Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 30
Náttúrufræðingurinn
30
á urðinni í maí 2007 kom ekkert í
ljós sem benti til þess að berghlaupið
hefði orðið í tveimur hlutum. Fyrir
viðbótarhruni þennan dag í apríl eru
færð þau rök að órói við jökulinn
hafi komið fram á skjálftamælum.
Þetta staðfestir hversu varasamt er
að draga ályktanir um skriðuföll við
jökla út frá jarðskjálftagögnum.
Uppruni, umfang og
ástæður þess að
berghlaupið féll
Berghlaupið á uppruna í snarbrattri
hlíð, sem veit mót norðvestri, yfir
innsta hluta Morsárjökuls, skammt
frá eystri ísfossinum. Hlíðin er ekki
sýnileg neðan úr Morsárdal eða frá
Kristínartindum. Svæðið er nafn-
laust en er undir Þorsteinshöfða og
fyrir innan Birkidal. Berghlaupið
féll niður á brattan jökulinn neðan
við ísfossinn.
Þar sem skriðjöklar hafa að jafn-
aði verið á undanhaldi síðustu ára-
tugi mætti ætla að hægt væri að
skýra berghlaupið á þann hátt að
jökull, sem liggur upp að hlíðinni,
hefði hopað. Hún hefði þar með
tapað stuðningi og gefið sig með
þess um afleiðingum. Svo er þó
ekki. Þrátt fyrir mikla breytingu á
jökul sporðum og þykkt neðri hluta
skrið jökla síðustu áratugi þá á hið
sama ekki alltaf við um efri hluta
jökla. Jökullinn undir hlíðinni, þar
sem berghlaupið féll, hefur ekki
þynnst frá árinu 1953 og lítið frá
árinu 1942. Hér varð hins vegar
nokkur þynning á fyrstu áratugum
20. aldar. Út frá þeim gögnum sem
fyrir liggja dugar sú þynning ekki
til að hægt sé að skýra að jökullinn
hafi haldið að fyllunni sem losnaði í
berghlaupinu.
Morsárjökull hefur grafið sig
niður um árþúsundir, mótað landið
og skilið eftir brattar fjallshlíðar.
Þetta skapar aðstæður fyrir berg-
hlaup og skriðuföll en breytingar
á jöklinum síðustu áratugi tengjast
ekki berghlaupinu með beinum
hætti. Bæði hefur þynning jökulsins
undir hlíðinni verið óveruleg og
eins liggur brotsárið mun hærra í
hlíðinni. Bergið neðst í klettunum,
yfir jökulbrekkunni, er því sem næst
óbreytt fyrir og eftir hlaupið.
Miklir veikleikar voru og eru í
fjallshlíðinni þar sem berghlaupið
varð. Hér koma saman nokkrar
syrp ur af ólíkum berggerðum svo
sem bólstrabergi, þursabergi, mó -
bergi og hraunum. Jóhann Helga-
son jarðfræðingur hefur kortlagt
berggrunn svæðisins og telur hann
bergið í þessari hlíð vera yngra
en 790 þús. ára gamalt (rétt segul-
magnað frá Bruhnes tíma).11 Auk
þess sem í hlíðinni koma fyrir
fjölmörg skil milli berggerða þá er
hún sundurskorin af berggöngum
og sprungum með stefnu sem er
nálægt austur-vestur. Sprungurnar
eru ekki fjarri því að vera samsíða
hlíðinni. Einnig er nokkuð um
sprung ur sem ganga þvert á þessa
stefnu eða norður-suður.
Það eru þessir veikleikar í fjallinu
sem eru grunnástæða fyrir berg-
hlaup inu. Hvað kom því síðan
af stað er ekki fyllilega ljóst en
það geta hafa verið þættir eins og
smá vægi legar hreyfingar tengdar
ísfoss unum, skriði jökulsins eða
veður skil yrði.
Í fyrstu vettvangsferð var nokkuð
erfitt að meta staðsetningu og
um fang brotsársins þótt staðið væri
undir hlíðinni. Þó voru brotfletir
augljósir á nokkrum stöðum sem
og ummerki eftir farveg hlaupsins.
Þann 9. ágúst 2011 var hlíðin ljós-
mynduð úr flugvél frá sama stað
og Mats Wibe Lund tók mynd 5.
september 1991. Með samanburði
var hægt að ákvarða brotsárið með
nákvæmni og eru niðurstöðurnar
teiknaðar inn á 9. mynd.
Bergspildan, sem losnaði, er í
660 til 1.010 m hæð yfir sjó. Sárið er
óreglulegt og breiddin á bilinu 200
til 300 m. Bergið er nærri því lóðrétt
í efri hluta sársins og á kafla liggur
það um brún hryggjar.
Þegar berghlaupsurðin var kort-
lögð í maí 2007 var hún þykktar-
mæld jafnframt því sem flatarmál
var ákvarðað. Rúmmál bergsins var
um 1.960.000 m3 eða um 5,1 milljón
tonn. Þessu til viðbótar er áætlað
að íshrunið í brekkunni hafi náð
að kaffæra um 155.000 m3 eða 0,4
milljón tonn af efsta hluta urðarinnar.
Samtals telst berghlaupið því vera
um 2,1 milljón m3 eða 5,5 milljón
tonn. Að meðaltali hefur spildan,
sem brotnaði úr hlíðinni, verið um
30 m þykk. Þykktin hefur hins
veg ar verið breytileg eftir staðsetn-
ingu innan sársins.
Jaðrar urðarinnar voru ekki nema
0,5–3,0 m háir við fyrstu mælingu.
Hæstur var jaðar urðarinnar neðst
þar sem hann var að jafnaði um
2,0–2,5 m hár. Stór bergbrot skáru
sig víða úr enda voru einstaka
björg allt að 8–9 m löng (10. mynd).
Þykkt urðarinnar var könnuð víða.
Niður staðan var að urðin væri að
meðal tali 2,7 m þykk þegar búið er
að um reikna hana yfir í fast berg.
Flatar mál urðarinnar reyndist vera
719.500 m2. Þessu til viðbótar
kem ur sá hluti sem íshrunið náði
að kaffæra af efsta hluta urðarinnar.
Flatarmál þess svæðis er áætlað
um 73.000 m2. Urðin hefur því alls
þakið um 790.000 m2.
10. mynd. Mikið er
um stór bergbrot
í urðinni líkt og
þetta 250 tonna
bjarg. – The debris
contains a lot of
large boulders like
this one that is
around 250 tons.
Ljósm./Photo: Jón
Viðar Sigurðsson.