Náttúrufræðingurinn - 2013, Qupperneq 31
31
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Í greininni sem birtist nýverið
um berghlaupið í Náttúrufræð-
ingn um er gefin afar ólík mynd af
staðsetningu og stærð brotsársins
og umfangi hlaupsins en þar er
brotsárið sýnt nærri tvöfalt stærra
en það er í raun og veru. Ekki reynd-
ist hægt að meta hvar brot sárið
lægi nákvæmlega þótt hlíðin væri
skoðuð í návígi í maí 2007. Greining
á ljósmyndum teknum á jörðu niðri
og loftmyndum gaf heldur ekki
góða mynd af legu sársins þótt
auðveldlega mætti draga ályktun
um að það væri mun stærra en raun
bar vitni. Eina leiðin var að taka
vandaða ljósmynd af hlíðinni úr
flugvél frá nákvæmlega sama stað
og Mats Wibe Lund tók mynd sína af
hlíðinni árið 1991. Þetta tókst í ágúst
2011 og þá fyrst var hægt að draga
línu sem afmarkar það svæði sem
brotnaði úr hlíðinni og hér er birt.
Í greininni er áætlað að rúmmál
hlaupsins sé um 4–4,5 milljónir
m3 eða um 10–12 milljónir tonna.
Þetta er áætlað út frá landlíkani
og eru tvöfaldar þær tölur sem hér
eru birtar. Í maí 2007 var flatarmál
urðar innar mælt á vettvangi auk
þess sem hún var þykktarmæld
með þokkalegri nákvæmni enda
var sumarbráðnun á jöklinum ekki
hafin. Hér er því um beinar mæl-
ing ar að ræða auk þess sem magn-
tölurnar ríma vel við brotsárið eins
og það er í raun og veru.
Breytingar á sporði jökulsins
undan farna áratugi segja sína sögu
en fleira þarf að skoða til að fá
heildarmynd á breytingum jökuls-
ins. Er Jack D. Ives var við vinnu
innst á Morsárjökli sumarið 1953
tók hann ljósmyndir af hlíðinni þar
sem berghlaupið féll. Myndirnar
sýna að jökulbrekkan undir hlíðinni
hefur ekki lækkað frá þeim tíma allt
þar til berghlaupið féll. Skýringin er
sú að hér eru upptök Morsárjökuls
undir ísfossunum þar sem jökulís
frá Vatnajökli fæðir jökulinn. Breyt-
ingar á Vatnajökli hér og ísfossunum
eru ekki nándar nærri jafn miklar
og á sporði Morsárjökuls. Myndir
Ingólfs Ísólfssonar af Morsárjökli
frá 1942 sýna hlíðina ekki en af
þeim má þó ráða að breyting á
þykkt jökulsins hafi ekki verið
mikil frá 1942 til 1953. Ljóst er þó
að jökullinn hefur þynnst nokkuð
á fyrstu áratugum 20. aldar. Þetta
staðfestir að ekki sé hægt að skýra
berghlaupið með hraðri hörfun
Morsárjökuls á síðustu árum og
áratugum. Hrun sem varð úr öðrum
stað í hlíðinni árið 2009 eða 2010, og
nánar verður vikið að síðar, sýnir
einnig að hopun jökuls þarf ekki
að koma til. Þar hefur jökull ekki
hald ið að hlíðinni við brotsárið frá
því á ísöld en sömu sprungur liggja
um sárið og þann stað þar sem stóra
berghlaupið varð.
Berghlaupsurðin
Berghlaupið skall á brattan jökul,
sem hulin er ísmulningi, í 560–625
m hæð yfir sjó, 300–550 m suðvestan
við eystri ísfoss Morsárjökuls. Halli
ísbrekkunnar er um 13° þar sem
berg hlaupið lendir. Brekkan er
nokkru brattari ofar og nær upp í
um 800 m hæð undir klettabeltinu
þar sem ísinn fellur fram af hengi-
fluginu. Yfirborð brekkunnar er
þak ið ísmulningi sem stöðugt bæt-
ist við eftir því sem ísinn mjakast
fram af brúninni. Stundum falla
stór ísstykki sem mynda skriður
niður brekkuna. Þessi brotni ís frá
hruninu nær niður í um 490 m hæð
yfir sjó en þar fyrir neðan er harður
jökulís. Undir yfirborði í brekkunni
er ísinn sömuleiðis ummyndaður
í harðan jökulís. Gera má ráð fyrir
að um 20–30 þús. m3 af ís falli að
jafn aði niður eystri ísfossinn á sólar-
hring, breytilegt eftir árstíma.
Í fyrstu vettvangsferð var skriðu-
urðin mæld. Jaðar hennar var kort-
lagður, þykkt metin, berggerðir og
kornastærð könnuð ásamt því sem
urðin og brotsárið voru ljósmynduð.
Það vakti sérstaka eftirtekt hversu
vel afmarkaður jaðar urðarinnar var.
Varla var nokkurs staðar stein að sjá
sem kastast hefði út fyrir eða fram
fyrir jaðar hennar. Þetta bendir til
11. mynd. Loftmynd af berghlaupsurðinni frá 6. ágúst 2007. Flæðilínur samhliða
rennslisstefnunni eru áberandi. Grófara efni er gjarnan nær jöðrum. Yfirborð efsta hluta
skriðunnar endurspeglar íshrunslandslag jökulsins undir. – Aerial photo of the rock ava-
lanche debris taken on August 6 2007. Flowlines are apparent. Coarse fragments are more
frequent along the rim of the debris. The upper part of the debris resembles the ice-avalanche
form of the glacier below. Ljósm./Photo: Loftmyndir ehf.