Morgunblaðið - 22.03.2016, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er tímabært að safna kröftum
og endurskipuleggja sig fyrir það sem eftir
er af árinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Nágranni eða fjölskyldumeðlimur virð-
ist ætla að eyðileggja næðið sem þú metur
svo mikils. Til allrar hamingju hefur þú
mikla hæfileika til að bera á sviði sam-
skipta.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Enginn hefur beðið þig að bæta
eitthvað eða bæta neinu við, sem skapar
furðulega tilfinningu. Hvernig væri að syngja
aðeins hærra? Fólk dansar við tónlistina
þína núna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hvers vegna að eyða öllum skipu-
lagshæfileikunum í vinnuna? Einkalífið hefði
gott af því að njóta þeirra hæfileika. Hristu
af þér slenið, brettu upp ermarnar og taktu
til hendinni!
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagblöð, lagatexti, minnisblöð og þess
háttar felur í sér vísbendingar. Ef þú vildir
bara hagnýta hluti myndi þér mjög svo leið-
ast. Leggðu drög að því að komast í gott
ferðalag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Atburðarásin mun taka öll völd úr
höndum þér ef þú ekki stingur við fótum og
nærð stjórn á hlutunum. Draumar um fjar-
læga staði gera dagana djúpa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sjötta skilningarvitið verður fyrirferð-
armikið í dag. Smáatriði vefjast ekki fyrir
þér og þú finnur fljótlegustu leiðina að réttri
lausn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ástarsambönd gætu slitnað í
dag. Láttu ekki hugfallast því á endanum
stendur þú með pálmann í höndunum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert í léttu skapi þessa dag-
ana og átt auðvelt með að umgangast fólk á
öllum aldri. Dyttaðu að heima og lagfærðu
það sem bilað er.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Maður getur víst aldrei verið of
ríkur eða of mjór. Stattu fast á sjálfstæði
þínu. Lítil ævintýri geta vel glatt svo þú
skalt ekki fúlsa við þeim.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Frestaðu ferðalögum svo þú getir
sinnt daglegum skyldum þínum. Hann gefst
upp þegar hann sér að orð hans hrína ekki
á þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér hefur vegnað vel í starfi og
finnst tími til kominn að fá einhverja umbun
fyrir. Ef þú spyrð ekki, þá færðu ekki.
Sigrún Haraldsdóttir birti fjórarbraghendur á Leirnum á sunnu-
daginn, sem hún kallaði „Jafndægur
á vori“:
Skúrir væta, skarir molna, skaflar hjaðna,
sytrar vatn um svörð og rætur,
söm er lengdin dags og nætur.
Sólin er á sinni vissu sigurgöngu,
hærra mun á himni rísa,
heimi öllum skærar lýsa.
Vekja mun hún vallargrös og vorsins angan,
kalla úr suðri kæra gesti,
kríur, lóur, spóa og þresti.
Folöldum hún fagna mun og frískum
lömbum,
glæða von og gleðja sinnið,
gluða lit á náfölt skinnið.
Síðan skoraði hún á Sigmund
Benediktsson að yrkja braghend-
urnar upp undir öðrum bragarhætti,
helst hæku, – en þau hafa verið að
leika sér að slíkum vísnaleik. Ekki er
við því að búast að Sigmundur yrki
undir japönskum bragarháttum
fyrirvaralaust, – svo að hann verði
fyllilega ánægður! En hann hefur góð
tök á hringhendunni. „Góa kveður í
dag,“ sagði hann í gær og síðan:
Drunga gáruð fölleit fer,
feigðarbárur rugga.
Klökkvasára kveðju ber
koma tár á glugga.
Vorhugur er í Gunnari J.
Straumland:
Blíður morgunbláminn hlýr
bræðir drunga nætur
þegar Drottins dagur nýr
dregur mig á fætur.
Ingólfur Ómar er á sömu nótum:
Roðar græði grund og hlíð
glitrar bárukögur.
Morgunsólin björt og blíð
brosir undurfögur.
Forsetaframbjóðendum fjölgar
dag frá degi eins og farfuglunum á
vorin. Hallmundur Kristinsson
kvað og kallar „Skrautfjaðrir“:
Fjöðrum í framboðs röðum
fjölgar nú skrefum hröðum.
En leiðin er löng
og líkast til þröng
brautin að Bessastöðum.
Gústi Mar litaðist um á Borgar-
sandi og þar voru aðrir fuglar:
Tjaldur kátur kominn þar
kembdi svangur fjörurnar.
Sílamávur soltinn var
á Sauðármýrum álftapar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Jafndægur á vori
og fuglarnir
Í klípu
„BRÚ ER STERK OG ÁREIÐANLEG. NÚNA
ÞARF ÉG ENDURSKOÐANDA, EKKI BRÚ.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„BÖDDI, ÞÚ VERÐUR AÐ ÚTKLJÁ ÞETTA. ER
ÞESSI ÖR FRÁ APÖSUM EÐA SÍUXUM?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ...það sem gerir
sambandið svo einstakt.
ÉG VAR AÐ KYSSA
LÍSU GÓÐA NÓTTKYSSSSS!
TAKK FYRIR
ÚTSKÝRINGUNA
ÉG HÉLT AÐ EINHVER VÆRI
AÐ LOSA STÍFLAÐ KLÓSETT
ÉG ER
KOMINN FRÁ
FRAKKLANDI!
ER EITTHVAÐ
TIL MÍN Í
POKANUM?
ÞAÐ ER ALLT
TIL ÞÍN!
ÞAÐ ER ÓHREINA-
TAUIÐ MITT
Víkverji horfði á leik Everton ogArsenal í ensku úrvalsdeildinni
síðastliðinn laugardag á bresku
sjónvarpsstöðinni BT Sport. Þjón-
ustan við áhorfendur í þeirri lýsingu
var mögnuð. Leiknum lýsti einn
fremsti sparkþulur Breta undan-
farna áratugi, Ian Darke, en honum
til aðstoðar voru Glenn Hoddle, fyrr-
verandi landsliðsþjálfari Englands,
og Michael Owen, fyrrverandi lands-
liðsmiðherji. Uppsöfnuð þekking og
innsýn í leikinn var því sannarlega
ekki af skornum skammti en Hoddle
og Owen skiptust á að skýra leikinn
meðfram því sem Darke lýsti hon-
um.
x x x
Ekki nóg með það. Þegar dóm-gæsluleg álitamál komu upp var
skipt yfir á Howard Webb, sem um
árabil var í hópi fremstu dómara
Englands en hefur nú lagt flautuna á
hilluna. Í fyrri hálfleik féll Alexis
Sánchez, útherji Arsenal í teig Ever-
ton, og brást illur við þegar hann
fékk ekki vítaspyrnu hjá Mark
Clattenburg dómara. Darke gaf þá
Webb strax orðið. Hann sagði eitt-
hvað á þessa leið undir endursýn-
ingu á atvikinu: „Hér er Sánchez
brugðið. Hann reynir á hinn bóginn
að standa í fæturna en missir jafn-
vægið og lendir á næsta varnar-
manni. Seinni snertingin verð-
skuldar ekki vítaspyrnu en sú fyrri
gerir það klárlega. Þetta hefði átt að
vera víti!“
Málið dautt.
x x x
Þarna var boðið upp á framúrskar-andi þjónustu við áhorfendur og
Víkverji hvetur SkjáEinn og Símann
Sport, sem munu sýna beint frá
leikjum á Evrópumeistaramótinu í
knattspyrnu í sumar, til að taka
þennan hátt upp. Hafa Kristin Jak-
obsson, Gylfa Þór Orrason eða ein-
hvern annan dómara til taks og láta
þá meta vafaatriði af þessu tagi í
beinni útsendingu. Alla vega í
stærstu leikjunum.
x x x
Annars er upphitun fyrir EM hafiná SkjáEinum. Þvílík veisla sem
við eigum í vændum! víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern
ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs
míns, hvern ætti ég að hræðast?
Sálm. 27:1