Morgunblaðið - 22.03.2016, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Um bænadagana verður tónlistarhá-
tiðin „Músík í Mývatnssveit“ haldin í
nítjánda sinn. Að sögn Laufeyjar
Sigurðardóttur fiðluleikara, sem
hefur skipulagt og stýrt hátíðinni frá
upphafi, verður þetta sú fjölmenn-
asta frá upphafi því karlakór Þing-
eyinga, Hreimur, mun ásamt stjórn-
andanum Steinþóri Þráinssyni hefja
upp raust sína. Þá mun Sesselja
Kristjánsdóttir messósópran syngja
með Aladár Rácz píanóleikara og
kórnum, og einnig kemur fram Tríó
Sírajón, skipað þeim Einari Jóhann-
essyni á klarínett, Laufeyju Sigurð-
ardóttur á fiðlu og Önnu Áslaugu
Ragnarsdóttur píanóleikara.
Tvennir tónleikar verða á hátíð-
inni eins og fyrri ár; þeir fyrri verða
í Skjólbrekku á skírdag, 24. mars, og
hefjast klukkan 20. Seinni tónleik-
arnir verða síðan í Reykjahlíðar-
kirkju á föstudaginn langa klukkan
21. Miðasala er við innganginn.
Laufey segir að alltaf sé gaman ef
heimamenn geti komið að dag-
skránni á einhvern hátt og nú geri
þeir það heldur betur því Hreimur,
karlakór sýslunnar, kemur fram á
fyrri tónleikunum, í Skjólbrekku á
skírdag. „Sesselja syngur einsöng á
tónleikunum, Sígaunaljóðin dásam-
legu eftir Dvorák, auk þess sem hún
syngur líka með karlakórnum.“
Hún segir kórinn flytja klassísk
karlakóralög, íslensk og erlend, og í
nokkrum þeirra syngur hún með
kórnum.
„Þá leikum við líka á þessum fyrri
tónleikum tvö tríó, eftir Khatsa-
túrían og Menotti. Verk sem ég er
nokkuð viss um að hafi ekki heyrst
áður í Mývatnssveit á tónleikum,
ekki frekar en Sígaunaljóðin,“ segir
Laufey.
Skapa eina heild úr verkunum
Seinni tónleikarnir, á föstudaginn
langa, verða með allt öðrum hætti.
Hátíðlegri og verkin flutt sem ein
heild og gestir eru til að mynda
beðnir um að klappa ekki á milli.
„Anna Áslaug spilar þá til að
mynda úr Franskri svítu eftir Jo-
hann Sebastian Bach, þau Einar
leika saman Adagio eftir Mozart og
við Aladár spilum úr fiðlusónötu eft-
ir Mozart. Þá syngur Sesselja falleg
lög með Aladár, meðal annars við
kveðskap Hallgríms Péturssonar og
eftir Kurt Weil, og tríóið leikur,“
segir Laufey.
„Við reynum að skapa á þessum
tónleikum úr ólíkum en fallegu verk-
um eina heild,“ bætir hún við. Allir
listamennirnir komi með hugmyndir
að verkum að flytja.
Nú er þetta í nítjánda skipti sem
Laufey skipuleggur hátíðina og hún
segist vinna að undirbúningnum allt
árið. „Þetta mallar allt árið,“ segir
hún enda þarf að finna samstarfs-
fólk, velja verk og æfa. Eins og al-
þjóð veit hafa undanfarin ár verið
miklar breytingar á mannlífinu í
Mývatnssveit, þar sem yfir hálf
milljón ferðamanna kom þar við í
fyrra – og margir eru á ferðinni á
veturna. Koma þeir á tónleika?
„Það verður forvitnilegt að sjá
núna, því vissulega eru margir
ferðamenn í Mývatnssveit. Ef ég
væri uppi í sveit erlendis þá myndi
ég leita uppi tónleika og listviðburði
hjá heimamönnum,“ segir Laufey.
„Í fyrra var mjög góð aðsókn á
tónleikana en þegar ég er að undir-
búa tónleikana þá er ég ekki að
hugsa um aðsóknina. Fyrst og
fremst setjum við saman tónleika
með tónlist sem við viljum sjálf
heyra og við höldum að öðrum finn-
ist skemmtileg.“ efi@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tríó Sírajón Einar Jóhannesson, Laufey Sigurðardóttir og Anna Áslaug Ragnarsdóttir koma fram bæði kvöldin.
Falleg og skemmtileg tónlist
Tónlistarhátíðin Músík í Mývatnssveit haldin í 19. sinn
Á dögunum var opnuð í virtu galleríi
í New York, Galerie Perrotin, sýn-
ing á fimmtán völdum verkum eftir
Erró, mörgum flennistórum, frá
árinu 1959 til dagsins í dag. Galleríið
er auk New York rekið í París og
Hong Kong.
Sýningin var opnuð í byrjun mán-
aðarins og hefur notið talsverðrar
athygli í fjölmiðlum í New York.
Opnunin var samtímis opnun nýrrar
samtímadeildar Metropolitan-
safnsins í Breuer-byggingunni á
næsta horni, sem áður hýsti Whin-
ey-safnið, og er þess gjarnan getið í
skrifum um framkvæmdina og þá að
þessi þekkti evrópski listamaður,
Erró, sem sé stjarna í Frakklandi en
hafi notið lítillar athygli til þessa
vestanhafs, sé á verðskuldaðan hátt
kominn þar í kastljósið.
Menningarblaðamenn segja viða-
mikla yfirlitssýningu um hina ýmsu
geira pop-listarinnar, evrópskrar
jafnt þeirrar bandarísku, sem fyrst
var sett upp í Minneapolis en er nú í
Philadelphia-listasafninu, hafa sýnt
fram á mikilvægi Errós í sögu þess-
arar liststefnu og því sé vel til fundið
hjá Perrotin-galleríinu að halda nú
sýningu á þessum vel völdu verkum.
Erró og Rosenquist saman
Fyrir helgi birtist í The New York
Times samtal Errós og James Ros-
enquist, en segja má að hann sé einn
eftirlifandi hinna þekktustu frum-
kvöðla bandaríska popsins. Þar
kemur fram að þeir hafi kynnst
strax á sjöunda áratugnum þegar
Erró fór að koma reglulega til New
York-borgar, þar sem hann varð fyr-
ir miklum áhrifum og þar tók hann
að vinna að fullu úr myndefni fjölda-
menningarinnar, nokkuð sem hann
hefur stundað allt til þessa dags.
Auk Rosenquist kynntist Erró þá
og vann með listamönnum á borð við
Robert Rauschenberg, Jasper
Johns, Marcel Duchamp, Andy War-
hol og Roy Lichtenstein. Hann hélt
þá fyrstu sýningu sína í borginni, í
galleríi Gertrude Stein, og skrifaði
rýnir Art Voices þá að verkin væru
„sannur pop-súrrealismi“.
Þrátt fyrir að verk eftir Erró hafi
af og til ratað á sýningar í New York
á síðustu áratugum, og lítil yfirlits-
sýning hafi verið sett upp í Grey
Gallery í New York-háskólanum ár-
ið 2004, þá skrifa flestir blaðamenn á
þá leið nú að loksins geti Banda-
ríkjamenn kynnt sér verk þessa
merka 83 ára gamla listamanns sem
hefur á mikilvægan hátt haldið
áfram að takast á við samtíma okkar
í verkum sínum. efi@mbl.is
Verk Errós í New York
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn Erró við eitt af stóru málverkunum sínum um listasöguna. Í
New York eru sýnd 15 vel valin verk frá löngum og afkastamiklum ferli.
Umtöluð sýning
í Galerie Perrotin
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Mið 30/3 kl. 19:30 61.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn Fim 28/4 kl. 19:30 69.sýn
Fim 31/3 kl. 19:30 62.sýn Fim 14/4 kl. 19:30 66.sýn Fös 29/4 kl. 19:30 70.sýn
Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn Fös 15/4 kl. 19:30 67.sýn
Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn Sun 24/4 kl. 15:00 68.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Sun 10/4 kl. 19:30 aukasýn Fös 22/4 kl. 19:30 aukasýn
"Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..."
Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið)
Lau 2/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 16/4 kl. 19:30 11.sýn
Fös 8/4 kl. 19:30 10.sýn Lau 23/4 kl. 19:30 13.sýn
Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu.
Um það bil (Kassinn)
Sun 3/4 kl. 19:30 21.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 22.sýn
Síðustu sýningar!
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Sun 3/4 kl. 13:00 10.sýn Sun 10/4 kl. 13:00 11.sýn
Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Sun 3/4 kl. 19:30 24.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 26.sýn
Mið 6/4 kl. 19:30 25.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 27.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 30/3 kl. 19:30 8.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 10.sýn Mið 27/4 kl. 19:30 12.sýn
Mið 6/4 kl. 19:30 9.sýn Mið 20/4 kl. 19:30 11.sýn
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Þri 22/3 kl. 20:00 5.k Sun 24/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00
Mið 30/3 kl. 20:00 6.k Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 14:00
Fim 31/3 kl. 20:00 aukas. Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 20:00
Fös 1/4 kl. 20:00 aukas. Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Sun 22/5 kl. 20:00
Lau 2/4 kl. 20:00 7.k Þri 3/5 kl. 20:00 Þri 24/5 kl. 20:00
Sun 3/4 kl. 14:00 aukas. Mið 4/5 kl. 20:00 Mið 25/5 kl. 20:00
Mið 6/4 kl. 20:00 8.k Fim 5/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00
Fim 7/4 kl. 20:00 aukas. Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Fös 27/5 kl. 20:00
Fös 8/4 kl. 20:00 9.k Lau 7/5 kl. 14:00 Lau 28/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 20:00 aukas. Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Sun 29/5 kl. 20:00
Sun 10/4 kl. 14:00 aukas. Sun 8/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00
Mið 13/4 kl. 20:00 10.k Þri 10/5 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00
Fim 14/4 kl. 20:00 11.k Mið 11/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00
Fös 15/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00
Lau 16/4 kl. 20:00 12.k Fös 13/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00
Mið 20/4 kl. 20:00 13.k Lau 14/5 kl. 14:00 Sun 5/6 kl. 20:00
Fim 21/4 kl. 20:00 14.k Þri 17/5 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00
Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/5 kl. 20:00
Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00
Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar
Auglýsing ársins (Nýja sviðið)
Fös 8/4 kl. 20:00 Frums. Lau 16/4 kl. 20:00 4.sýn Fim 28/4 kl. 20:00 8.sýn
Lau 9/4 kl. 20:00 2.sýn Fim 21/4 kl. 20:00 5.sýn Lau 30/4 kl. 20:00 9.sýn
Fim 14/4 kl. 20:00 aukas. Fös 22/4 kl. 20:00 6.sýn
Fös 15/4 kl. 20:00 3.sýn Lau 23/4 kl. 20:00 7.sýn
Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur e. Tyrfing Tyrfinsson
Njála (Stóra sviðið)
Sun 3/4 kl. 20:00 29.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 30..sýn Sun 17/4 kl. 20:00 síð. sýn.
Síðustu sýningar
Vegbúar (Litla sviðið)
Lau 2/4 kl. 20:00 35.sýn Fös 8/4 kl. 20:00 36.sýn Lau 16/4 kl. 20:00 37.sýn
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 29/4 kl. 20:00 106.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn
Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Illska (Litla sviðið)
Lau 9/4 kl. 20:00 Mið 20/4 kl. 20:00
Fim 14/4 kl. 20:00 Lau 23/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Made in Children (Litla sviðið)
Fös 1/4 kl. 20:00 frums. Fim 7/4 kl. 20:00 3.sýn Fös 15/4 kl. 20:00 5.sýn
Sun 3/4 kl. 20:00 2.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 4.sýn
Hvernig gera börnin heiminn betri?
Njála – „Unaðslegt leikhús“ – ★★★★ , S.J. Fbl.
Bítillinn Paul McCartney hefur byrjað nauðsynlegt um-
sóknarferli til að hreppa aftur sinn hluta útgáfuréttar
Bítlalaganna í Bandaríkjunum en hann er nú í eigu
Sony/ATV. Lennon og McCartney misstu snemma tökin
á útgáfuréttinum, árið 1963, en lögin segja að listamenn
geta fengið hann aftur í hendur 56 árum eftir upp-
haflega útgáfu og því hefur McCartney sótt um að fá
réttinn yfir fyrstu 32 lögunum árið 2018. Yoko Ono,
ekkja Johns Lennon, hefur hins vegar samið við Sony/
ATV um að hennar hlutur verði áfram hjá fyrirtækinu.
Árið 1985 súrnaði vinskapur McCartney og Michaels
Jackson þegar sá síðarnefndi keypti útgáfurétt Bítlalag-
anna og sameinaði hann síðan Sony-veldinu árið 1995.
McCartney sækir um að fá lögin sín
Paul
McCartney