Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 37
37
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
að fylgjast með hreyfingum og
bráðn un Morsárjökuls.
Ferðalag urðarinnar með jökl-
in um heldur áfram næstu ár og
bráðn un jökulsins verður líklega
meiri utan urðarinnar en undir
henni. Þannig mun hún gnæfa
yfir umhverfi sitt. Ekki er hægt
að merkja að urðin og ísstallurinn
undir henni hafi haft áhrif á skrið
jökulsins. Það kann þó að breytast
eftir því sem urðin nálgast jökul-
sporðinn.
Á litlum kafla eru sveigðar
sprung ur á norðanverðum jöklinum
sem ná inn á urðarranann. Berg-
hlaups urðin er að hluta komin á
þetta svæði sem veldur röskun
á jaðri hennar á kafla. Þetta er
sýnilegt þar sem sprungurnar brjóta
upp urðarþekjuna þannig að sjá má
í beran ís. Neðri jaðar urðarinnar
nálg ast svæði þar sem jökullinn er
ójafn og sprunginn. Þetta mun hafa
þau áhrif að skriðuurðin brotnar
nokkuð upp. Efnið safnast í lægðir
og ber ís á milli bráðnar hraðar og
veldur sífelldum breytingum. Urðin
mun ná jökulsporðinum kringum
árið 2025 og líklega verða mest eða
öll ummerki um berghlaupið horfin
2035–2040. Komi ekki til miklar
breytingar á jöklinum mun urðin að
mestu enda á botni lónsins framan
við jökulsporðinn.
Vegna óstöðugleika bergsins
við brotsárið er ekki ólíklegt að
meira muni falla á jökulinn á
komandi árum. Líklega verða það
lítil skriðu föll en ekki er hægt
að útiloka berghlaup af sömu
stærð eða jafnvel stærri. Nokkru
utar, sunnan Morsár jökuls, eru
staðir þar sem hæglega geta orðið
berghlaup.
Aðstæður eru svipaðar við fleiri
jökla, bæði í Öræfum jafnt sem
á öðr um svæðum. Berghlaup og
skrið ur eiga því eftir að falla á
skrið jökla í framtíðinni.
Summary
Rock avalanche at Morsárjökull
In the winter of 2006–2007 a large rock
avalanche descended onto the inner-
most part of the small outlet glacier
Morsárjökull close to Skafta fell in south-
east Iceland. This is the largest rock ava-
lanche in Iceland since 1967 when an
avalanche fell on Steinsholtsjökull, an
outlet glaci er north of Eyjafjallajökull.
Morsárjökull forms when two
streams of ice fall from Vatnajökull gla-
cier down a vertical rock face. The ice is
crushed in the fall but transforms into a
solid outlet glacier that moves at an
average speed of 23.8 cm per day (87 m
per annum). Morsárjökull is almost 4 km
long and 700–1,100 m wide.
The rock avalanche originated in a
steep north-westerly facing wall at the
height of 660–1,010 m a.s.l.
The 5.5 million ton rock avalanche
hit a steep ice slope and then flowed
down the glacier forming a debris pile
that is almost 1,400 m long and 600 m
wide covering an area of 719,500 m2.
The lower end of the debris stopped ap-
proximately 2.1 km from the source of
the avalanche at the height of 362 m a.s.l.
The uppermost part of the debris was
covered with ice from the eastern icefall
within weeks after the avalanche.
Due to insulation the ice beneath the
debris melts at a much slower rate than
the rest of the glacier. In September
2011 the ice below the debris was up to
35 m higher than the surrounding ice
surface. During the melting season
(June–Septem ber) the surface of the
glacier close to the debris melts at the
rate of 80 mm per day compared with
Dagsetning – Date 27.05.2007 16.05.2009 19.07.2010 12.06.2011 22.09.2011 29.04.2012 25.04.2013
Jaðar skriðuurðar efst (m.y.s.)
– Upper edge of debris (m a.s.l.) 513 473 459 442 429
Jaðar skriðuurðar neðst (m.y.s.)
– Lower edge of debris (m a.s.l.) 362 337 326 318 312 311 301
Mesta lengd skriðuurðar (m)
– Maximum length of debris (m) 1.368 1.366 1.375 1.373 1.380
Mesta breidd skriðuurðar (m)
– Maximum width of debris (m) 610 585 580 575 585
Framskrið efri jaðars frá fyrri mælingu (m)
– Advance of upper edge since last meas. (m) 162 105 70 58
Meðaltalsskrið á sólarhring (m)
– Avearge advance per day (m) 0,225 0,245 0,212 0,185
Meðaltalsskrið á ári (m)
– Average advance per annum (m) 82,1 89,4 77,4 67,5
Framskrið neðri jaðars frá fyrri mælingu (m)
– Advance of lower edge since last meas. (m) 185 118 70 33 36 78
Meðaltalsskrið á sólarhring (m)
– Average advance per day (m) 0,257 0,275 0,212 0,324 0,170 0,216
Meðaltalsskrið á ári (m)
– Average advance per annum (m) 93,8 100,4 77,4 118,3 62,0 78,9
Þykkt ísstalls undir neðri jaðri urðar (m)
– Ice thickness under lower edge of debris (m) 0 15 22 31 35 36 37
1. tafla. Hæð jaðra skriðuurðar yfir sjó, lengd hennar og breidd ásamt færslu hennar og hæð ísstalls undir framjaðri urðarinnar. –
The height a.s.l. of the upper and lower edge of the debris, it’s length and width and the movement of the debris with the ice and the
height of the ice below the debris front.