Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 36
Náttúrufræðingurinn
36
kann að valda aukn um skriðhraða
yfir sumartímann. Við mælingar
hópsins frá Notting ham-háskóla
árið 1953 kom í ljós að skriðhraðinn
jókst í kjölfar mikillar úrkomu.5
Mælingarnar nú benda til þess að
skriðhraði jökulsins við urðina sé
að jafnaði um 32–33 cm á sólarhring
yfir sumarmánuðina en um 17 cm á
sólarhring á tímabilinu október til
maí. Sjálfvirkri GPS mælistöð var
komið fyrir í berghlaupsurðinni
sumarið 2012 og mun hún gefa
nákvæmari mynd af hreyfingum
jökulsins.
Frá 27. maí 2007 til 5. október 2013
eða á 76 mánuðum hafði neðri brún
urðarinnar færst fram með jöklinum
um 551 m eða að meðaltali um 23,8
cm á sólarhring yfir tíma bilið.
Berghrun árið 2009 eða
2010
Í rannsóknarferð í júlí 2010 kom í
ljós að bergfylla hafði brotnað úr
klettanefi í 705–810 m hæð rétt utan
við þann stað þar sem berghlaupið
varð. Þetta hafði gerst eftir næstu
ferð á undan sem farin var í maí
2009. Bergfyllan hefur verið um
150.000 tonn og féll efnið niður á
jökulinn. Í brotsárinu eru greinileg
ummerki um lóðréttar sprungur
með stefnuna austur-vestur og
norður-suður. Bergið hefur losnað
um þessar sprungur. Líklega hefur
berghlaupið nokkrum árum áður
haft einhver áhrif á að um bergfyll-
una losnaði. Skil milli berggerða
eiga hér líka einhvern þátt. Mikið er
um opnar sprungur á þessum stað
og reyndar einnig inni á því svæði
sem stóra berghlaupið er ættað frá.
Líkur á frekara hruni eru því miklar.
Klettanefið er sýnt á 21. mynd.
Að lokum
Berghlaupið við Morsárjökul er um
margt sérstakt og því áhugavert
rannsóknarefni. Engar sögur fara
af sambærilegum umbrotum hér á
landi. Steinsholtshlaupið árið 1967,
sem einnig féll á skriðjökul, hafði
gjörólík áhrif. Þótt margt sé á huldu
og annað bíði frekari rannsókna
hefur tekist að fá góða mynd af
atburðinum og umfangi hans. Þá
gefur þessi óvænta sending efnis
niður á jökulinn gott tækifæri til
20. mynd Útlínur skriðuurðarinnar eru dregnar með grænni línu sem sýnir staðsetningu og lögun hennar þann 27. maí 2007. Útlínur
skriðunnar árin 2009, 2010 og 2011 eru merktar með fjólubláum, bláum og rauðum lit. Á 76 mánuðum, frá 2007 til 2013, hafði skriðan
færst með jöklinum um 551 m eða 23,8 cm á sólarhring að jafnaði. Brotsárið er merkt með appelsínugulum lit. – The rim of the debris on
May 27 2007 is marked with a green line compared with the location of the rim in 2009, 2010 and 2011 marked with lines in purple, blue
and red colour. In 76 months from 2007 to 2013 the debris front had moved some 551 m or 23.8 cm on average per day. The origin of the
rock avalanche is marked with an orange line. Grunnkort frá Landmælingum Íslands/basemap from the National Land Survey of Iceland.