Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 42
Náttúrufræðingurinn
42
strengir á hvoru svæði, 10 gildrur
á hverjum streng, 22 m hafðir milli
gildra og 200 m milli strengja. Gert
var ráð fyrir að gildrurnar veiði
krabba allt að 150 m út frá sér á
haf út og 100 m í átt að aðliggjandi
strönd. Heildarumfang hvors
rann sóknasvæðis fyrir sig var því
um 0,42 km2. Allar þrjár gerðir af
gildr um voru notaðar (ferhyrndar
Carapax® og stórar og litlar kón-
ísk ar) og þær beittar með fisk af-
skurði (hausar, beinagarðar og slóg)
og blöndu af þorski og ufsa.
Sundin við Reykjavík í september
2011
Eitt svæði á Sundunum við Reykja-
vík (M3) var valið út frá fyrri veiði-
reynslu til merkinga (4. mynd
B). Merkingar fóru fram um borð
í rann sóknabátnum Sæmundi
fróða RE í lok september 2011.
Krabbar voru veiddir í ferhyrndar
Carapax® gildrur. Lagðir voru
fjórir strengir með fimm gildrum,
22 m voru hafðir milli gildra, tveir
strengir í sniði (50 m á milli enda)
og um það bil 200 m á milli
sniðanna. Gert var ráð fyrir að
gildrurnar veiði krabba allt að 150 m
út frá sér á haf út og 100 m í átt
að aðliggjandi ströndum. Heildar-
umfang rannsóknasvæðisins var
því um 0,21 km2. Lagt var fimm
sinn um og gildranna vitjað á
tveggja sólarhringa fresti. Beitt var
með þorski, ufsa, ýsu og sandkola.
Sniðtalning
Þéttleikamat með köfurum var
annars vegar framkvæmt í Hvalfirði
í júlí og á Sundunum við Reykjavík
í október 2011 (5. mynd). Sniðtaln-
ing ar voru framkvæmdar á fyrir-
fram ákveðnum sniðum. Sniðin voru
mæld með því að leggja út spotta
með þyngingum (lóðum) og baujum
5. mynd. A. Allt gert klárt fyrir sniðtalningu með köfurum um borð í Sæmundi fróða RE.
B. Kafari á upphafsreit sniðsins klár í köfun. C. Sniðið var markað með kaðli sem var sökkt
og kafararnir syntu eftir. D. Kafari með grjótkrabba. − A. The team preparing the dive on
board the research vessel. B. Scuba diver ready at the starting point. C. The transect marked
with a rope on the bottom. D. Diver with a rock crab. Ljósm./Photo: Kjartan Þór Birgisson.
4. mynd. A. Rannsóknasvæðin tvö í Hvalfirði (M1 og M2). Fjórir strengir voru lagðir á hvoru svæði, 10 gildrur á hverjum streng.
B. Rannsóknasvæðið á Sundunum við Reykjavík (M3). Fjórir stengir voru lagðir á svæðinu, 5 gildrur á hverjum streng. − A. The two
study sites in Hvalfjörður (M1 and M2). Four strings were laid out at each site with 10 traps on each string. B. The study side at
Sundin (M3). Four strings were laid out with 5 traps on each string.