skóla Íslands 1948 og stundaði
framhaldsnám við háskólann í Árós-
um 1952-53. Dómhildur kenndi við
Húsmæðraskóla Akureyrar 1948-49,
við Kvennaskólann á Blönduósi
1950-52., var forstöðukona þar 1951-
52, kenndi við Húsmæðraskólann á
Laugalandi 1953-56, var heimilis-
fræðikennari við Höfðaskóla á
Skagaströnd 1976-81 og bókavörður
við bókasafn Höfðahrepps í Austur-
Húnavatnssýslu 1970-79.
Dómhildur starfaði í Kvenfélagi
Höskuldsstaðasóknar og Kvenfélag-
inu Einingu á Skagaströnd. Hún var
um tíma formaður Sambands hún-
vetnskra kvenna og formaður Sam-
bands norðlenskra kvenna. Auk þess
var hún formaður barnaverndar-
nefndar og átti sæti í sóknarnefnd
Höfðasóknar.
Dómhildur annaðist barna- og
æskulýðsstarf í Höskuldsstaða-
prestakalli (nú Skagastrandar-
prestakalli) í fjölda ára, ásamt eig-
inmanni sínum og aðstoðarfólki, auk
þess sem hún var alltaf virk í öllu
starfi kirkjunnar. Hún var safnaðar-
systir í Hallgrímskirkju og stjórnaði
starfi aldraðra þar 1982-92. Hún
stundaði djáknanám við HÍ 1995-98
og vann sjálfboðaliðastarf fyrir aldr-
aða á Heilbrigðisstofnuninni á
Blönduósi í fjölda ára.
Dómhildur lést 18.10. 2012.
Merkir Íslendingar
Dómhildur
Jónsdóttir
85 ára
Hulda Eiríksdóttir
Svava Sigurðardóttir
Þórný Þórarinsdóttir
80 ára
Oddný S. Óskarsdóttir
Óttar Geirsson
Ragnar Imsland
75 ára
Agnar Traustason
Guðmundur Reynir
Guðmundsson
Hafsteinn Þór
Rósinkarsson
70 ára
Alda B. Indriðadóttir
Edda G. Norðdahl
Rannveig Árnadóttir
Þorkell Þorkelsson
60 ára
Anna GuðrúnSigurðardóttir
Ása Sigurrós Jakobsdóttir
Bryndís Óskarsdóttir
Erna Geirsdóttir
Gunnar Örn Sveinsson
Gunnhildur Amelía
Óskarsdóttir
Jóhanna Birna Grímsdóttir
Júlíana Gunnarsdóttir
Kristín Aðalsteinsdóttir
Kristín Sveinsdóttir
Kristján Sævar Þorkelsson
Magnús L. Sigurðsson
Ragnheiður L. Harðardóttir
Reynir Karlsson
Sigrún Ólafsdóttir
Sigurður G. Sigurðsson
Sólveig Kristjánsdóttir
50 ára
Anna J. Hinriksdóttir
Auður Ásta Hallsdóttir
Ágúst Sverrir Egilsson
Ásta Samúelsdóttir
Bára M. Benediktsdóttir
Berglind A. Guðjónsdóttir
Inga Dóra Halldórsdóttir
Jónína Baldursdóttir
Leifur Kolbeinsson
Maria H. da Silva Abranja
Nanna M. Haraldsdóttir
Pawel Tomasz Bedzieszak
Ragnar Baldursson
Sigurður Jón Björnsson
Sonja Clara Engley
Ulla Rolfsigne Pedersen
Þráinn Maríusson
40 ára
Einar Pétursson
Elvar Örn Reynisson
Eva Dóra Kolbrúnardóttir
Guðrún B. Unnsteinsdóttir
Guðrún Sveinbjarnardóttir
Hjördís S. Sigurðardóttir
Ligita Dambrauskiené
Maren Albertsdóttir
Mariusz Józef Koczon
Nesma Khenafi Medaguine
Sverrir Jan Norðfjörð
Tomasz Kisielewski
30 ára
Anastasia M. Sveinsdóttir
Anna Veronika Bjarkadóttir
Atli Már Ólafsson
Björg Sonde Þráinsdóttir
Géraldine M. Pascale Saltel
Guðmundur Sigurjónsson
Henrik C. van de Ven
Inga Stamere
Ingunn Eyjólfsdóttir
Margrét H. Hallgrímsdóttir
Marjan Henderika Venema
Oscar A.P. Melendez
Rafal Edward Kalinski
Rakel Ómarsdóttir
Sara Fanney Hilmarsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þorvarður ólst
upp í Reykjavík, býr í
Kópavogi, stundar BA-
nám í sagnfræði við HÍ og
starfar við Landsbankann.
Maki: Stefán Sveinn
Ólafsson, f. 1984.
Systkini: Kolbrún Silja, f.
1974; Hinrik Már, f. 1978,
og Sigríður Dagbjört, f.
1991.
Foreldrar: Ásgeir Þor-
varðarson, f. 1952, stjórn-
arform., og Sólveig
Hrafnsd., f. 1957, bókari.
Þorvarður H.
Ásgeirsson
30 ára Guðbergur ólst
upp í Stykkishólmi og
Vestmannaeyjum og býr í
Los Angeles. Hann lauk
MSc-prófi í tölvunarfræði
og starfar við það.
Maki: Sigríður Harðar-
dóttir, f. 1986, lögfræð-
ingur.
Dætur: Hanna María, f.
2013, og Ragnheiður
Sara, f. 2015.
Foreldrar: Hanna María
Siggeirsdóttir, f. 1950, og
Erlendur Jónsson, f. 1948.
Guðbergur Geir
Erlendsson
30 ára Bjarney býr á
Akureyri, lauk prófi í við-
skiptafræði frá HA og er
verkefnastjóri í Hofi.
Maki: Steindór Kristinn
Ragnarsson, f. 1983, vall-
arstjóri við GA.
Dóttir: Saga Kristín, f.
2015. Stjúpdóttir: Emilía,
f. 2003.
Foreldrar: Ólína Aðal-
björnsdóttir, f. 1958, leik-
skólakennari, og Sigurður
Björgvin Björnsson, f.
1951, húsasmiður.
Bjarney
Sigurðardóttir
ERU ÞAÐ HEITU
LAUGARNAR?
„
“
HVERNIG KEMST 330.000
MANNA ÞJÓÐ Á EM?
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
LEYNIVOPN.IS