Jólakver - 01.12.1924, Blaðsíða 39

Jólakver - 01.12.1924, Blaðsíða 39
37 Hún hríðskalf af kulda, og svo var hún soltin, að hún afskræmdist og engdist sundur og saman eins og hún væri fárveik. Og svo var hún þreytt, að hún gat naumast staðið á fótunum. Og svo kveinaði hún og emjaði, rétt eins og kötturinn hérna, þegar hann fær enga nýmjólkina. Eg sé þetta svo greinilega fyr- ir mér. Þessi skepna hefur ekki litið betur út en við kindurnar gerðum í fyrravor, þegar heyleysið var hérna, svo að við vorum farnar að eta ullina hver af annari, til þess að hafa eitthvað að japla á. En þá var það, að öll dýrin kendu í brjósti um þessa vesælu skepnu og voru góð við hana eins og þau voru hvert við annað. Kýrin gekk til veslings- ins og sagði: „Heyrðu, hróið mitt, þú mátt fá þér mjólkursopa úr spenunum mínum; ætli það verði ekki einhver lögg handa kálfinum mínum fyrir því“. Og sauðkindin kom líka og sagði:u Þér er óhætt að reyta af mér dálítinn ullarlagð, þó að það sé sárt“. Meira að segja hænan kom klakandi með tvö eða þrjú egg, álfurinn sá arna. Og hesturinn sagði við hryssuna sína: „Heyrðu, hjartað mitt, þú verður að láta þér lynda að skemta þér með hinum piltunum stundarkorn. Ég ætla að vita, hvert þessi veslingur ætlar, og bera hann burtu á bakinu, til þess að losna við hann sem fyrst“. Og þannig vildi það til, að öll dýrin gengu í þjón- ustu mannsins. Það var af því, að hann var vesælli en nokkurt annað dýr. En þetta hefði dýrin aldrei átt að gera. Ein sauðkindin sleikir aðra, ef henni er gott gert. En maðurinn reyndist vanþakklátur. Hann kast- aði snöru um hálsinn á hestinum og hélt honum hjá sér og gerði hann að þræli sínum með alls konar

x

Jólakver

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólakver
https://timarit.is/publication/1211

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.