Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 16

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 16
Náttúrufræðingurinn 16 Mæld voru vatnshiti (0,01ºC upp- lausn, ± 0,15ºC mælinákvæmni), sýrustig (pH 0,01 ± 0,2) og rafleiðni (1 µS/cm, ± 0,5%, leiðrétt fyrir 25°C). Í júlí 2009 og júní 2010 voru gerðar samskonar mælingar á eðlisþáttum á um 0,5 m dýpi í fjöruborðinu. Vatnssýni voru tekin til efna- greiningar í ágúst 2010. Sýnin voru tekin með því að fylla 1,0 l plastflöskur á 20–30 cm dýpi. Fyrir sýnatöku voru flöskurnar skolaðar með 0,1 N HCl og síðan með vatni á staðnum. Sýnin voru höfð í kælikassa í 6–8 klst. þar til þau voru fryst (-20°C) og síðar send til efnagreiningar hjá Norsk Institutt for Vannforskning (NIVA) í Osló. Efnagreiningarnar voru gerðar á ósíuðum sýnum og eftirtaldar breytur mældar: heildarfosfór (Tot- P), fosfat (PO4), heildarnitur (Tot-N), ammóníak (NH4), lífrænt kolefni (TOC) og kísill (SiO2). Upplýsingar um aðferðafræði og mælinákæmni við efnagreiningarnar er að finna í riti á vegum NIVA.11 Vatnssýni til efnagreiningar var einnig tekið í júlí 2009 en þá var tekið leysingavatn í vök á vatninu fyrir miðri norðanverðri ströndinni. Sýnataka og mælingar á lífverum Sýnataka á lífverum fór fram í ágúst 2010 og þeim safnað í þremur búsvæðum, þ.e. í vatnsbol, á grjóti í fjörunni og í botnseti fyrir utan fjöruna. Í vatnsbolnum voru sýni tekin á einni stöð fyrir miðju vatn- sins með þrenns konar hætti. Í fyrsta lagi voru tekin sýni til að greina svifþörunga. Í því skyni voru tekin fimm vatnssýni með 660 ml sýnataka á 1,0–2,5 m dýpi og sýnin sameinuð í eitt 3,0 l safnsýni sem varðveitt var ósíað með því að bæta út í það nokkrum ml af 10% Lugolslausn. Safnsýnið var síðar látið botnfalla á rannsóknarstofu og fleytt ofan af því þar til rúmmál sýnisins var orðið 100 ml. Tegundagreining þörunga og talning þeirra fór fram hjá Bio- limno Research & Consulting Inc. í Halifax, Kanada. Í öðru lagi voru tekin þrjú lóðrétt 2,0 m löng höl með netháfi (45 µm möskvastærð) í því skyni að greina sviflæg dýr til tegunda og telja þau. Svifdýrasýnin voru einnig varðveitt á staðnum með því að bæta út í þau nokkrum ml af 10% Lugolslausn. Í þriðja lagi voru tekin þrjú sýni til að mæla magn blaðgrænu-a, en hún gefur vísbendingu um magn og virkni frumframleiðenda, þ.e. þörunga í þessu tilfelli. Blaðgrænumagnið endurspeglar jafnframt næringar- efnaástand vatnsins og fæðufram- boð fyrir dýrasvif. Sýnin voru tekin á tekin 1,0 m dýpi með 660 ml sýna- taka og höfð í kæli (~5ºC) í 6–8 klst., þá síuð á Whatman GF/C síupappír (Cat. No. 1822 047), síupappírinn frystur og blaðgrænan mæld síðar. Sýni til mælinga á blaðgrænu-a var einnig tekið í júlí 2009 en þá var safnað leysingavatni í vök á vatninu. Í fjöruvistinni var grjót valið af handahófi af 20–30 cm dýpi á átta stöðum með jöfnu millibili meðfram strandlengju vatnsins. Grjótinu var lyft varlega upp af botni og háfi með 250 µm möskvastærð skotið undir og grjótinu ásamt innihaldi háfsins komið fyrir í fötu með vatni sem síað var gegnum 250 µm netmöskva. Grjótið var burstað í fötunni og innihaldið síað gegnum sigti með 250 µm möskvastærð og það sem eftir sat í sigtinu hirt og varðveitt í 80% etanóli. Að því loknu var grjótið lagt á smjörpappír (A4) og útlínur þess dregnar með blýanti til að reikna út flatarmál á ofanvarpi grjótsins. Einnig var meðalhæð grjótsins metin og yfirborðsáferðin skráð í þrjá flokka: i) gróft yfirborð (fremur óreglulegt/ hrufótt og alsett smáum holum og misfellum), ii) meðalgróft yfirborð (hvorki gróft né slétt) eða iii) slétt yfirborð (fremur reglulegt/slétt og laust við holur og misfellur). Þessi flokkun var gerð með hliðsjón af því að yfirborðsáferðin getur haft áhrif á bæði tegundasamsetningu og magn hryggleysingja á fjörugrjótinu.12 Í botnvistinni fyrir utan fjöru- beltið voru tekin þrjú setsýni á botni á 2,7 m dýpi með svokallaðri Ekman botngreip, 225 cm2 að flatarmáli. Sýnin voru síuð gegnum sigti með 45 µm möskvastærð og það sem eftir sat í sigtinu hirt og varðveitt í 80% etanóli. Við úrvinnslu lífverusýna á Náttúrufræðistofu Kópavogs voru sýnin skoðuð í kvörðuðu íláti undir víðsjá af gerðinni Olympus SZX12 við 7–90-falda stækkun. Við fíngreiningar (100–400-falda stækkun) var notuð smásjá af gerðinni Olympus CX41. Dýr og þörungar voru talin og greind eins og kostur var. Stuðst var við ýmsa greiningarlykla, einkum þó rit eftir Nogrady og Segers.13 1. tafla. Vatna- og vatnsformfræðilegir þættir Blávatns. Byggt á vettvangs- mælingum 24.8.2010. – Physical charac- teristics of lake Blávatn. Based on measurements on August 24th 2010. Hæð yfir sjó – Altitude (a.s.l.) 1.114 m Mesta breidd – Max breadth 240 m Mesta lengd – Max length 400 m Flatarmál – Area 0,12 km2 Meðaldýpi – Mean depth 2,7 m Mesta dýpi – Max depth 4,5 m Rúmmál – Volume 0,27 Gl Vatnasvið – Catchment area 0,6 km2 3. mynd. Dýptarkort af Blávatni. Litamörk sýna 0,5 m dýptarbil og heilar línur 1,0 m dýptarbil. – Bathymetry of lake Blávatn. Solid lines represent depth contours in me- ters, 0.5 m in greytone colours. 100 m
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.