Náttúrufræðingurinn - 2013, Qupperneq 27
27
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
er hopunin á þessu tíma bili nokkru
minni eða um 1.400 m.
Sveinn Pálsson kom í Morsárdal
árin 1793 og 1794 og lýsir Morsár-
jökli stuttlega í Jöklariti sínu.7
Svigður eða nokkurs konar árleg
bönd voru mjög áberandi á yfirborði
jökulsins, einkum framan af 20. öld.
Um þær ritaði Sigurður Þórarinsson
grein árið 1952.7 Svigðurnar eru
áberandi á 7. mynd. Svigðurnar eru
enn sýni legar þótt ekki séu þær jafn
áberandi og áður. Árin 1952–1954
gerði hópur frá Nottingham-háskóla
töluverðar rannsóknir á Morsár-
jökli og skrifaði um þær.9,10 Þekkt-
astur úr þessum rannsóknarhópi
er Jack D. Ives sem hefur verið
reglulegur gestur í Öræf um frá
þeim tíma.
Árið 2006 var botninn undir
Morsár jökli kortlagður með íssjá
(Helgi Björnsson og Eyjólfur Magnús-
son, óbirt gögn) en niður stöður frá
þeim mælingum eru notaðar til að
sýna berggrunninn undir jöklinum
á 6. mynd. Yfirborð bergsins undir
tók að myndast um 1950 en hefur
stækkað eftir því sem jökullinn
hopar. Oft má sjá ísjaka á lóninu
enda er jökulsporðurinn á floti þar
sem hann nær út í lónið. Brött fjöll
eru beggja vegna jökulsins. Miðfell,
sem rís hæst í Miðfellstindi (1.430 m),
er að norðvestanverðu en suð aust an
skriðjökulsins er mikill fjall garður
sem nær mestri hæð í Skarða-
tindi (1.385 m). Staða jökulsporðsins
og þykkt jökulsins hefur breyst
töluvert frá því að farið var að fylgj-
ast með honum snemma á 20. öld.
Staða sporðsins var fyrst kortlögð
árið 1904 og upplýsingarnar birtar
á herforingjaráðskorti ári seinna.
Reglu legar mælingar hafa verið
gerðar á stöðu jökulsporðsins frá
1932 og niðurstöðurnar birtar í árs-
riti Jöklarannsóknafélags Íslands,
Jökli (4. mynd). Við lok litlu ísaldar,
um 1900, var framrás Morsárjökuls
í hámarki og árið 1904 náði hann
fram á jökulgarð sem er áberandi
þar sem Kjósarlækur rennur og
sam einast Morsá.
Frá 1904 fram til 2012 hopaði
jökullinn um 1.400–1.650 m. Hop-
un in er mismikil eftir því hvort mið-
að er við sporðinn norðanverðan,
sunnanverðan eða miðjan. Frá 1904
og til um 1955 hopaði jökullinn
um nærri þúsund metra. Frá 1955
til dags ins í dag hefur jökullinn
hopað kringum 600 m til viðbótar
en á þessu tímabili hefur jökullinn
þó einnig gengið stuttlega fram
um tíma. Þannig hopaði jökullinn
sam kvæmt mælingum svo til hvert
ár frá 1932 til 1973. Þá tekur hann
að ganga fram allt til 1986 en
breytingar eru síðan litlar fram til
um 2000. Eftir það hefur jökullinn
hopað. 5. mynd sýnir stöðu sporð-
sins á mismunandi tímum frá
upphafi 20. aldar og á 6. mynd
má sjá langsnið af Morsárjökli
og hvernig hann hefur hopað og
þynnst frá 1904 til 2011. Á þessum
107 árum hefur jök ullinn hopað
um 1.550 m, miðað við línuna sem
notuð er, og þynnst um allt að 200
m. Sé miðað við mið bik sporðsins
5. mynd. Staða jökulsporðs Morsárjökuls árin 1904, 1946, 1969 og 2003. Byggt á herforingjaráðskorti frá 1905 og loftmyndum frá
Landmælingum Íslands. – Location of the margin of Morsárjökull in 1905, 1946, 1969 and 2003. Based on a topographic map from 1905
and aerial images from the National Land Survey of Iceland.