Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 44

Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 44
Náttúrufræðingurinn 44 tímaháðra áhrifa þess að veiðast (Mt). Veiðin var líka breytileg eftir dögum, frá 212 til 402 krabba sem veiddust í fyrsta sinn. Veiðin fylgdi seinkuðum fallaskiptum þar sem mest veiddist um tveimur sólar- hring um eftir háflóð. Þéttleiki grjót- krabba út frá stærð rannsókna- svæð is ins á Sundunum var því metinn vera um 0,12 krabbi á fermetra. Sem fyrr voru kvendýr í minni- hluta í afla (2. tafla). Hjá grjót- kröbb um var hlutfall kvendýra 21,7%, hjá bogkröbbum 12,6% og trjónukröbbum 7,8%. Einn grjót- krabbi með vel þroskuð egg veiddist og 5 trjónukrabbar með ýmist vel eða lítt þroskuð egg. Að meðaltali voru grjótkrabbarnir 9,8 cm að skjaldarbreidd, og var stærðardreifing þeirra frá 5,3–13,0 cm. Tveir toppar virðast vera í stærðar dreifingu grjótkrabba (karl- dýr) á Sundunum, þ.e. einn við 9 cm og annar við tæpa 11 cm (6. mynd). Bogkrabbar voru að meðaltali 6,9 cm að skjaldarbreidd, og var stærð ar - dreifing þeirra frá 1,9–8,8 cm. Trjónukrabbar voru að meðaltali 8,9 cm á skjaldarlengd, og var stærð- ar dreifingin 4,2–11,5 cm. Sniðtalningar Hvalfjörður Á yfirferð sinni sáu kafararnir ekki krabba á þremur fyrstu og dýpstu sniðunum (14–26 m). Í annarri köfuninni (20 m dýpi) sáust för eftir krabba á botninum. Á grynnstu sniðunum tveimur (7,4 og 8,5 m dýpi) voru um 0,025 og 0,065 grjót- krabbar á hvern fermetra (5 og 13 einstaklingar) og 0,06 og 0,075 trjónu krabbar (12 og 15 einstakl- ingar). Heildaryfirferð kafaranna var um 800 m2. Sniðtalningar kafar- anna endurspegluðu gildruveið- arn ar nokkuð vel þar sem veiði í gildrur jókst til muna þegar nær dró landi (3. tafla). Nokkuð jöfn kynja- hlutföll fengust við köfun saman- borið við hátt hlutfall karldýra í gildrur (4. tafla). Sundin við Reykjavík Aðeins sáust 15 krabbar í snið taln- ingunum á Sundunum, þar af einn sundkrabbi (Liocarcinus holsatus). Af þessum 15 kröbbum voru 3 bog- krabb ar, 5 trjónukrabbar og 6 grjót- krabbar, þar af einn merktur (5. tafla). Heildaryfirferð kafaranna var um 1.600 m2. Samanburður á gildruveiðum og sniðtalningum í Hvalfirði Með samanburði á fjölda séðra krabba úr sniðtalningum og fjölda veiddra í gildrur er mögulegt að meta áhrifasvæði gildranna með tilliti til veiðanleika. Þó ber að fara varlega í alhæfingar sökum fárra lagna og frekar takmarkaðrar yfir- ferðar kafaranna. Ef gert er ráð fyrir að grjótkrabbar yfir 8 cm að breidd veiðist í gildrurnar, að 8,4 krabbar veiðist að meðaltali í gildru, að allir krabbar innan ákveðins svæðis komi í gildrurnar og ekki sé um tilflutning á kröbbum innan áhrifa svæðisins að ræða, er radíus áhrifa svæðis grjótkrabbans þá ýmist 7,3 eða 13,3 m eftir því hvort af grynnstu köfunarsniðunum er notað (áhrifasvæðið því 168 eða 560 m2). Bil milli gildra var 22 m þannig að skv. þessu gætu áhrifa- svæði gildranna skarast en ekki var reynt að leiðrétta fyrir því hér. Samkvæmt þessum tölum er fjöldi grjótkrabba á 20 m dýpi í 3. tafla. Samanburður á fjölda grjótkrabba eftir dýpi, annars vegar úr gildruveiðum og hins vegar úr sniðtalningum kafara í Hvalfirði í júlí 2011. Fjórir stórir grjótkrabbar sem kafarar sáu en náðu ekki eru taldir með á 7,4 m dýpi. − Number of crabs captured in traps at different depths compared with the number of crabs sampled by divers in Hvalfjörð in July 2011. Four big rock crabs that divers saw but did not catch are added to the total sum at 7.4 m depth. Dýpi (m) − Depth Krabbar í gildru (fjöldi gildra) − Crabs in traps (number of traps) Krabbar í köfun (m2) − Crabs in dive (m2) 7,4 13 (100) 8,5 84 (10) 5 (100) 14 0 (200) 20 17 (5) 0 (200) 26 1 (5) 0 (200) 6. mynd. Stærðardreifing grjótkrabba sem veiddust í gildrur í merkingartilraunum í innanverðum Hvalfirði í lok maí og byrjun júní (a) og á Sundunum við Reykjavík í sept- em ber 2011 (b). Rauðar súlur tákna kvendýr og bláar súlur karldýr. – Size dis t ri bution of rock crabs caught in Hvalfjörður in the end of May and beginning of June (a) and in Sundin in September 2011 (b). Red bars indicate females and blue bars males. a) b)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.